Fótbolti

Sótti inn­blástur til sonarins

Valur Páll Eiríksson skrifar
Þorsteinn Halldórsson segir sigur karlalandsliðsins á Englandi hafa verkað sem hvatning.
Þorsteinn Halldórsson segir sigur karlalandsliðsins á Englandi hafa verkað sem hvatning. Vísir/Vilhelm

Einbeitingarskortur Þjóðverja í aðdraganda leiks liðsins gegn Íslandi gaf stelpunum okkar byr undir báða vængi samkvæmt landsliðsþjálfurunum. Sigurmark sonar landsliðsþjálfarans verkaði sem innblástur.

Stelpurnar okkar unnu einn fræknasta sigur íslensks liðs, hvort sem er landsliðs eða félags, þegar Þjóðverjar voru lagðir að velli 3-0 á Laugardalsvelli fyrir sléttri viku. Landsliðsþjálfararnir Þorsteinn Halldórsson og Ásmundur Haraldsson segja óreiðu í kringum þýska liðið í aðdragandanum hafa gefið íslensku stelpunum innspýtingu.

„Það voru nokkur atriði á dögunum á undan, að það var búið að tilkynna Ólympíuhópinn þeirra, það var skrýtið. Allar fréttir á heimasíðunni þeirra voru um Ólympíuleikana og hverjar yrðu skyldar eftir heima,“ segir Ásmundur Haraldsson í samtali við Helenu Ólafsdóttur í Bestu upphituninni, sem birt var á Vísi fyrr í dag.

„Ég held það hafi bara verið 15 leikmenn sem mættu okkur sem voru á leið á leikana. Þannig að hluti af hópnum þarna sem var ekki að fara. Það voru allskonar þættir sem spiluðu inn í,“

„Veðrið var greinilega eitthvað að trufla þær, völlur og veður og örugglega vextir og verðbólga,“ segir Ásmundur kíminn.

Sonurinn og hinir strákarnir innblástur

Leikur karlalandsliðsins við England örfáum vikum fyrr verkaði sem gott dæmi og hvatti kvennalandsliðið áfram fyrir leikinn við Þýskaland. Það vill svo til að sonur Þorsteins, Jón Dagur Þorsteinsson, skoraði sigurmarkið gegn Englandi sem verkaði sem innblástur fyrir föður hans.

„Ég hugsaði það eftir að hafa séð Ísland-England, sem var síðasti leikur Englendingas fyrir EM, þá hugsaði maður að leikmennirnir og starfsliðið og allt í kring, var ekki með hugann við það að leikurinn skipti máli,“

„Ég hugsaði England-Ísland, við erum að fara að gera þetta sama og fara og vinna þetta. Ég held að það hafi styrkt okkur í trúnni, að við myndum vinna þetta,“ segir Þorsteinn.

Hluta úr viðtalinu úr Sportpakka kvöldsins má sjá að ofan. Að neðan má sjá Bestu upphitunina í heild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×