Eldur í toppi turns reyndist vera net Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. desember 2023 22:36 Maður var handtekinn fyrir óspektir í kjölfarið. EPA/Peter Powell Maður hefur verið handtekinn á Englandi eftir að tilkynning um eldsvoða í hinum fræga Blackpool-turni reyndist vera appelsínugult net að blakta í vindinum.
Guardian greinir frá því að slökkviliðsteymi hafi mætt á vettvang eftir tilkynningu um eldsvoða á útsýnispalli turnsins. Um tveimur klukkustundum síðar kom í ljós að ekki hafi verið um eldsvoða að ræða heldur blakandi net appelsínugult á litinn. Police arrest man at foot of Blackpool Tower after historic landmark goes up in flames https://t.co/SDUNZgbd82 pic.twitter.com/b8VXXzbFfy— Daily Mail U.K. (@DailyMailUK) December 28, 2023 Í færslu á Facebook sagði lögreglan í Lancashire að toppur turnsins hefði verið lokaður vegna viðgerða og væri því illfær. Einnig að þyrlu hefði verið flogið yfir turninn og staðfest að enginn eldur væri. „Við getum staðfest að það sem sést er appelsínugult net. Einn maður hefur verið handtekinn fyrir óspektir og verið er að flytja hann í gæsluvarðhald,“ skrifar þarlend lögregla í tilkynningu sinni. Blackpool-turn, sem var vígður árið 1894, er eitt frægasta kennileiti Englands og gríðarlega vinsæll áfangastaður ferðamanna. Í turninum er sjávarlífssafn, dýflissa, vaxmyndasafn Madame Tussauds og tívolí.
England Bretland Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Sjá meira