Jafnt í Íslendingaslagnum í Noregi Atli Arason skrifar 25. maí 2022 18:00 Alfons Sampsted, leikmaður FK Bodø/Glimt. Getty Images Það var nóg af mínútum hjá íslenskum konum og körlum í norska fótboltanum í dag. Það voru skoruð mörk í öllum leikjum en jafntefli var niðurstaðan í uppgjöri Íslendingaliðanna Bodø/Glimt og Strømsgodset.
Alfons Sampsted, leikmaður Bodø/Glimt, og Ari Leifsson, leikmaður Strømsgodset, voru báðir í byrjunarliði sinna liða og léku allan leikinn í 2-2 jafntefli. Báðir eru þeir í landsliðshópnum sem tilkynntur var í dag ásamt Patriki Gunnarssyni. Patrik og Samúel Kári Friðjónsson voru saman í byrjunarliði Viking sem gerði 1-1 jafntefli við Ham-Kam. Samúel var skipt af leikvelli á 87. mínútu en Patrik lék allan leikinn í marki Viking. Með jafnteflinu fer Viking á topp efstu deildar með 21 stig en liðið hefur leikið tveimur leikjum meira en Lillestørm sem er í öðru sæti með 20 stig. Strømsgodset er í 4. sæti með 14 stig og Bodø/Glimt í því 6. með 13 stig. Það var einnig leikið hjá stelpunum efstu deild í Noregi. Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur í Rosenborg unnu 1-0 sigur á LSK. Selma var í byrjunarliðinu og spilaði fyrstu 69 mínúturnar áður en henni var skipt útaf. Svava Rós Guðmundsdóttir byrjaði inn á hjá Brann en spilaði einungis 26 mínútur í 2-0 sigri á Roa. Ingibjörg Sigurðardóttir, leikmaður Vålerenga spilaði allar 90 mínúturnar í 1-4 útisigri liðsins á Stabæk. Íslendingaliðin raða sér í efstu þrjú sæti deildarinnar. Brann er á toppnum með 31 stig, Vålerenga er í öðru sæti með 28 stig en Rosenborg er í því þriðja með 25 stig. Vålerenga á þó leik til góða á hin tvö liðin.
Norski boltinn Mest lesið „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Handbolti Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Fótbolti Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Enski boltinn Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Fótbolti „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ Handbolti „Þeir spila mjög fast og komast upp með það“ Körfubolti Skar sig mjög illa á andliti og hálsi í slysi á æfingu Sport „Hann er langbesti varnarmaðurinn í þessari deild“ Körfubolti Rose með þriggja högga forystu á Mastersmótinu Golf Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 100-75 | Stólarnir sópuðu Keflvíkingum í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Vilja reka liðsfélaga Rúnars Alex úr landi Hrædd vegna ástandsins og þorði ekki í landsleikina Markvörður Frankfurt átti stórleik á móti Tottenham Onana gaf tvö mörk og United missti af sigri í blálokin Albert hvíldur þegar Fiorentina vann í Slóveníu Leo Beenhakker látinn Strákarnir hans Freys unnu aftur og nú í Íslendingaslag Bodö/Glimt með sögulegt takmark í augsýn Chelsea afgreiddi einvígið í fyrri leiknum í Póllandi Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport Elín Metta má spila með Val Beta barði trommuna í belgísku víkingaklappi Sjáðu glæsimörkin úr Meistaradeildinni í gær Fyndnar hárgreiðslur lykillinn að betri mætingu Besta-spáin 2025: Loftið verður að haldast í blöðrunni Besta spáin 2025: Krókur á móti bragði Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands Salah nálgast nýjan samning Bað Cubarsi afsökunar á því að hafa stolið fyrsta markinu hans Þetta gæti verið best klæddi þjálfari heims Barcelona með annan fótinn í undanúrslitum Aston Villa komst yfir í París en PSG svaraði með þremur mörkum Klopp mætir aftur til Liverpool í næsta mánuði Karólína næstmarkahæst í Þjóðadeildinni Matic: „Onana er einn versti markvörður í sögu United“ Af hverju má Asensio spila í kvöld? Ronaldo syrgir manninn sem uppgötvaði hann England öruggt með fimm sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili „Þið eruð ekki nógu duglegar að tuða í dómurunum“ Sjáðu magnað mark Martínez gegn Bayern Sjá meira