Maðurinn, sem heitir Francisco Oropeza og er 38 ára gamall, hefur verið á flótta undan laganna vörðum frá því að hann framdi ódæðið seint í gærkvöldi. Hann er talinn hafa verið ölvaður og hafa flúð inn í nærliggjandi skóglendi.
Í frétt AP um málið segir að nágrannar hans hafi gefið sig að tali við hann seint í gærkvöldi og beðinn hann að láta af háttsemi sinni þar sem þeir hafi verið á leið í háttinn. Þá hafi hann haldið yfir í næsta hús og skotið fimm úr tíu manna hondúrskri fjölskyldu í höfuðið með hálfsjálfvirkum riffli.
Fórnarlömbin voru á bilinu átta til fjörutíu ára gömul. Greg Capers, lögreglustjórinn í San Jacinto sýslu, segir í samtali við AP að tvær konur hafi fundist látnar ofan á tveimur ósærðum börnum. „Þessar hondúrsku konur lögðust ofan á börnin til þess að bjarga lífi þeirra,“ er haft eftir honum.
Þá segir hann að lögregluyfirvöld á svæðinu hafi áður haft afskipti af manninum eftir að hann hafði verið að skjóta úr riffli í bakgarði sínum.