Lífið

Love Is­land-stjarna sögð eiga leyni­legan kærasta

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hér má sjá þau Lucindu Strafford og Aaron Connoly. Þau eru talin hafa tekið aftur saman rétt áður en Strafford hélt til Mallorca til að taka þátt í stefnumótaþættinum.
Hér má sjá þau Lucindu Strafford og Aaron Connoly. Þau eru talin hafa tekið aftur saman rétt áður en Strafford hélt til Mallorca til að taka þátt í stefnumótaþættinum. Lucinda Strafford

Love Island-stjarnan Lucinda Strafford er sögð eiga í ástarsambandi við fótboltamanninn, Aaron Connoly, sem bíður hennar heima á meðan hún tekur þátt í stefnumótaþættinum.

Þegar Strafford mætti til leiks á stefnumótaeyjuna Mallorca paraði hún sig saman við verkamanninn, Brad McCelland. Þeirra samband fékk aðdáendur þó til þess að efast um að Strafford væri í þáttunum af réttum forsendum.

Hún var ekki tilbúin til þess að yfirgefa eyjuna með McCelland sem benti til þess að hún væri aðeins á eyjunni fyrir frægðina, en ekki til þess að finna ástina.

Nýlega paraði Strafford sig saman við píparann og fatahönnuðinn, Danny Bibby en hefur einnig augastað á lúxus-viðburðastjórann, Aaron Francis.

Hér má sjá mennina sem Strafford er orðuð við þessa stundina á stefnumótaeyjunni: Danny Bibby og Aaron Francis.Samsett

Sagður glaður að fá að passa hundinn

Heimildarmaður breska tímaritsins The Sun greindi nýlega frá því að Strafford hafi tekið saman við fyrrverandi kærasta sinn, fótboltamanninn, Aaron Connoly, rétt áður en tökur á þáttunum hófust.

Connoly er sagður hafa keyrt Strafford upp á flugvöll á leið á stefnumótaeyjuna. Þá er hann sagður bíða hennar heima og passa hundinn hennar á meðan hún fer á stefnumót fyrir framan áhorfendur úti um allan heim.

„Aaron er bara glaður að fá að passa hundinn hennar. Það lætur honum líða eins og þau séu ennþá par, sem þau eru,“ segir heimildarmaður The Mirror.

Samband Strafford og Connoly er talið vera hernaðarleyndarmál þar sem strangar reglur eru á stefnumótaeyjunni sem kveða á um blátt bann við öðrum ástarsamböndum keppenda.

Hin 21 árs gamla Strafford rekur tískuvöruverslun á netinu. Hún lýsir sjálfri sér sem sambandstýpu og segist hafa skráð sig í þættina vegna þess að hún sé tilbúin til þess að skemmta sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.