Það var lítið um litadýrð á Academy Museum Gala um helgina en það vantaði ekki glamúrinn.SAMSETT
Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles.
Viðburðurinn er fjáröflun fyrir starfsemi safnsins. Paul Mescal, Rita Moreno og Quentin Tarantino hlutu heiðursverðlaun kvöldsins og gestalistinn var vægast sagt stjörnum prýddur.
Stórstjörnur á borð við Nicole Kidman, Salma Hayek, Eva Longoria, Tyler Perry, Kirsten Dunst, Ariana Grande, Demi Moore og Saoirse Ronan komu að skipulagningu hátíðarinnar og meðal gesta voru Kardashian fjölskyldan, Selena Gomez, Cara Delevigne, Pamela Anderson og svo lengi mætti telja.
Svörtu og hvítu litirnir voru hvað vinsælastir í klæðaburði stjarnanna í bland við mýkri jarð- og pastel liti og var gala þemað tekið alla leið.
Hér má sjá myndir af nokkrum stjörnum kvöldsins sem skinu skært:
Cynthia Erivo tróð óvænt upp á galakvöldinu en hún fer með hlutverk í nýrri útgáfu af kvikmyndinni Wicked. Hún klæddist glæsilegum grænum kjól frá Louis Vuitton.Taylor Hill/FilmMagicSöngkonan og leikkonan Ariana Grande algjör dúlla í doppum. Kjóllinn er sérhannaður frá tískurisanum Balmain.Michael Buckner/Variety via Getty ImagesLeikkonan og sjarmatröllið Natasha Lyonne í Valentino.Taylor Hill/FilmMagicHin eina sanna Kim Kardashian í einstöku fitti frá tískurisanum Mugler, úr línu frá 1998.Amy Sussman/Getty ImagesStórleikkonan Nicole Kidman algjör gala gella í kjól úr hátískulínu Balenciaga.Amy Sussman/Getty ImagesMichaela Jae Rodriguez stórglæsileg í glitrandi galakjól frá Georges Chakra.Taylor Hill/FilmMagicKylie Jenner algjör bomba í kjól frá Mugler, sömuleiðis úr línu tískurisans frá 1998 eins og systir hennar Kim.Amy Sussman/Getty ImagesHlaðvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Addison Rae glæsileg í gegnsæjum og bláum kjól frá Alberta Ferretti.Taylor Hill/FilmMagicLeikstjórinn Quentin Tarantino ásamt listagyðju hans stórleikkonunni Uma Thurman. Tarantino fékk heiðursverðlaun á galakvöldinu.Matt Winkelmeyer/WireImageCara Delevingne brýtur normið og rokkar stuttan galakjól frá Celine.Taylor Hill/FilmMagicRita Moreno var heiðruð af Academy Museum. Hún er stórglæsileg í drapplitaðri dragt frá Dior.Taylor Hill/FilmMagicSaoirse Ronan flott í Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty ImagesLeikkonan og grínistinn Aubrey Plaza bleik bomba með slaufu á í Miu Miu.Taylor Hill/FilmMagicNorska leikkonan Renate Reinsve æðislega flott í listrænum gullkjól frá Louis Vuitton.Amy Sussman/Getty ImagesLeikarinn Paul Mescal var heiðraður sem rísandi stjarna og rokkaði glæsileg Gucci jakkaföt.Kevin Winter/GA/The Hollywood Reporter via Getty ImagesÓskarsverðlaunahafinn Da'Vine Joy Randolph bleikur draumur í Louis Vuitton.Michael Buckner/Variety via Getty ImagesKjúklingadrottningin Amelia Dimoldenberg sem heldur uppi spjallþættinum Chicken shop date er orðin algjör súperstjarna og rokkaði hér svartan gala síðkjól.Taylor Hill/FilmMagicZoe Saldana í mjög framúrstefnu fitti frá Harris Reed.Gilbert Flores/WWD via Getty ImagesSelena Gomez í leðri og flauel í dökkbláum síðkjól frá goðsögninni Alaïa.Gilbert Flores/WWD via Getty ImagesGrey's stjarnan Sandra Oh í svörtu og hvítu frá Giambattista Valli.Taylor Hill/FilmMagicRaunveruleikastjarnan og súpermódelið Kendall Jenner stórfengleg í Schiaparelli.Amy Sussman/Getty ImagesPamela Anderson heldur áfram að rokka ófarðað andlit og er skínandi í kjól frá The Row.Taylor Hill/FilmMagicAðþrengda eiginkonu-stjarnan Eva Longoria í framúrstefnulegum kjól frá Georges Hobeika.Taylor Hill/FilmMagic