Atalanta tók stig af Ítalíumeisturunum

Atalanta og AC Milan skiptu stigunum á milli sín í kvöld.
Atalanta og AC Milan skiptu stigunum á milli sín í kvöld. Marco Luzzani/Getty Images

Ítalíumeistarar AC Milan björguðu stigi er liðið heimsótti sterkt lið Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 eftir að heimamenn í Atalanta höfðu tekið forystuna í fyrri hálfleik.

Það var Úkraínumaðurinn Ruslan Malinovsky sem kom heimamönnum í Atalanta í 1-0 forystu eftir um hálftíma leik og þannig stóðu leikar þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Alsíringurinn Ismael Bennacer jafnaði hins vegar metin á 68. mínútu eftir stiðsendingu frá Alexis Saelemaekers og þar við sat.

Niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli og bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðir deildarinnar, en AC Milan vann 4-2 sigur gegn Udinese í fyrstu umferð á meðan Atalanta vann 0-2 útisigur gegn Sampdoria.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira