Körfubolti

Westbrook til liðs við Nuggets

Siggeir Ævarsson skrifar
Russell Westbrook og Vlatko Cancar kljást í leik Clippers og Nuggets í vetur. Þeir verða væntanlega liðsfélagar næsta vetur en Cancar skrifaði undir nýjan samning við Nuggets 9. júlí
Russell Westbrook og Vlatko Cancar kljást í leik Clippers og Nuggets í vetur. Þeir verða væntanlega liðsfélagar næsta vetur en Cancar skrifaði undir nýjan samning við Nuggets 9. júlí Vísir/AP

Eins og við var búist er Russell Westbrook genginn til liðs við Denver Nuggets. Westbrook, sem er 36 ára að verða, semur til tveggja ára.

Westbrook var á dögunum skipt til Utah Jazz frá LA Clippers en var leystur undan samningi nánast samstundis. Nuggets verður sjötta liðið sem Westbrook leikur með á ferlinum.

Hjá Nuggets hittir Westbrook fyrir einn besta leikmann NBA deildarinnar, Nikola Jokic, sem leiddi liðið til síns fyrsta meistaratitils árið 2023. Liðið datt út í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í ár þegar liðið tapaði í sjö leikja seríu gegn Minnesota Timberwolves.

Westbrook var á sínum sokkabandsárum einn öflugasti leikmaður deildarinnar en tímabilin 2015-16 og 2016-17 var hann að meðaltali með þrefalda tvennu og er eini leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem hefur afrekað það.

Töluvert hefur þó hægst á Westbrook nú þegar ferilinn siglir inn í sólarlagið og má passlega reikna með að hann muni taka að sér aukahlutverk af bekknum hjá Nuggets.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×