Réttarmorð er ný og æsispennandi hljóðsería hjá Storytel Storytel 2. október 2023 10:15 Í dag mánudag kemur út æsispennandi hljóðsería hjá Storytel sem nefnist Réttarmorð. Serían er eftir Sigurstein Másson og inniheldur sex þætti. Réttarmorð eftir Sigurstein Másson er ný og æsispennandi hljóðsería sem fer í loftið hjá Storytel í dag mánudag. Um er að ræða sex þætti sem koma vikulega á Storytel næstu fimm mánudaga.
Þættirnir, sem innihalda um sjö klukkustunda efni, fjalla um Guðmundar- og Geirfinnsmálin sem hafa legið eins og mara á samfélaginu í næstum hálfa öld og flestir landsmenn þekkja. Að sögn Sigursteins Mássonar, höfundar Réttarmorðs, kemur margt nýtt fram í seríunni sem ekki hefur komið fram áður í fyrri umfjöllunum. „Ég hef í þessum þáttum haft tækifæri til að fara mun dýpra í atburðarás og sögupersónur en áður. Gísli Guðjónsson, einn fremsti og þekktasti réttarsálfræðingur heims, er í stóru hlutverki og sömuleiðis Erla Bolladóttir en einnig fjölmargir aðilar sem tekin voru viðtöl við fyrir 26 árum síðan en þá aðeins birt lítill hluti af viðtölunum. Heilmikið hefur líka gerst á þessari öld sem fær ítarlega umfjöllun í þáttunum.“ Upphaf Guðmundar- og Geirfinnsmálanna má rekja til janúar 1974 þegar Guðmundur Einarsson, þá átján ára, hverfur sporlaust. Seinna sama ár hverfur hinn 32 ára Geirfinnur Einarsson en lík þeirra hafa aldrei fundist. Sex ungmenni voru handtekin og dæmd fyrir aðild að mannshvörfum og manndrápum. Fjörutíu árum síðar eru ungmennin sýknuð, öll nema Erla Bolladóttir. Erla Bolladóttir er í stóru hlutverki í Réttarmorði. Mynd/Eva Schram. Sigursteinn segir Guðmundar- og Geirfinnsmálin vera einstök, ekki aðeins á íslenskan mælikvarða heldur á heimsvísu. „Þegar dæmt var í þeim í Hæstarétti 1980 hafði það ekki áður gerst að fólk væri dæmt fyrir morð þótt engin lík eða líkamsleifar væru til staðar, engin morðvopn, vitni eða haldbær sönnunargögn. Það sem gerir þau líka afar sérstök er að þarna var gæsluvarðhaldi og einangrun beitt í þeim mæli að engin slík dæmi finnast annars staðar í heiminum. Sakborningar voru samtals í næstum 17 ár í gæsluvarðhaldi. Það hvernig þýskur lögregluforingi blandast svo inn í rannsóknina er síðan sér kapítuli fyrir sig.“ Sigursteinn Másson er höfundar Réttarmorð. Mynd/Eva Schram. Sævar Cieselski og Erla Bolladóttir eru lykilpersónur í sakamálunum tveimur, baráttunni sem á eftir kom og saga þeirra tveggja er að sögn Sigursteins einskonar rauður þráður í gegnum þættina. „Ég sjálfur blandast síðan inn í atburðarrásina sem fór af stað 1996 með því að Sævar kemur heim til mín með öll málsgögnin og biður mig að skoða þessi mál. Úr urðu tveir heimildarþættir sem vöktu marga til vitundar um alvarlegar brotalamir í rannsókn og meðferð sakborninga.“ Mynd/Eva Schram. Hann segir áheyrendur eiga von á afar upplýsandi og spennandi seríu. „Ég held ég geti með góðri samvisku sagt að hér sé um að ræða þá allra ítarlegustu ljósvakaumfjöllun sem farið hefur verið út í um Guðmundar- og Geirfinnsmálin frá upphafi.“ Mynd/Eva Schram. Þættirnir varpi þannig ljósi á fjölmörg ný atriði í málunum sem sýna, svo ekki verður um villst, hve illa út af sporinu lögregla, saksóknari og dómstólar fóru í þessum undarlegu málum. „En ekki bara þessir aðilar heldur einnig stjórnmálamenn og fjölmiðlar. Ég trúi því að áheyrendur, sem ýmist þekkja málin lítið sem ekkert eða telja sig þekkja þau býsna vel, munu finna í þáttunum spennandi og áhrifamiklar frásagnir og borðleggjandi staðreyndir sem koma á óvart og munu hreyfa við þeim.“
Bókmenntir Menning Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Má augnskugginn þinn fara í kringum augun? Myndaveisla frá Kótilettunni þar sem Bylgjulestin var í beinni Spennandi ferðir til Taílands og Balí í haust Bylgjulestin á Kótelettunni Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar! Rómantísk bylgja í lestri með hækkandi sól Einstök upplifun í sveitasælu Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna Myndaveisla frá Akureyri þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin verður í beinni frá Akureyri Nova klippir kaffiverðið Bylgjulestin var í beinni frá Humarhátíðinni Nýjar merkjavörur í hverri viku á Pop up markaði Optical Studio Nú set ég mig í fyrsta, annað og þriðja sætið Bylgjulestin á Humarhátíðinni um helgina Látum ekki lúsmýið skemma fyrir okkur gleðina - Bitin burt Sólgleraugu og umgjarðir á 40-70% afslætti - Pop up Optical Studio Hægðirnar segja til um heilsufarið – rétt fóður mikilvægt Hefði ekki trúað áhrifunum! Frábær stemming á Jósmessuhátíð á Eyrarbakka Farðu ljómandi í sumarið! Það má leika sér með matinn Bylgjulestin mætir á Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka um helgina „Finnst ég geta afkastað mun meira yfir daginn“ Heimili myndast þegar fjölskyldan ver tíma þar saman Bylgjulestin í bongóblíðu á Þingvöllum Myndaveisla: Enn eitt vel heppnað Streetball mót X977 Allt sem þú þarft fyrir Midsummer hátíðina Bylgjulestin verður á Þingvöllum laugardaginn 15. júní Viltu bæta svefngæði þín? Sjá meira