Erlent

Sjö fórust í þyrlu­slysi í Egypta­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Frá Sinai-skaga í Egyptalandi. Myndin er úr safni.
Frá Sinai-skaga í Egyptalandi. Myndin er úr safni. Getty

Sjö eru látnir eftir að þyrla alþjóðlegs friðargæsluliðs hrapaði á Sínaí-skaga í Egyptalandi í dag.

Talsmenn ísraelskra og egypska yfirvalda segja að í hópi látinna hafi verið fimm bandarískir ríkisborgarar, einn ísraelskur og einn tékkneskur.

Hinir látnu voru hluti af alþjóðlegu friðargæsluliði (MFO) sem ætlað er að tryggja að ákvæðum friðarsamnings Egypta og Ísraela sé framfylgt. Er sagt að um slys hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×