Þetta segir í fréttatilkynningu frá almannavörnum. Þar segir að skipulagi hafi verið breytt í framhaldi af uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar þar sem fram hafi komið að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hefðu aukist.
Aðkoma að Grindavík næstu daga verði bæði um Suðurstrandarveg og Nesveg en þegar ekið er frá Grindavík verði það um Norðurljósaveg inn á Grindavíkurveg. Á lokunarpóstum verði starfsfólk sem skannar QR kóðann hjá öllum sem fara inn í bæinn, með þeim hætti sé vitað hversu margir eru í Grindavík hverju sinni
Byrjað hafi verið að sinna beiðnum um aðstoð og sú vinna haldi áfram þar til öllum beiðnum hefur verið sinnt. Þegar aðstoð við íbúa, sem hafa óskað efir henni verður veitt þá verði það óháð fyrirframákveðnum tímaáætlunum og hólfaskiptingu. Þegar íbúi fær boð um aðstoð fái hann QR kóða fyrir þann dag.
Kóðarnir virka áfram
Hér að neðan má sjá uppfærða tímaáætlun fyrir næstu daga. Í tilkynningu segir að þeir sem eiga þá tíma sem sjá má hér að neðan geti nýtt þá QR kóða sem þeir hafa þegar fengið.
Vinna við beiðnir fyrirtækja sé einnig í vinnslu en hér að neðan fram hvernig skipulagið er næstu daga.
Þriðjudagur 06.02. kl 09:00-15:00
Einstaklingar og einyrkjar:
V1(Árnastígur og Skipastígur)
V4 (Litluvellir, Hólavellir, Sólvellir, Blómsturvellir og Höskuldavellir)
G2 (Ásabraut 14 og 16, Fornavör, Suðurvör, Norðurvör og Staðarvör)
H1 (Víkurhóp nema númer 24,26 og 28)
I2 (Túngata að frátöldum húsum nr. 23 og 25)
Þórkötlustaðir (A1,2,3 og B1)
Fyrirtæki:
Fyrirtæki í V4 – haft samband við viðkomandi
G5 opið fyrir öll fyrirtæki
S4 opið fyrir fyrirtæki sem ekki eru X merkt á korti
Miðvikudagur 07.02 kl 09:00-15:00
Einstaklingar og einyrkjar:
G4 (Laut, Dalbraut, Víkurbraut 19, 21 og 21a)
V5 (Efstahraun, Gerðavellir 1,3,5,7,9,11,13,15) Iðavellir
L5 ( Borgarhraun, Arnarhraun, Hraunbraut, Skólabraut)
H3 (Norðurhóp, Víkurhóp 24,26 og 28)
I3 (Mánagata 1-15, Marargata, Ránargata og Mánasund)
Fyrirtæki:
I5 og I6
Fimmtudagur 8.02 kl. 09:00-15:00
Einstaklingar og einyrkjar (hólf):
V2
H4
I4
L2
G5
Fyrirtæki – verið að fara yfir beiðnir.