Boðskapurinn löngu orðinn almannaeign 9. desember 2010 03:30 Ingólfur Margeirsson
Þrjátíu ár voru í gær liðin síðan John Lennon var, síðla kvölds, myrtur fyrir utan heimili sitt í New York. John Lennon lifir þó enn meðal aðdáenda sem einn áhrifamesti listamaður allra tíma. Ásamt félaga sínum Paul McCartney stofnaði hann í Liverpool Bítlana, sem urðu ein vinsælasta hljómsveit allra tíma. Tónlist hans hefur haft mikil áhrif á nútímann, ekki aðeins í tónlist heldur á menningarheim fólks líka. John Lennon hóf sólóferil sinn eftir að hann kynntist Yoko Ono og hætti í Bítlunum. Þá segir Ingólfur Margeirsson Bítlasérfræðingur að öll hans viðhorf hafi breyst. „Lennon verður sjálfhverfari. Hann var mesti listamaðurinn í Bítlunum og sú hlið hans blómstraði með Yoko. Hann bar út friðarboðskap og leiddi ákveðna friðarhreyfingu í tónlist.“ „Lennon uppskar mikið með friðarboðskap sínum. Hann er að mínu mati einn mesti friðarpostuli sem nokkurn tíma hefur verið uppi. Hann sagði í viðtali að Bítlarnir væru stærri en Jesús og meinti þá að þeir hefðu meiri áhrif en hann. Ég er viss um að það sé rétt.“ Ingólfur bendir á að boðskapur Lennons sé talinn sjálfsagður í dag: Baráttan gegn stríði, náttúruspjöllum og kynþáttahatri. „Það merkilegasta sem hann skildi eftir sig var þessi huglæga bylting.“ Dauði hans árið 1980 var heiminum mikið áfall. John Lennon hafði gefið Mark David Chapman eiginhandaráritun fyrr um kvöldið 8. desember. Chapman skaut hann svo fjórum sinnum í bakið. Hann situr enn í fangelsi fyrir verknaðinn. „Lennon hefur fylgt mér í gegnum allt mitt líf og mun fylgja mér alla leið í gröfina,“ segir Ingólfur að lokum. birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Í blóma lífsins þegar hann lést í Fnjóská Innlent Vaktin: Selenskíj heimsótti Ísland og fundaði með forsætisráðherrum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ný könnun: Viðreisn og Flokkur fólksins í hæstu hæðum Innlent Vannærð og veik af áfengisneyslu eftir vetursetu í Evrópu Innlent Þrír fluttir á sjúkrahús eftir þriggja bíla árekstur við álverið Innlent Snorri sakar Hallgrím um ofureinfaldanir Innlent „Getum við verið sammála um að vera ósammála?“ Innlent Smitaðist fimm mánaða en lifir nú eðlilegu lífi Innlent „Er það ekki það sem fíkniefnasali gerir? Selur fíkniefni?“ Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Óttast umsátur og ofbeldi við kjörstaði Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Ísrael gerir loftárás á Íran Víðfrægur rappari grunaður um að ráða launmorðingja Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Enn allt í járnum skömmu fyrir kjördag Stýrivextir ná sögulegu hámarki í Rússlandi Óvinsæll Trudeau ætlar ekki að víkja Gagnrýnd fyrir að heiðra minningu fallinna fasista Musk sagður í reglulegum samskiptum við Pútín Springsteen studdi Harris og Trump ræðir við Joe Rogan Baráttan um Bandaríkin: „Hann veit hvað hann er að gera“ Neitar ekki liðsstyrk frá Norður-Kóreu Leggur til að Menendez bræðrunum verði sleppt á reynslulausn Gerðu loftárásir á Kúrda í Írak og Sýrlandi Einn látinn eftir að lest fór af sporinu í Noregi Sjá meira