Erlent

Stefna Starmers mörkuð í ræðu konungs

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Margar hefðir tengjast athöfninni sem eiga margar hverjar rætur sínar að rekja mörghundruð ár aftur í tímann.
Margar hefðir tengjast athöfninni sem eiga margar hverjar rætur sínar að rekja mörghundruð ár aftur í tímann. EPA/Andy Rain

Í dag hefur breska þingið störf eftir stórsigur Verkamannaflokksins í kosningum fyrr í mánuðinum. Eins og hefð er fyrir heldur Karl III Bretakonungur ræðu í þinghúsinu við tilefnið. Ræða konungs er eins konar stefnuyfirlýsing nýviðtekinnar ríkisstjórnar og er skrifuð af ríkisstjórnarliðum.

Ræða konungs er eins konar stikla af komandi störfum ríkisstjórnarinnar þar sem farið er yfir stefnur og mögulega löggjöf sem hún hyggst gera á kjörtímabilinu. Síðast í nóvember flutti konungur ræðu Rishi Sunaks þáverandi forsætisráðherra en nú er Keir Starmer tekinn við.

Konungurinn mun fara frá Buckingham-höll í gullhúðaða vagni konungsins í þinghúsið. Þá verður kórónan sett á höfuð honum og hann sest í hásætið. Ræðan verður flutt úr hásæti konungs klukkan 10:30 á íslenskum tíma.

Ræðuhöldunum fylgja alls konar skrautlegar og sögulegar athafnir sem fylgjast má með í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan.

Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins er búist við að konungurinn muni afhjúpa ríflega 35 frumvörp ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnarliðar Verkamannaflokksins hafa sagt að þeir muni einblína á að bæta lífsskilyrði verkafólks og að metnaðarfull löggjafaráætlun sé í smíðum.

Í ofangreindri metnaðarfullri löggjafaráætlun felst meðal annars frumvarp um að koma breskum lestarsamgöngum aftur í eigu hins opinbera þegar samningar ríkisins við einkarekstraraðila renna út. Verkamannaflokkurinn stefnir að því að sofna nýtt opinbert félag sem ber nafnið Great British Railways eða Stórbreskar járnbrautir sem mun hafa umsjón með lestarsamgöngum í landinu.

Þá er einnig á döfinni ný áætlun í húsnæðis- og innviðauppbyggingu ásamt frumvarpi um frekara valdaafsal til ríkisstjórna Skotlands, Wales og Norður-Írlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×