Ísland mætti Armeníu á Laugardalsvelli í kvöld og gerðu liðin 1-1 jafntefli. Arnar Þór var nokkuð sáttur við spilamennsku sinna manna og fannst þeir eiga skilið að landa sigri. Landsliðsþjálfarinn var mjög ósáttur með markið sem Ísland fékk á sig í fyrri hálfleik.
„Sérstaklega í ljósi þess að boltinn er kominn út af 45 sekúndum áður,“ sagði Arnar markið.
„Við gerðum tvær breytingar í hálfleik og ég er ánægður með hvernig breytingarnar heppnuðust. Fannst við mun sterkari aðilinn allan síðari hálfleikinn, áttum skilið að jafna og mér fannst við eiga skilið að vinna leikinn.“
„Mér fannst við alls ekki andlausir, fannst hins vegar vanta tempó á boltann. Við vorum mikið meira með boltann en það sem gerist þegar lið eins og Armenía kemst yfir er að þeir byrja að tefja, og gera það mjög vel,“ sagði Arnar Þór um meint andleysi sinna manna í kvöld.
„Mér fannst andinn mjög góður, fannst við grimmari í seinni hálfleik og vorum að vinna fleiri seinni bolta. Það var það helsta sem breyttist, held þetta hafi ekkert með andleysi að gera. Hefur meira með tempó að gera og að koma okkur í góða stöður til að vinna seinni boltann.“
Sá hann eftir því að hafa ekki Ísak Bergmann í byrjunarliðinu?
„Alls ekki, við erum að þróa þessa leikmenn og það er ómögulegt að ætlast til að Ísak Bergmann Jóhannesson, Andri Fannar Baldursson og Andri Lucas Guðjohnsen – þessir yngstu leikmenn í hópnum okkar – byrji alla leiki. Við ræðum við þá fyrir hvern leik og förum yfir þeirra hlutverk. Ég held að það hafi verið mjög góð ákvörðun að byrja með Ísak Bergmann á bekknum í kvöld.“
Er Elías Rafn orðinn aðalmarkvörður íslenska A-landsliðsins?
„Ég hef sagt það undanfarið – raunar síðan Hannes Þór Halldórsson tilkynnti að hann væri hættur – að við erum með þrjá mjög góða markmenn og munum nota mánuðina sem framundan eru til að skoða þá betur. Árið 2022 verður mikilvægt fyrir leikmenn til að eigna sér stöðu í liðinu, það á við um fleiri stöður á vellinum.“
„Elías Rafn (Ólafsson) er á góðum stað núna og er að spila frábærlega með félagsliði sínu. Segja má að hann sé í formi lífs síns þó ungur sér,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, að endingu.