Kristian kom Jong Ajax til bjargar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. mars 2022 22:31 Kristian Hlynsson brást ekki bogalistin á vítapunktinum í kvöld. Rico Brouwer/Getty Images Íslenski U-21 landsliðsmaðurinn Kristian Hlynsson var allt í öllu í endurkomu Jong Ajax er liðið gerði 3-3 jafntefli við Dordrecht í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Kristian lék allan leikinn í „holunni“ hjá Jong Ajax sem komst yfir eftir tæplega hálftíma leik en heimamenn svöruðu með tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiks og voru 2-1 yfir í hálfleik. Heimamenn komust 3-1 yfir þegar klukkutími var liðinn en aðeins tveimur mínútum síðar lagði Kristian upp mark fyrir Christian Rasmussen sem minnkaði muninn í 3-2. Steven Van Der Sloot fékk rautt spjald í liði Jong Ajax þegar fimm mínútur lifðu leiks og útlitið ekki bjart hjá gestunum. Í uppbótartíma fengu gestirnir hins vegar vítaspyrnu, Kristian fór á punktinn og jafnaði metin í 3-3, reyndust það lokatölur leiksins. FT: Dordrecht 3-3 #JongAjax Vos (31') Rasmussen (62') Hlynsson (90+2')#dorjaj pic.twitter.com/hlQeOxaEC1— AFC Ajax (@AFCAjax) March 11, 2022 Jong Ajax er í 5. sæti B-deildarinnar með 53 stig sem myndi hleypa liðinu í umspil en Kristian og félagar mega ekki fara upp um deild þar sem Ajax er í efstu deild.
Fótbolti Hollenski boltinn Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira