Fótbolti

Enskir stuðnings­menn sungu til tví­fara Southgate

Stefán Árni Pálsson skrifar
Southgate hefur verið mjög umdeildur landsliðsþjálfari en er kominn með Englendinga í úrslit annað Evrópumótið í röð.
Southgate hefur verið mjög umdeildur landsliðsþjálfari en er kominn með Englendinga í úrslit annað Evrópumótið í röð. Vísir/X/Getty

Eins og margir sáu eru Englendingar komnir í úrslit á Evrópumótinu í Þýskalandi. Liðið vann Holland 2-1 í undanúrslitum á Westfalen vellinum í Dortmund í gærkvöldi, 2-1.

Mörk Englendinga gerðu þeir Harry Kane og Ollie Watkins.

Tugþúsundir enskir stuðningsmenn sáu leikinn og voru í borginni yfir daginn í gær. Myndband af enskum stuðningsmönnum að syngja stuðningslag þjálfarans Gareth Southgate í borginni í gær hefur vakið athygli á X-inu.

Ástæðan fyrir því er að hópurinn er að syngja lagið fyrir framan þýskan lögreglumann sem líkist þjálfaranum töluvert eins og sjá má hér að neðan.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×