Upp­gjörið: Santa Coloma - Víkingur 0-0 | Engin flug­elda­sýning en sætið tryggt

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Víkingar eru komnir í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Víkingar eru komnir í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar. vísir/Diego

Íslandsmeistarar Víkings gerðu markalaust jafntefli er liðið heimsótti Santa Coloma í seinni leik liðanna í baráttu um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.

Óhætt er að segja að fyrri hálfleikur hafi verið viðburðarlítill. Íslandsmeistararnir voru rólegir í tíðinni og heimamenn í Santa Coloma fengu að klappa boltanum.

Heimamenn sköpuðu sér einstaka hálffæri fyrir hlé, en náðu aldrei að ógna marki Víkinga að viti. Á sama tíma fóru Víkingar varla yfir miðju og því var staðan enn 0-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Seinni hálfleikur bauð svo að miklu leyti upp á það sama og sá fyrri. Heimamenn í Santa Coloma voru mikið með boltann og sköpuðu sér einstaka hálffæri, en Víkingar tóku því rólega á sínum eigin vallarhelmingi.

Víkingar fengu reyndar eitt ágætisfæri þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Viktor Örlygur fékk þá nánast opinn skalla inni á markteig, en sneiddi boltann framhjá.

Líkt og í fyrri hálfleik létu færin á sér standa og niðurstaðan varð að lokum markalaust jafntefli. Þau úrslitnægðu Víkingum, og rúmlega það, enda vann Víkingur fyrri leikinn 5-0.

Víkingur er þar með á leið í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu þar sem Íslandsmeistararnir geta mætt liðum á borð við Chelsea, FCK og Gent.

Atvik leiksins

Atvik leiksins átti sér stað á 39. mínútu þegarYoussef El Ghazouifór í heldur glæfralegatæklingu og klippti Gísla Gottskálk niður. El Ghazoui fór með takkana á undan sér og ef hann hefði farið af öllu afli í Gísla hefði líklega verið hægt að dæma rautt spjald.

Stjörnur og skúrkar

Í jafn tíðindalitlum leik og þessum er nánast ógjörningur að velja stjörnur eða skúrka. Marka- og nánast færalaust á Estadio Nacional og því fær enginn sérstakt hrós, né last.

Dómarinn

Atilla Karaoglan og tyrkneska dómarateymið hafði í raun í nógu að snúast þrátt fyrir tíðindalítinn leik. Karaoglan veifaði spjöldum eins og óður maður, en líklega er lítið hægt að setja út á frammistöðu tyrkneska teymisins.

Stemning og umgjörð

Stemningin á Estadio Nacional var ekki upp á marga fiska, enda var langt frá því að vera vel mætt á völlinn. Umgjörðin á vellinum var ábyggilega góð, en stemningin var klárlega heldur róleg.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira