Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Sig­ríði Ey­rúnu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lögreglan lýsir eftir Sigríði Eyrúnu Heiðarsdóttur, 14 ára stúlku sem talið er að sé klædd í dökkbláar gallabuxur, svartan hlýrabol og bleika Crocs-skó.
Lögreglan lýsir eftir Sigríði Eyrúnu Heiðarsdóttur, 14 ára stúlku sem talið er að sé klædd í dökkbláar gallabuxur, svartan hlýrabol og bleika Crocs-skó.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinni fjórtán ára Sigríði Eyrúnu Heiðarsdóttur. Talið er að hún sé klædd í dökkbláar gallabuxur, svartan hlýrabol og bleika crocs-skó.

Sigríður, sem er grannvaxin og 165 sentímetrar á hæð, er með brúngræn augu og millisítt dökkt hár. Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík seint á miðvikudagskvöld. 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Sigríðar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×