Sagði af sér eftir örfáa daga í embætti Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. nóvember 2020 20:21 Manuel Merino, forseti Perú, sagði af sér í dag eftir aðeins nokkra daga í embætti. EPA
Manuel Merino, forseti Perú, sagði af sér í dag eftir aðeins nokkra daga í embætti. Merino sagði af sér í kjölfar mikilla mótmæla sem staðið hafa yfir síðan ríkisstjórn hans tók til starfa en tveir ungir menn, 24 og 25 ára, létust í mótmælunum í gær. Merino gegndi áður stöðu þingforseta en hann tók við embætti forseta af Martín Vizcarra sem þurfti að víkja úr embætti í síðustu viku eftir að vantrauststillaga á hendur honum var samþykkt vegna ásakana um mútugreiðslur sem Vizcarra vísar á bug. Valdamiklir stjórnmálamenn höfðu kallað eftir því að arftaki hans, Manuel Merino, myndi víkja strax aftur úr embætti í ljósi ofbeldisfullra mótmæla sem brutust út gegn ríkisstjórn hans. Tólf ráðherrar úr nýskipaðri ríkisstjórn Merino sögðu af sér í dag í mótmælaskyni við lögregluofbeldi og það hvernig Merino hafi tekist á við ástandið. Tugþúsundir mótmælenda, að miklu leyti ungt fólk, hafa tekið þátt í mótmælum undanfarna daga til að andmæla ákvörðun þingsins um að víkja Vizcarra úr embætti. Mótmælendur saka þingið um valdarán en Vizarra hefur notið stuðnings meðal margra kjósenda á vegferð sinni til að stuðla að umbótum. Mótmælin í höfuðborginni Lima í gær fóru að mestu leyti friðsamlega fram en til átaka kom þegar tók að líða undir kvöld og kom til stimpinga milli lögreglu og mótmælenda.
Perú Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar Sjá meira