Erlent

Náðu myndbandi af lögreglumönnum sem björguðu lífi hunds

Atli Ísleifsson skrifar
Þegar upp á bakkann var komið hófu lögreglumennirnir endurlífgunartilraunir sem skiluðu árangri.
Þegar upp á bakkann var komið hófu lögreglumennirnir endurlífgunartilraunir sem skiluðu árangri.
Myndband náðist af því þegar lögreglumönnum í Kólumbíu tókst að bjarga lífi hunds sem hafði hrifsast niður á, en miklar rigningar hafa gengið yfir landið síðustu daga.

Á myndbandinu má sjá lögreglumennina fylgjast með hundinum fljóta niður straumharða ána og finna svo góðan stað til að ná honum upp úr.

Þegar upp á bakkann er komið hefja lögreglumennirnir endurlífgunartilraunir sem virðast hafa skilað árangri.

Sjá má myndbandið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×