Innlent

Sóttu örmagna göngumann í Jökultungur

Samúel Karl Ólason skrifar
Aðstæður voru erfiðar fyrir björgunarsveitarfólk í nótt.
Aðstæður voru erfiðar fyrir björgunarsveitarfólk í nótt. Landsbjörg

Hópur Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sinnir hálendisvakt í Landmannalaugum fékk seint í gær boð frá Neyðarlínu um hóp fjögurra göngumanna á Laugaveginum. Þau þurftu aðstoð þar sem einn í hópnum hafði örmagnast og treysti hann sér ekki til að halda áfram.

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að hópurinn hafi farið að Álftavatni þar sem talið var að hópurinn væri á þeim slóðum. Síðar kom í ljós að þau voru í svokölluðum Jökultungum, rétt ofan við skálann við Álftavatn.

Komið var að fólkinu um hálf ellefu í gær en aðstæður voru þá mjög erfiðar þar. Veður var slæmt og rigning mikil. Vegna bleytunnar var mjög hált. Hitt fólkið fékk fylgd í bíla björgunarfólksins og var búið um þann sem örmagnaðist.

Þá varð björgunarsveitarfólki ljóst að það þyrfti liðsauka til að bera manninn niður, eða aðstoð áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Aðstoð þurfti til að koma manninum til Landmannalauga.Landsbjörg

Sveitir á Suðurlandi voru kallaðar út og var liðsauki kominn á staðinn rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Þá var hinn hluti hópsins kominn í skjól í skálanum við Álftavatn, þar sem þau fengu heita drykki og næringu hjá skálavörðum. Maðurinn var kominn í skálann rúmlega hálf þrjú.

Í tilkynningunni segir að fólkið hafi fengið gistingu á Hellu, eftir að hjúkrunarfræðingur hafði metið ástand mannsins sem örmagnaðist. Þá verður hluti búnaðar hópsins, sem var skilinn eftir upp á hálendi, sóttur í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×