Tíska og hönnun

Ofurskvísur heimsins í ís­lenskri skóhönnun

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið hátískustemning á viðburði KALDA á tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Það var mikið hátískustemning á viðburði KALDA á tískuvikunni í Kaupmannahöfn. SAMSETT

Áhrifavaldar Danmerkur flykktust að þegar hönnuðurinn Katrín Alda frumsýndi nýja KALDA skólínu í Kaupmannahöfn á tískuvikunni og andrúmsloftið einkenndist af hátískustemningu. Blaðamaður var á svæðinu og ræddi við Katrínu Öldu.

Viðburðurinn var haldinn í samvinnu við danska ljósmyndarann og áhrifavaldinn Freju Wever sem er búin að vera vinkona merkisins í mörg ár. Hún myndaði nýju línuna í samstarfi við Issue Issue magazine og voru þær myndir til sýnis ásamt línunni sjálfri.

Myndirnar voru í risa stærð á veggjum sýningarsalsins og eru ofur töff.Freja Wever

„Ég elska alltaf támjóa skó en við erum að koma með nokkur ný form fyrir vor/sumarlínuna 2025. Við erum að bæta við opnum svokölluðum nöktum skóm (e. naked shoe) og kork undirlagi í fyrsta skipið sem lítur út fyrir að vera mjög einföld hönnun en hún tók akkúrat ár í þróun.

Við erum líka að halda áfram að þróa og stækka töskulínuna okkar þar sem þær hafa fengið mjög góðar viðtökur og erum að bæta við 4 nýjum stílum fyrir SS25. Við ætlum svo að fagna línunni líka hér heima á fimmtudaginn á 101 Hótel frá 16:00 til 18:00 og er viðburðurinn opinn öllum,“ segir Katrín Alda. 

KALDA skórnir hafa verið vinsælir víða um heim í dágóða stund og sést á súperstjörnum á borð við leikkonuna Emmu Corrin, súperskvísunni Juliu Fox, ofurfyrirsætu systrunum Bellu og Gigi Hadid og svo lengi mætti telja.

Hér má sjá vel valdar myndir frá tískuteitinu:

Freja Wever og Katrín Alda.Aðsend
Danskir áhrifavaldar fjölmenntu í skvísuteiti KALDA.Aðsend
Freja Wever til hægri í nýrri hönnun KALDA.Aðsend
Skvísustund.Aðsend
Þessi skemmti sér vel.Aðsend
Sólin skein á tískuvikunni.Aðsend
Katrín Alda til vinstri á spjalli.Aðsend
Viðburðurinn var vel sóttur.Aðsend
Þessir voru í sömu litapallettu.Aðsend
Fólk mætti í töff pússi.Aðsend
Fólk var duglegt að mynda skóna.Aðsend
Skvísur í stuði!Aðsend
Aðsend
Rýmið var minimalískt og hið glæsilegasta.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×