Innlent

For­sætis­ráð­herra tók á móti Selenskíj á Þing­völlum

Kjartan Kjartansson og Vésteinn Örn Pétursson skrifa
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók á móti Selenskíj Úkraínuforseta á Þingvöllum.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók á móti Selenskíj Úkraínuforseta á Þingvöllum. Vísir/Vilhelm

Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, er kominn til landsins. Hér mun hann funda með norrænum forsætisráðherrum á Þingvöllum og ávarpa Norðurlandaráðsþing. Mikill öryggisviðbúnaður er vegna heimsóknar Selenskíj og annarra erlendra ráðamanna.

Selenskíj kom til fundar við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á Þingvöllum um klukkan fjögur. Hann er nú haldinn til fundar með öðrum norrænum forsætisráðherrum á Þingvöllum. Hann ávarpar einnig fulltrúa á þingi Norðurlandaráðsins á morgun.

Hér að neðan má sjá þegar Selenskíj mætti til fundar við Bjarna. 

Bein textalýsing frá heimsókn Selenskíj er hér fyrir neðan. Birtist hún ekki er ráð að endurhlaða síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×