Innlent

Einn „gekk ber­serks­gang“ og annar vildi inn í Stjórnar­ráðið

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lögregla lýsti eftir karlmanni fyrr í kvöld.
Lögregla lýsti eftir karlmanni fyrr í kvöld. vísir/vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í gærkvöldi eða nótt eftir að viðkomandi „gekk berserksgang“ í húsnæði hjálparstofnunar. 

Þá var annar handtekinn við að reyna að sparka upp hurðinni á Stjórnarráðinu. Sá veitti mótþróa við handtöku.

Þetta er meðal þess sem greint er frá í yfirliti lögreglu yfir verkefni vaktarinnar.

Þar segir að þrír gisti fangageymslur nú í morgunsárið.

Lögreglu bárust tilkynningar um innbrot og þjófnaði í miðborginni og póstnúmerum 103 og 112. Þá var tilkynnt um sofandi menn í stigagangi í 170 og var þeim vísað á brott.

Einnig var leitað þjófa sem voru sagðir hafa freistað þess að stela gasgrilli í Hafnarfirði en þeir fundust ekki. Þá barst einnig tilkynning um slagsmál í 111 en ekkert að sjá þegar lögreglu bar að.

Fimm ökumenn voru stöðvaðir í umferðinni grunaðir um akstur undir áhrifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×