Innlent

Fjölgar í hópi al­var­lega veikra barna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mánagarður er við Eggertsgötu í Reykjavík.
Mánagarður er við Eggertsgötu í Reykjavík. Vísir/Einar

Af sjö börnum úr leikskólanum Mánagarði sem liggja inni á Barnaspítala Hringsins með staðfesta E.coli-sýkingu eru tvö alvarlega veik. Tíu eru með staðfesta sýkingu.

Þetta staðfestir Andri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Landspítalans, í samtali við fréttastofu. Fyrsta barnið greindist síðdegis á þriðjudag.

Alvarleg veikindi koma oft síðar fram eftir smit. Veikindin hefjast með niðurgangi sem fljótt verður blóðugur. Bakterían framleiðir eiturefni sem valda bólgum og blæðingum frá görn. Sérfræðingur á barnaspítalanum sagði við fréttastofu í gær það alvarlegast ef efnið kemst í nýrun, og valdi þar skaða.

Sjö börn liggja inni á spítalanum með misalvarleg einkenni. Búið er að senda nokkur sýkt börn heim en þau eru þó enn undir eftirliti. 

Leiðbeiningar til foreldra barna vegna iðrasýkingar af völdum E. coli (STEC) eru m.a.:

Ef barn er algjörlega einkennalaust þá má það gera allt eins og venjulega. Passa þarf vel handþvott og almennt hreinlæti sérstaklega kringum bleyjuskipti ef það á við. Góð regla er að þvo alltaf hendur vel fyrir og eftir mat.

Ef barn er með lítil eða væg einkenni iðrasýkingar þá skal hafa samband við upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar í síma 1700 til að fá frekari leiðbeiningar. Mikilvægt er að barnið drekki vel.

Ef barn er með mikil einkenni iðrasýkingar svo sem svæsinn niðurgang eða blóðugan niðurgang, uppköst eða kviðverki eða er slappt og meðtekið þá hafa samband við bráðamóttöku barna á Landspítala.

Um 120 börn eru á leikskólanum Mánagarði sem hefur verið lokað í kjölfar smitanna. Hann er rekinn af Félagsstofnun stúdenta en verið er að taka sýni úr matvælum á leikskólanum og reyna að rekja hvaðan bakterían sem veldur sýkingunni kemur.


Tengdar fréttir

Greina matinn sem börnin á Mánagarði borðuðu

Mikil vinna stendur yfir hjá Matvælastofnun, embætti sóttvarnalæknis og heilbrigðiseftirlitinu við að leita að uppruna sýkingar sem leitt hefur til veikinda barna á leikskólanum Mánagarði. Þó nokkur börn hafa verið lögð inn á Landspítalann. Sterkar vísbendingar eru um orsök smitsins. Leikskólastjóri lítur málið alvarlegum augum en fyrsta barnið greindist síðdegis í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×