Fótbolti

Belling­ham tryggði Sunderland sigurinn

Siggeir Ævarsson skrifar
Jobe Bellingham tryggði sigurinn í dag
Jobe Bellingham tryggði sigurinn í dag Ben Roberts/Getty Images

Jobe Bellingham var á skotskónum í dag þegar hann tryggði Sunderland 2-1 sigur á Norwich í toppbaráttu ensku B-deildarinnar.

Markið var af dýrari gerðinni þar sem Bellingham lék á einn varnarmann eftir að hafa tekið niður erfiða sendingu í teignum og smellti boltanum svo upp í fjærhornið.

Öll toppliðin fjögur í deildinni unnu sína leiki í dag en topplið Sheffield United lék sinn ellefta leik án taps þegar liðið lagði Cardiff á útivelli 0-2.

Það syrtir heldur betur í álinn hjá Guðlaugi Victori Pálssyni og félögum í Plymouth en liðið er á botni deildarinnar með 18 stig. Liðið fékk gullið tækifæri til að komast á beinu brautina í dag en missti niður 2-1 forystu gegn Middlesbrough í leik sem endaði 3-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×