Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heppilegast að allir fái að kjósa um samninginn sem bauðst Gabríel Benjamin, fyrrverandi starfsmaður kjaramálasviðs Eflingar og fyrrverandi trúnaðarmaður starfsfólks, segist eiga erfitt með að sjá að það sé lýðræðislegt að ráðast í umfangsmiklar verkfallsaðgerðir fyrir skammtíma kjarasamning ef stjórnin hefur ekki fullt lýðræðislegt umboð til þess. 16.1.2023 06:38
Reyndi að bíta lögreglumenn og hótaði þeim lífláti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til rétt fyrir klukkan tvö í nótt vegna einstaklings sem var að hoppa ofan á bifreið í miðbæ Reykjavíkur. Lögregla handtók viðkomandi og flutti á lögreglustöð en sá reyndi að bíta lögreglumennina af sér auk þess að hóta þeim lífláti. 16.1.2023 06:17
Tugir látnir og fleiri saknað eftir eldflaugaárás á íbúðablokk Minnst 29 hafa fundist látnir og 44 er leitað eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás á íbúðablokk í Dnipro í Úkraínu í gær. Ólíklegt er að nokkur finnist á lífi í rústunum. 15.1.2023 23:23
Hefur litla trúa á lýðræðisást atvinnurekenda Formaður Eflingar segir vinnu við verkfallsboðun vera í gangi og hefur litla trú á lýðræðisást formanns Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segist ekki vera vongóð um að samningar náist á næstunni. 15.1.2023 22:31
Uppruni Íslendinga sé flóknari en áður var talið Prófessor hjá stofnun Árna Magnússonar segir uppruna Íslendinga flóknari en áður hefur verið talið. Við skoðun heimilda þurfi að hafa í huga að um sé að ræða minningar fólks á tólftu og þrettándu öld, sem jafnvel hafði einhverra hagsmuna að gæta. Ólíklegt sé að allir hafi komið frá norrænum konungum. 15.1.2023 22:30
Mannskæðasta slys í þrjá áratugi Að minnsta kosti 68 létust í flugslysi í Nepal í morgun. 72 voru um borð og telja björgunarsveitir ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af. Mannskæðara flugslys í Nepal hefur ekki orðið síðan 1992. 15.1.2023 21:28
„Þetta er húseigandans að passa upp á“ Grýlukerti og klakabunkar sem víða sjást á húsþökum þessa dagana geta verið stórhættuleg þegar þau falla. Forvarnafulltrúi segir að húseigendur geti borið ábyrgð á tjóni sem af hlýst vegna klaka og grýlukerta. Þau geti reynst mjög hættuleg. 15.1.2023 20:35
Nemendur mega taka sér blund í Keili Nám í Keili á Suðurnesjunum er alltaf að verða vinsælla og vinsælla en nú eru þar um átta hundruð nemendur í fjölbreyttu námi. Mikil áhersla er á huggulegt umhverfi í kennslustofum og gefst nemendum meira að segja kostur á að halla sér út af í kennslutímum og taka sér fimm mínútna blund ef svo ber undir. 15.1.2023 20:04
Flókið að mynda ríkisstjórn miðað við kannanir Núverandi stjórnarflokkar næðu ekki að mynda meirihluta á Alþingi samkvæmt tveimur nýjustu könnunum Maskínu og Gallups. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast með álíka mikið fylgi í báðum könnunum. 15.1.2023 19:24
Kennarinn í MS: „Afi minn var forystumaður Sjálfstæðisflokksins“ Kennari í Menntaskólanum við Sund segir af og frá að glæra sem fór í dreifingu í vikunni sé merki um pólitíska innrætingu í framhaldsskólum. Glæran hafi verið til að sýna öfgar í stjórnmálastefnum, til dæmis þegar farið er úr sterkum foringjum yfir í einræði. Nákvæmlega eins glæra hafi verið til að sýna hættulega þróun á vinstrivæng stjórnmála. 15.1.2023 18:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Eflingar vísar því á bug að fólk sé að reyna að yfirgefa félagið og hefur litla trú á lýðræðisást formanns samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segist ekki vera vongóð um að samningar náist á næstunni. 15.1.2023 18:05
Eldsvoðinn reyndist ruslabrenna og slökkviliðið snýr við Ferðalangar hringdu í slökkviliðið á fimmta tímanum í dag og tilkynntu um eld rétt austan við Hvolsvöll í Rangárþingi eystra. Slökkviliðið sneri þó við á miðri leið þegar í ljós kom að um litla ruslabrennu væri að ræða. 15.1.2023 17:27
„Það er eins og verið sé að bíða eftir því að einhver drepist“ „Það var bara mildi að ég varð ekki undir“ segir Ólafur Halldórsson sem var á röltinu með hundinn á Þórsgötu, milli Baldursgötu og Óðinsgötu, í dag þegar stærðarinnar klaki féll af húsþaki og lenti á gangstéttinni - einungis nokkrum sentímetrum fyrir framan Ólaf. 15.1.2023 17:12
„Oft getur heimskuleg umræða orðið að mjög góðri umræðu“ Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra og Auður Jónsdóttir rithöfundur mættu í Sprengisand á Bylgjunni og ræddu þar meðal annars pólitískan rétttrúnað, tjáningarfrelsið og samfélagsmiðla. 15.1.2023 17:01
Kynbundið ofbeldi fer úr böndunum á Spáni Tæplega 20 konur á Spáni hafa verið myrtar af maka sínum eða fyrrverandi maka á síðustu 6 vikum. Fjölmiðlar tala um jólamánuðinn sem svartan desember og kvennahreyfingar segja stjórnvöld vera að bregðast konum sem lifa við stanslaust ofbeldi maka sinna. 15.1.2023 16:31
Skáli byggður yfir nýja tvöfalda brú yfir Stóru Laxá Ökumenn, sem aka yfir brúna yfir Stóru Laxá í Hrunamannahreppi skammt frá Flúðum verða margir undrandi þessa dagana því við hlið brúarinnar er búið að reisa stærðar skála með plasti yfir, sem nær yfir nýja tvíbreiða brú, sem er verið að byggja á staðnum. 15.1.2023 16:06
Graskögglaverksmiðja reist við Húsavík? Nú er unnið að því að koma upp Graskögglaverksmiðju við Húsavík með nýtingu jarðhita við Hveravelli í Reykjahverfi. Kostnaður við byggingu verksmiðjunnar er um tveir milljarðar króna en hún mun taka til starfa 2025 ef allt gengur upp. 15.1.2023 15:16
„Þú ert að sturta þessum prófessorstitli þínum í ruslflokk“ Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segist ekki hrifinn af hugmyndum innan stéttarfélagsins Eflingar að draga eigi launafólk í dilka eftir búsetu. Stefán Ólafsson, sérfræðingur innan Eflingar segir að Samtök atvinnulífsins hafi haldið sýndarfundi við Eflingu sem þau hafi viljað semja síðast við. Hann segir Vilhjálm einnig „hóta“ Eflingarfólki því að það muni tapa þremur milljörðum á því að berjast fyrir sínum kjörum. 15.1.2023 14:45
„Alveg ljóst að um veikindi einstaklings er að ræða“ Tveir þurftu að leita á sjúkrahús eftir að karlmaður, sem er talinn andlega veikur, réðist á þau í Kringlunni. 15.1.2023 13:19
Vélarvana bátur dreginn til hafnar á Siglufirði Um níu leytið í morgun var björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Siglufirði, Sigurvin, kallað út til aðstoðar vélarvana bát sem staddur var rúmlega sex sjómílur norð norðvestur af Siglunesi. 15.1.2023 13:15
Ætluðu að smygla til Íslands vegna þrefalt hærra götuverðs Tveir breskir karlmenn sem gripnir voru með umtalsvert magn af kókaíni á Stansted flugvelli á síðasta ári hugðust smygla efnunum til Íslands þar sem söluverðið er sagt vera þrefalt hærra en í Bretlandi. Annar þeirra er sagður vera umfangsmikill fíkniefnasali í Bretlandi og talið er að hann hafi haft áform um að færa út kvíarnar. 15.1.2023 12:47
Umfangsminni leit í dag og engar vísbendingar hafa borist Engar vísbendingar hafa borist lögreglu um ferðir Modestas Antanavicius sem leitað hefur verið að í Borgarfirði. Leit heldur áfram í dag og biðlar lögregla til fólks að hafa samband hafi það einhverjar upplýsingar um ferðir mannsins. 15.1.2023 12:47
Segir faraldurinn hafa breytt viðhorfi til fjarnáms Faraldur kórónuveirunnar breytti viðhorfi til Háskólans á Bifröst að sögn rektors skólans sem segir fjölga í þeim hópi nemenda sem kjósa fjarnám. Hún segir fjarnám mikið jafnréttismál en nemendur skólans hafa aldrei verið fleiri. 15.1.2023 12:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Að minnsta kosti 60 eru látnir eftir að flugvél brotlenti skammt frá flugvelli í Nepal. Flugélin sem var með 72 innanborðs brotlenti við lendingu og kviknaði samstundis í henni. 15.1.2023 11:39
Neyðarástandi lýst yfir vegna hamfaraflóða Að minnsta kosti 19 manns hafa látist af völdum flóða í Kaliforníu í Bandaríkjunum og þúsundir þurft að yfirgefa heimili sín. Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi vegna óveðursins. 15.1.2023 10:47
Kjaramál, stríðsátök og tjáningafrelsi á dagskrá Sprengisandur hefst á bylgjunni klukkan 10 í dag. Tengsl Kelta og Íslendinga, kjaramál, stríðsátök og tjáningarfrelsi verða í brennidepli. 15.1.2023 09:59
Fjörutíu látnir hið minnsta eftir flugslys Að minnsta kosti 64 manns eru látnir eftir að flugvél brotlenti skammt frá flugvelli í Nepal. 72 manns voru innanborðs í flugvél sem var á leið til bæjarins Pokhara frá höfuðborginni Kathmandu. 15.1.2023 09:39
Aragrúi af fordæmum séu fyrir kröfum Eflingar Eflingarfólk á heimtingu á meiri hækkunum þar sem húsnæðiskostnaður er mun hærri á höfuðborgarsvæðinu heldur en á landsbyggðinni. Þetta segir sérfræðingur Eflingar sem telur framfærsluuppbót nauðsynlega og þoli enga bið. Ástandið á höfuðborgarsvæðinu sé fordæmalaust en framfærsluuppbót sé það ekki. 15.1.2023 09:00
Fjarskiptalæknir gæti hafið störf innan nokkurra mánaða Með tilkomu fjarskiptalæknis verður hægt að leysa mörg vandamál í bráðaþjónustu á landsvísu en bráðasérfræðingur sem leiddi vinnu viðbragðsteymis heilbrigðisráðherra segir að hægt væri að koma þjónustunni á fót á nokkrum mánuðum. Teymið lagði ýmsar tillögur að umbótum en þær leysa ekki vanda bráðamóttöku Landspítalans. 15.1.2023 08:00
Mikið frost og léttskýjað Í dag er spáð norðlægri átt 5-13 m/s í dag, en 13-18 við austurströndina. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum og sums staðar skafrenningur austanlands. Frost verður á bilinu 5 til 18 stig. 15.1.2023 07:49
Þremenningar vopnaðir hnífum í slagsmálum Lögregla hafði í nægu að snúast í nótt ef marka má dagbók lögreglu; hnífaslagsmál, mikil ölvun og grunur um ólöglega dvöl hérlendis koma við sögu. 15.1.2023 07:29
Stúlkan í lífshættu eftir skotárásina Sjö ára stúlka er í lífshættu eftir að skotið var á hana í nágrenni kirkju í norðurhluta Lundúna í dag. Að minnsta kosti fjórir særðust í skotárásinni. 14.1.2023 23:28
Lúxuskerrur Tate gerðar upptækar Yfirvöld í Rúmeníu hafa gert fjölda lúxusbíla Andrew Tate upptæka. Hann var handtekinn í landinu rétt fyrir áramót og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. 14.1.2023 22:02
„Þetta slær mig náttúrulega ekki vel“ Heilbrigðisráðherra segist fylgja þeirri reglu að auglýsa í opinber störf en að í tilviki Sigurðar Helga Helgasonar, nýskipaðs forstjóra Sjúkratrygginga, sé hann svo öflugur stjórnandi að ekki hafi verið talin ástæða til að auglýsa stöðuna. Þingmaður segir útskýringarnar hálf kjánalegar. 14.1.2023 21:17
Íbúar fari sparlega með vatnið í fimbulkuldanum: „Þá komast allir í sund“ Talsverður kuldi er í kortunum víða um land og gæti frostið náð tuttugu stigum um helgina. Veitur hafa ekki þurft að grípa til skerðingar að svo stöddu en hvetja fólk til að fara sparlega með vatnið. Ekki er útlit fyrir að loka þurfi sundlaugum og þurfa borgarbúar því ekki að örvænta. 14.1.2023 20:03
Tveir leituðu læknisaðstoðar eftir að maður gekk berserksgang í Kringlunni Karlmaður gekk berserksgang í Kringlunni í dag og kýldi meðal annars konu sem við það féll í gólfið og slasaðist. Hún var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Öryggisvörðum tókst að yfirbuga manninn en einn öryggisvörður þurfti að leita á sjúkrahús eftir átökin. 14.1.2023 19:53
Stálheppinn Íslendingur 36 milljónum ríkari Ljónheppinn Lottó-áskrifandi hlaut stóra vinninginn í kvöld. Hann var með allar tölur réttar og fær því rétt rúmar 36 milljónir króna í vinning. 14.1.2023 19:33
Tugþúsundir mótmæla ríkisstjórninni í grenjandi rigningu Rúmlega áttatíu þúsund manns mótmæla nú ríkisstjórninni við Hæstarétt Ísraels. Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú forseta Ísarels hefur boðað víðtækar breytingar á réttarkerfi landsins. Andstæðingar óttast endalok lýðræðisins. 14.1.2023 19:26
Lögmenn finna enn fleiri leyniskjöl hjá Biden Lögmenn hafa fundið fleiri leynileg skjöl heima hjá Joe Biden Bandaríkjaforseta. Hvíta húsið hafði áður lýst því yfir að aðeins stök blaðsíða hafi fundist. 14.1.2023 19:03
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eflingarfólk á heimtingu á meiri hækkunum en meðlimir Starfsgreinasambandsins þar sem húsnæðiskostnaður er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir sérfræðingur Eflingar sem telur framfærsluuppbót nauðsynlega og þoli enga bið. Við ræðum við hann í fréttatímanum. 14.1.2023 18:03
Hætta leit í dag Leit að Modestas Antanavicius hefur að mestu verið hætt í dag án árangurs. Hátt í 150 björgunarsveitarmenn ásamt lögreglu og landhelgisgæslu tóku þátt í umfangsmikilli leit að manninum í Borgarfirði í dag. 14.1.2023 17:39
Sjö ára stúlka á meðal fjögurra sem særðust í skotárás í Lundúnum Fjórir særðust í skotárás sem átti sér stað í nágrenni kirkju í norðurhluta Lundúna rétt í þessu. 14.1.2023 16:56
„Sáum okkur leik á borði“ Þeir fjölmörgu Íslendingar sem lagt hafa leið sína til Tenerife undanfarnar vikur hafa eflaust tekið eftir flennistóru auglýsingaskilti Elko við innritunarborðið í TFS flugstöðinni. Það er kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að auglýsingin er á íslensku. 14.1.2023 15:36
Verður gervigreind banabiti heimalærdóms? Nýtt gervigreindarforrit sem sett var á markað í lok síðasta árs er svo öflugt að skólayfirvöld óttast að það kunni að eyðileggja tilganginn með heimanámi í framtíðinni. Nemendur geta lagt nánast hvaða spurningu sem er fyrir forritið og fá lýtalaust svar og niðurstöðu. 14.1.2023 14:34
„Alvarlegur galli á húsnæðisstuðningnum“ Eflingarfólk á heimtingu á meiri hækkunum en meðlimir Starfsgreinasambandsins þar sem húsnæðiskostnaður er mun meiri á höfuðborgarsvæðinu. 14.1.2023 14:29