Enski boltinn

Tuchel tekur við enska lands­liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Thomas Tuchel verður þriðji útlendingurinn til að stýra enska landsliðinu.
Thomas Tuchel verður þriðji útlendingurinn til að stýra enska landsliðinu. getty/Matthias Hangst

Þjóðverjinn Thomas Tuchel verður næsti þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta. 

Frá þessu greinir The Times nú undir kvöld. Samkomulag er í höfn og búist við opinberri yfirlýsingu á næstunni. Tuchel opnaði á það í júlí að taka við enska landsliðinu og nú er það frágengið.

Lee Carsley hefur stýrt enska landsliðinu í síðustu fjórum leikjum þess, eða síðan Gareth Southgate hætti í sumar. Litlar líkur voru hins vegar taldar á því að Carsley yrði ráðinn landsliðsþjálfari Englands til frambúðar.

Tuchel hefur verið án starfs síðan hann hætti hjá Bayern München í maí.

Enska knattspyrnusambandið hafði áhuga á að fá Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, sem næsta landsliðsþjálfara en svo virðist sem hann hafi ekki verið klár í slaginn.

Tuchel verður þriðji útlendingurinn til að stýra enska landsliðinu, á eftir Sven-Göran Eriksson og Fabio Capello.

Tuchel, sem er 51 árs, hefur ekki þjálfað landslið áður. Á ferli sínum hefur hann stýrt Mainz 05, Borussia Dortmund og Bayern í heimalandinu, Paris Saint-Germain í Frakklandi og Chelsea á Englandi. Hann vann deildartitla með PSG og Bayern og stýrði Chelsea til sigurs í Meistaradeild Evrópu 2021.

Uppfært klukkan 17:50, eftir frétt The Times um að samkomulag væri í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×