Innlent

Ráðin samskiptastjóri Haf­ró

Atli Ísleifsson skrifar
Dóra Magnúsdóttir.
Dóra Magnúsdóttir. Hafró

Dóra Magnúsdóttir hefur verið ráðin í nýtt starf samskiptastjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna.

Frá þessu segir að í tilkynningunni. Fram kemur að Dóra hafi yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviði samskipta og almannatengsla. 

„Hún hefur einnig reynslu af markaðsmálum, vef-, verkefna- og viðburðastjórnun sem og blaðamennsku og leiðsögn. Dóra er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA), gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og viðskipta- og markaðsfræði frá Interactive Marketing and Multimedia Academy í Danmörku auk þess að vera með B.Sc.gráðu í landfræði frá HÍ.

Áður en Dóra hóf störf hjá Hafrannsóknarstofnun starfaði hún sem fræðslu- og kynningarstjóri hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð. Þar bar hún ábyrgð á námskeiðahaldi stofnunarinnar og öðrum fræðslumálum ásamt kynningar- og vefmálum, samfélagsmiðlum, þróun rafrænnar miðlunar og almannatengslum,“ segir í tilkynningunni. 

Ennfremur segir að 49 manns hafi sótt um stöðuna og hafi Dóra verið valin úr hópi umsækjenda eftir vandað og ítarlegt umsóknarferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×