Enski boltinn

Stolið af leikmönnum Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Chelsea hefur staðfest að munum hafi verið rænt úr búningsklefa leikmanna á æfingasvæði félagsins í síðasta mánuði. Veskjum, símum og úrum var meðal annars stolið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn á æfingasvæði Chelsea sem er staðsett í Cobham. Málið er nú í rannsókn hjá lögreglunni og segir félagið að enginn innan þess sé grunaður um verknaðinn.

Þennan sama dag mun hafa verið brotist inn á fleiri stöðum í nágrenninu og er talið líklegt að það tengist þjófnaðinum á æfingasvæði Chelsea.

Samkvæmt frétt The Telegraph munu það fyrst og fremst hafa verið leikmenn unglinga- og varaliðs Chelsea sem hafi orðið fyrir barðinu á þjófunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×