Fleiri fréttir

Hótaði fjölskyldu sinni með sjónvarpsfjarstýringu

Útkallið sem lögreglumenn frá Nýfundnalandi fóru í á dögunum var heldur frábrugðið öðrum útköllum sem þeir hafa sinnt í gegnum tíðina. Þeir voru kallaðir að húsi í bænum St. John's á laugardaginn því þar væri maður sem væri að beita fjölskyldu sína ofbeldi.

Skotveiðimenn segja Svandísi hafa svikið sig

Stjórn Skotveiðifélags Íslands harmar þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að ætla að samþykkja verndar og stjórnunaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs án breytinga.

Þingverðir enn að jafna sig á nímenningamálinu

Þingverðir sem voru við störf í Alþingishúsinu þegar fólk fór inn í Alþingi og veittist að þingvörðum eru enn að jafna sig á atburðunum. Níu manns voru ákærðir fyrir árás á Alþingi eftir þennan atburð. Þau voru öll sýknuð af þeirri ákærðu en fjórir voru dæmdir fyrir brot gegn valdstjórninni. Karl M Kristjánsson gagnrýndi umfjöllun fjölmiðla, þá einkum Kastljóssins, í grein í Fréttablaðinu í dag.

Gaddafi kannast ekki við mótmæli

„Fólkið mitt elskar mig. Það myndi láta lífið til þess að vernda mig," sagði Muammar Gaddafi , forseti Líbíu, í samtali við Christiane Amanpour, fréttamann hjá bandarísku fréttastofunni ABC. Samkvæmt frásögn Amanpour af samtalinu á Twitter neitaði Gaddafi því jafnframt að mótmæli hefðu átt sér stað á götum Tripoli, höfuðborgar Líbíu.

HIV smit sprautufíkla tvöfölduðust

HIV smit meðal fíkniefnaneytenda tvöfölduðust hér á landi á síðasta ári. Rauði Krossinn hefur nú tekið í notkun bíl til að auðvelda sprautuskipti og er hann talinn vera bylting í aðgerðum gegn smiti.

Tillaga um stjórnlagaráð lögð fram

Þingsályktunartillaga um skipun stjórnlagaráðs hefur verið lögð fram á Alþingi. Að tillögunni standa þrír þingmenn úr Samfylkingunni, VG og Hreyfingunni. Samkvæmt tillögunni er forseta Alþingis, að höfðu samráði við forsætisnefnd Alþingis, falið að skipa 25 manna stjórnlagaráð sem fái það verkefni að taka við og fjalla um skýrslu stjórnlaganefndar og gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Tillagan gerir ráð fyrir að þeim verði boðið sæti í ráðinu sem landskjörstjórn úthlutaði sæti í kosningu til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010, en að öðrum kosti þeim sem næstir voru í röðinni.

Þriðjungur íslenskra lækna býr í útlöndum

Alls búa 509 íslenskir læknar í útlöndum, sem er þriðjungur allra íslenskra lækna. Í janúar síðastliðnum voru starfandi 1.071 læknir hér á landi, en þeir voru 1.157 árið 2008, samkvæmt upplýsingum frá Læknafélaginu.

Umferðaróhapp á Reynisvatnsvegi

Umferðaróhapp varð á Reynisvatnsvegi við Þúsöld um kukkan korter yfir fimm. Talsverðar umferðartafir eru á svæðinu. Lögregla er á staðnum, bæði við rannsókn og umferðarstjórn, en nánari upplýsingar hafa ekki fengist.

Gera afskriftir íbúðalána löglegar

Velferðarráðherra lagði í dag fram frumvarp til laga sem gera Íbúðalánasjóði heimilt að afgreiða umsóknir um niðurfærslu fasteignalána.

Staðfestu gæsluvarðhald yfir meintum glæpamanni

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að leggja fyrir sig móttöku og verslun með þýfi. Þrír einstaklingar hafa setið í gæsluvarðhaldi og hafa viðurkennt aðild sína að 70 innbrotum, þar sem gífurlegum verðmætum var stolið. Nokkur vinna sé eftir við frekari greiningu á hverju innbroti og því hverjir þar standi að baki.

Björgun Goðafoss lokið

Björgun Goðafoss er nú lokið og siglir skipið fyrir eigin vélarafli áleiðis til Danmerkur. Um klukkan hálffimm átti skipið örfáar mílur eftir til að komast út fyrir norska skerjagarðinn, samkvæmt tilkynningu frá Eimskip. Eins og fram hefur komið gekk björgun Goðafoss mun betur en þorað var að vona í upphafi.

Ástráður situr í nýkjörinni landskjörstjórn

Ástráður Haraldsson, formaður þeirrar landskjörstjórnar sem sagði af sér í janúarmánuði, á sæti í nýrri landskjörstjórn sem var kjörin á Alþingi í dag. Aðrir í landskjörstjórn eru Freyr Ófeigsson, Sigrún Benediktsdóttir, Björn Jósep Arnviðarson, Jakob Björnsson. Varamaður var kjörin Linda Bentsdóttir sem kemur inn fyrir Sólveigu Guðmundsdóttur. Landskjörstjórnin mun síðar skipta með sér verkum og kjósa sér formann.

Einelti af verstu gerð

Átján ára dóttir Ingunnar Hrundar Einarsdóttur varð fyrir óskemmtilegri reynslu í morgun þegar hún sá sér til mikillar skelfingar að bíllinn hennar, silfurlitaður Nissan Almera árgerð 2001, var ekki ökufær því einhverjir höfðu í skugga nætur brotið öll ljósin og rúðuþurkurnar. Þá voru kopparnir fjarlægðir, loft tekið úr dekkjum og eggjum grýtt í framrúðu bílsins. "Hún er á nítjánda ári með ódæmigerða einhverfu," sagði Ingunn en dóttir hennar tók strætó í vinnuna í morgun þrátt fyrir að vera í sjokki. Dóttir Ingunnar hefur þurft að þola einelti síðan hún var átta gömul. Ingunn biður þá sem framkvæmdu verknaðinn að gefa sig fram. Sjá viðtalið við Ingunni og ástand bílsins í meðfylgjandi myndskeiði.

Velferðarráðherra ýtti mottumars úr vör

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ýtti Mottumars úr vör við hátíðlega athöfn á skautasvellinu í Laugardal í dag. Mottumars er yfirskrift átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein en átakið var haldið í fyrra í fyrsta sinn og þótti takast með eindæmum vel. Átakið hófst í dag með því að úrvalslið lögreglu- og slökkviliðsmanna öttu kappi í íshokkí og fóru leikar þannig að lögreglumenn unnu leikinn.

Árshátíðarmyndbandi Icelandair líkt við Twilight Zone

Forsvarsmenn erlendu ferðasíðunnar Gadling misskilja heldur betur nýtt myndband sem gert var fyrir árshátíð Icelandair og halda að þar sé um að ræða kynningu á nýjum búningum flugfélagsins. Yfirskrift umfjöllunarinnar á Gadling er "Iceland Air introduces new crew uniforms - in the weirdest airline video ever" sem á íslensku útleggst sem "Icelandair kynnir nýja einkennisbúninga í furðulegasta flugmyndbandi sem gert hefur verið." "Getið þið ímyndað ykkur að United Airlines eða Delta gerði svona skemmtilegt myndband?“ er spurt á Gadling. Þeim finnst myndbandið þó heldur furðulegt og ganga svo langt að líkja því við Twilight Zone-flugmyndbanda. Smellið á tengilinn hér að ofan til að sjá myndbandið með eigin augum.

Annálaður Patrol aðdáandi sakaður um að eiga Land Cruiser

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segist íhuga alvarlega að stefna DV fyrir persónuníð og meiðyrði en í blaði dagsins er sagt frá hremmingum sem Gylfi lenti í á dögunum ásamt syni sínum þegar bíll þeirra hafnaði á kafi í stórum polli á Kjalarvegi fyrir nokkru.

Vinsælastur á Facebook

Eminem hefur tekið fram úr Lady Gaga sem vinsælasta núlifandi manneskjan á Facebook. Alls á rapparinn rúmlega 28 milljónir aðdáenda og hefur hann bætt yfir hálfri milljón aðdáenda við hópinn í hverri viku að undanförnu. Bilið á milli Eminem og Gaga nemur nú tíu þúsund aðdáendum. Í þriðja sæti á listanum er Barack Obamba, Bandaríkjaforseti. Eini tónlistarmaðurinn sem er vinsælli en Eminem á Facebook er poppkóngurinn sálugi, Michael Jackson, sem á 29 milljónir aðdáenda. Rapparinn varð fyrr í vikunni þriðji listamaður sögunnar til að ná eins milljarðs áhorfi á Youtube-síðunni.

Féll af þaki sumarhúss

Maður féll af þaki sumarhúss við Seljalandssel í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli á laugardaginn. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að maðurinn hafi slasast alvarlega og var hann fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var hann settur í öndunarvél, en frekari upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir.

Dæmdur fyrir fjárdrátt frá Hvítasunnusöfnuðinum

Fyrrverandi framkvæmdastjóri Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi og prókúruhafi á reikningum söfnuðarins hefur verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af eru 9 mánuðir skilorðsbundnir. Héraðsdómur Reykjaness gerir honum einnig að endurgreiða þær tæpu 18 milljónir sem hann dró sér frá söfnuðinum. Þar af hafði maðurinn millifært á eigin reikninga rúmar 16 milljónir af reikningi Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi en tæpar tvær milljónir af reikningi Hvítasunnukirkjunnar Klettsins.

Kastljós mótmælir starfsmannastjóra Alþingis - Yfirlýsing

Ritstjóri Kastljóss, Sigmar Guðmundsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna aðsendrar greinar starfsmannastjóra Alþingis, Karls M. Kristjánssonar, sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Karl gagnrýnir fréttaflutning RÚV af máli nímenninganna svölölluðu og tekur sérstaklega til umfjöllun Kastljóss.

Mottumars hefst í dag

Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands hefst í dag. Árlega greinast að meðaltali 716 karlmenn með krabbamein hér á landi og um 250 deyja af orsökum þess. Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir að minnsta kosti eitt krabbameinstilfelli af hverjum þremur.

Bjarni ánægður með fylgi flokksins

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er ánægður með fylgið sem flokkurinn mælist með í nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins en þar mælist flokkurinn með 41,2 prósenta fylgi. Bjarni segir þó mesta athygli vekja hversu margir eru óákveðnir eða ríflega helmingur.

Engin lögregla lengur í Dalasýslu

Síðasta vaktin hjá lögreglunni í Búðardal er í dag því eftir vinnudaginn verður lögreglustöðinni í Dalasýslu lokað. Andmæli íbúa megnuðu ekki að snúa við ákvörðun stjórnvalda en Dalamenn afhentu í lok janúarmánaðar Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftalista með 1.368 nöfnum með ákalli til ráðherrans um að hlífa þessu eina stöðugildi lögreglumanns í héraðinu.

Bílar skemmdir í Hveragerði

Í morgun barst tilkynning um skemmdir á tveimur bifreiðum við Mánamörk í Hveragerði. Rúður voru brotnar til að komast inn í bifreiðarnar sem voru læstar. Talið er að farið hafi verið inn í aðra bifreiðina í fyrrakvöld og í hina í gærkvöldi eða í nótt. Einnig var farið inn í sendibifreið sem var ólæst. Engu mun hafa verið stolið en engu líkara en að gerendur hafi verið að svipast um eftir klinki. Af ummerkjum að dæma gætu þarna hafa verið börn eða óþroskaðir unglingar á ferð, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Ef einhver getur veitt upplýsingar um málið er hann beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010.

Mubarak bannað að fara úr landi

Hosni Mubarak Egyptalandsforseta og fjölskyldu hans hefur verið bannað að yfirgefa landið. Ríkissaksóknarinn í Egyptalandi skýrði frá þessu í dag en Mubarak hefur hafst við í sumarhöll sinni í Sharm El Sheikh frá því hann sagði af sér þann ellefta febrúar síðastliðinn.

Sameiningartillögur að skýrast

Rúmlega tuttugu tillögur til sameiningar og samreksturs í skólakerfi og frístundastarfi Reykjavíkur verða teknar fyrir í borgarráði Reykjavíkur næstkomandi fimmtudag að því er heimildir Fréttablaðsins herma.

Orkustefna fyrir Ísland: Fimmtíu umsagnir bárust

Stýrihópur sem iðnaðarráðherra skipaði síðla árs 2009 til að vinna heildstæða orkustefnu fyrir Ísland birti í janúar sl. drög að orkustefnu. Fjölmargar umsagnir hafa borist fré einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.

Kúbustjórn hleypir fólki á internetið

Ríkistjórn Kúbu ætlar að stuðla að því að almenningur komist á netið. Hingað til hafa bara forréttindahópar haft óheftan aðgang að internetinu.

Vilja reisa aðra virkjun í Glerá

Orkufyrirtækið Fallorka vill byggja tveggja megavatta vatnsaflsvirkjun í Glerá í Glerárdal. Erindi þess efnis bíður afgreiðslu hjá Akureyrarbæ.

Verðlaunahafar á Óskarnum - listinn

Breska myndin The King´s Speech sópaði að sér verðlaunum á Óskarsverðlaunahátíðinni. Hún var valin besta myndin, Colin Firth var valinn besti leikari í aðalhlutverki, leikstjórinn Tom Hooper var verðlaunaður auk þess sem handrit myndarinnar var valið besta upprunalega kvikmyndahandritið. Myndinn hafði verið spáð mikilli velgengni og komu verðlaunin því lítið á óvart.

Kjósa nýja landskjörstjórn

Ný landskjörstjórn verður kosin á Alþingi í dag. Síðast var landskjörstjórn kosin í ágúst 2009. Sú stjórn sagði af sér þann 28. janúar síðastliðinn, eftir að kosningar til stjórnlagaþings voru ógiltar. Kosið verður því um fimm nýja aðalmenn í ráðið sem og einn varamann.

Gagnrýnir RÚV fyrir einhliða fréttaflutning af níumenningunum

"Stuðningsmenn nímenninganna svokölluðu og þau sjálf hafa nánast notað RÚV sem einkamiðil sinn,“ skrifar Karl M. Kristjánsson, starfsmannastjóri Alþingis, í Fréttablaðið í dag þar sem hann gagnrýnir fréttaflutning RÚV af máli Níumenninganna harðlega.

Í mál út af vitlausum lottótölum

Bandarísk kona hefur krafið sjónvarpsstöð um 75 þúsund dali í skaðabætur eftir að hún komst að því að sjónvarpsstöðin tilkynnti um vitlausar lottótölur.

7,6% atvinnuleysi árið 2010

Atvinnuleysi á árinu 2010 var að meðaltali 7,6%. Á árinu voru 180.900 á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.300 starfandi en 13.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81% og hlutfall starfandi 74,9%.

Fíkniefnabarón handtekinn í Mexíkó

Sérsveitir mexíkóska hersins hafa handtekið meintan fíniefnabarón í tengslum við morð á opinberum starfsmanni bandarísku utanríkisþjónustunnar.

17 létust í flugeldaslysi í Brasilíu

Sautján manns létust í slysi í Brasilíu í gærkvöldi. Fólkið hafði tekið þátt í fögnuði í smábæ fyrir kjötkveðjuhátíðina sem verður haldin innan skamms.

Bretar sigursælir á Óskarnum

Bretar voru sigursælir á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Breska myndin Konungsræðan fékk fern Óskarsverðlaun. Þá hlaut Inside Job verðlaun sem besta heimildarmyndin. Hún fjallar í aðra röndina um efnahagshrunið á Íslandi.

Þúsundir fastir á landamærum Túnis og Líbíu

Þúsundir flóttamanna komast ekki yfir landamærin frá Líbíu til Túnis vegna síharðnandi átaka í Líbíu. Utanríkisráðherrar fjölda landa munu ræða ástandið í Genf í dag, á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Yfir 500 skjálftar í Krísuvík

Yfir 500 skjálftar hafa mælst á Krísuvíkursvæðinu síðan í gærmorgun, en í gærkvöldi fór að draga úr virkninni eftir stóra skjálftann síðdegis í gær.

Sjómaður drukknaði í gærkvöldi

Grænlenskur sjómaður af grænlensku loðnuveiðiskipi drukknaði, eftir að hann féll fyrir borð í vonsku veðri út af Malarrifi á Snæfellsnesi í gærkvöldi.

Ekkert dregur úr óánægju með stjórnmálaflokkana

Óánægja almennings með hefðbundna stjórnmálaflokka virðist síst á undanhaldi ef marka má hlutfall þeirra sem afstöðu taka í skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 á fylgi stjórnmálaflokkanna.

Sjá næstu 50 fréttir