Innlent

Sigurður Ingi fær inn­viða­ráðu­neytið og Bjarni hin tvö

Kolbeinn Tumi Daðason og Jón Þór Stefánsson skrifa
Svandís Svavarsdóttir mætir til síðasta ríkisstjórnarfundar síns, í bili hið minnsta.
Svandís Svavarsdóttir mætir til síðasta ríkisstjórnarfundar síns, í bili hið minnsta. Vísir/vilhelm

Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna komu saman til ríkisstjórnarfundar í síðasta sinn klukkan síðdegis í dag. 

Að fundinum loknum var tilkynnt hvernig ráðuneytum Vinstri grænna yrði skipt þar sem þeir ætla að hætta í samstarfinu. Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra, mun taka við innviðaráðuneytinu og Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun taka við félags- og vinnumarkaðráðuneytinu sem og matvælaráðuneytinu.

Þannig mun ríkisstjórnin verða fram að kosningunum 30. nóvember næstkomandi.

Hægt er að horfa á beina útsendingu í spilara hér að neðan. Þá verður hægt að fylgjast með helstu tíðindum í vaktinni þar fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×