Tíu leik­menn Chelsea héldu út gegn Brighton

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Enzo Fernandez skoraði tvívegis fyrir Chelsea í dag.
Enzo Fernandez skoraði tvívegis fyrir Chelsea í dag. Visionhaus/Getty Images

Chelsea vann mikilvægan 3-2 sigur er liðið tók á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Enzo Fernandez kom heimamönnum í Chelsea yfir með skallamarki á 17. mínútu leiksins áður en Levi Colwill tvöfaldaði forystu þeirra bláklæddu fjórum mínútum síðar með sínu fyrsta marki fyrir félagið.

Facundo Buonanotte minnkaði þó muninn fyrir Brighton á 43. mínútu áður en Conor Gallagher nældi sér í sitt annað gula spjald í liði Chelsea á lokamínútu fyrri hálfleiks og þar með rautt. Heimamenn þurftu því að leika allan seinni hálfleikinn manni færri.

Þrátt fyrir liðsmuninn náðu heimamenn að ná tveggja marka forystu á ný þegar Enzo Fernandez skoraði sitt annað mark í leiknum og þriðja mark Chelsea. Enzo skoraði þá af miklu öryggi af vítapunktinum þegar um 25 mínútur voru til leiksloka.

Joao Pedro minnkaði muninn fyrir Brighton á ný á annarri mínútu uppbótartíma, en þar við sat og niðurstaðan varð 3-2 sigur Chelsea sem nú situr í tíunda sæti deildarinnar með 19 stig eftir 14 leiki, þremur stigum minna en Brighton sem situr í áttunda sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira