Segir fangelsaða Instagram stjörnu vera með veiruna Sylvía Hall skrifar 19. apríl 2020 10:33 Sahar Tabar öðlaðist frægð á netinu fyrir það að hafa farið í um fimmtíu lýtaaðgerðir til þess að líkjast leikkonunni Angelinu Jolie. Hún var fangelsuð fyrir guðlast í fyrra. Instagram
Lögmaður írönsku Instagram stjörnunnar Sahar Tabar segir hana hafa smitast af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum í kvennafangelsi í Íran. Tabar var handtekin í fyrra fyrir guðlast og að hafa hvatt til ofbeldis. Sjá einnig: Írönsk Instagram stjarna handtekin fyrir guðlast Tabar hefur vakið mikla athygli fyrir sérstakt útlit, en hún undirgekkst um fimmtíu lýtaaðgerðir í þeirri von um að líta meira út eins Angelina Jolie. Tabar, sem er 22 ára gömul, hefur verið kölluð uppvakningsútgáfan af Jolie en hún hefur sjálf ýjað að því að breyta útliti sínu enn frekar með förðun og tölvuvinnslu. Yfirmaður fangelsisins hafnar því að hún hafi greinst með kórónuveiruna og segir það fjarri sannleikanum. Lögmaður hennar hefur þó skrifað opið bréf til dómstóla í landinu, sem hann birti á Instagram, og segir móður Tabar hafa fullyrt að hún væri nú í sóttkví-hluta fangelsisins eftir að hafa sýnt einkenni kórónuveirusmits. Yfir fimm þúsund hafa látist í Íran af völdum kórónuveirunnar og var um það bil 85 þúsund föngum sleppt í því skyni að sporna við útbreiðslu veirunnar. Lögmaður Tabar segir hana ekki hafa átt möguleika á því að vera sleppt, þrátt fyrir „minniháttar glæpi“, þar sem mál hennar væri enn til meðferðar í kerfinu.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Íran Samfélagsmiðlar Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira