Enski boltinn

Liverpool lánar Carvalho strax aftur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fabio Carvalho á æfingu með RB Leipzig en hann fann sig ekki þar.
Fabio Carvalho á æfingu með RB Leipzig en hann fann sig ekki þar. AP/Jan Woitas

Fábio Carvalho var ekki lengi hjá Liverpool eftir að þýska félagið RB Leipzig sagði upp lánssamningi sínum.

Liverpool hefur lánað hann strax aftur en nú til Hull City í ensku b-deildinni.

Carvalho lék aðeins níu leiki með Leipzig og var bara einu sinni í byrjunarliðinu. Hann náði hvorki að skora né leggja upp mark.

Hull City fær þó engan kauprétt í þessum samningi og Liverpool sér því fyrir sér framtíð fyrir hann hjá félaginu.

Carvalho er 21 árs gamall og er með samning við Liverpool til 2027.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×