Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biðst afsökunar á ósannindum um borgarstjóra Bolli Kristinsson athafnamaður, sem lengi var kenndur við verslunina 17, hefur beðist afsökunar á því að hafa farið með rangfærslur í myndbandi sem Björgum miðbænum birti á dögunum og talsett er af Vigdísi Hauksdóttir borgarfulltrúa Miðflokksins. 31.1.2021 22:48
Of margir í pottinum á Akureyri og aðgengi að lauginni lokað Lögreglan á Norðurlandi eystra hélt úti sérstöku eftirliti með veitingastöðum og hótelum hvað varðar sóttvarnir um helgina. Þá hafði lögreglan afskipti af sundlaugargestum í Sundlaug Akureyrar eftir að tilkynning barst um að heldur þétt væri setið í heita pottinum og var aðgengi að sundlauginni lokað það sem eftir lifði dags að kröfu lögreglu. 31.1.2021 22:29
Ætla að auka virkni og vellíðan langtímaatvinnulausra Reykjanesbær ætlar á þessu ári að bjóða langtímaatvinnulausum úrræði sem felst í að auka vellíðan og virkni. Verkefnastjóri fjölmenningarmála segir mikilvægt að ná til þessa hóps. 31.1.2021 21:31
Ljósmyndari hafði betur gegn ríkisskattstjóra í deilu um lokunarstyrk Rán Péturs Bjargardóttir, ljósmyndari, hafði betur gegn ríkisskattstjóra í deilu um það hvort hún ætti rétt á lokunarstyrk. Yfirskattanefnd úrskurðaði að hún ætti rétt á styrknum þar sem hún sérhæfir sig í myndatökum af nýburum. Taldi nefndin að starfsemin teldist til þeirra sem fela í sér sérstaka smithættu. 31.1.2021 20:44
Sitja fastir í sóttkví um borð í bát eftir að skipverji greindist með veiruna Níu skipverjar sitja nú í sóttkví um borð í línubátnum Fjölni GK sem liggur við bryggju í Grindavík eftir að skipverji greindist með covid-19. Skipverjinn sem um ræðir hafði nýverið komið til landsins frá útlöndum og hafði greinst neikvæður í fyrri sýnatöku á landamærum. Hann var þó nýmættur til vinnu og búinn að heilsa þremur öðrum skipverjum þegar hann fékk svar um að sýni greindist jákvætt eftir seinni skimun. 31.1.2021 20:34
Skautað á Stokkseyri á stóru og skemmtilegu svelli Börn og unglingar á Stokkseyri nutu þess um helgina að leika sér á skautum, auk þess sem eldri borgari á staðnum notar svellið til að hjóla á því enda á vel negldum dekkjum. 31.1.2021 20:04
Fór úr mjaðmarlið og beið í níutíu mínútur í kuldanum Þórður Mar Árnason má ekkert stíga í fótinn næstu sex vikurnar eftir að hafa farið úr mjaðmarlið í vélsleðaslysi á Tröllaskaga þann 15. janúar síðastliðinn. Hann þakkar fyrir að hafa ekki fengið vélsleðann ofan á sig þar sem hann rúllaði niður bratta fjallshlíð. Eða að æð hafi ekki farið í sundur í fæti hans. Þá hefði fátt komið í veg fyrir að honum hefði blætt út. 31.1.2021 19:56
Aldrei eins mörg vopnuð útköll Sérsveitin hefur aldrei sinnt eins mörgum vopnuðum útköllum og á síðasta ári. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir heiftuga umræðuna hafa áhrif. Hún hefur sjálf fengið hótanir í starfi sínu. 31.1.2021 18:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá því að sérsveitin hefur aldrei sinnt eins mörguðum vopnuðum útköllum og á síðasta ári. Ríkislögreglustjóri telur orðræðuna espa fólk í að sýna af sér ógnandi tilburði. 31.1.2021 18:15
Segir fjölda fólks í framlínunni og sérstaklega konur hafa fengið alvarlegar hótanir Borgarstjóri segir mikilvægt að stjórnmálin séu hluti af samfélaginu. Það sé varhugavert að fólk í stjórnmálum eða framlínufólk þurfi aukna öryggisgæslu vegna hættu á ofbeldi en það sé nauðsynlegt berist þeim hótanir eða ofbeldi beinist gegn þeim. 31.1.2021 18:01
Borgarstjóri og ríkislögreglustjóri í Víglínunni Borgarstjóri og ríkislögreglustjóri verða gestir Heimis Más Péturssonar í Víglínunni í dag til að ræða nýlegar skotárásir á bíl borgarstjórans og skrifstofur stjórnmálaflokka. Áhrif kórónuveirukreppunnar á borgina verða einnig til umræðu ásamt stefnumörkun ríkislögreglustjóraembættisins. 31.1.2021 16:30
Telur viðbrögðin við máli borgarstjóra „yfirdrifin á ýmsan hátt“ Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki ráðlegt að „fara á límingunum“ yfir máli borgarstjóra, hvers bíl var skotið á með byssu á dögunum. 31.1.2021 14:52
Segir myndbandið hafa fært til mörkin í íslenskri pólitík Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist hafa upplifað erfiðar tilfinningar í kjölfar þess að skotið var með byssu á bíl hans. Hann hafi ýtt því frá sér að göt á bílnum utanverðum hafi verið eftir byssukúlur. Hann segir að áróðursmyndband þar sem heimili hans var sýnt hafa vakið hjá sér óhug. 31.1.2021 13:51
Hefur áhyggjur af því að fólk hætti að þora að tjá sig Ellen Calmon, formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, segir hljóðið í félagsmönnum þungt eftir að skotið var á bíl borgarstjóra. Hún hefur áhyggjur af því atvikið leiði til þess að fólk hætti að þora að tjá sínar skoðanir. 31.1.2021 13:34
Safnað fyrir nýjum líkbíl á Sauðárkróki Sóknarnefnd Sauðárkrókskirkju safnar nú peningum fyrir nýjum líkbíl en núverandi bíll, sem er rétt um fjörutíu ára er orðinn lúinn og lélegur. 31.1.2021 12:40
„Það er alltaf einhver sem er að meina þetta“ Hótanir á alltaf að taka alvarlega, segir utanríkisráðherra sem hefur sjálfur fengið að kynnast þeim. Þrátt fyrir að þeim sé sjaldnast fylgt eftir séu alltaf undantekningar á því. 31.1.2021 12:11
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf heyrum við í utanríkisráðherra sem segir brýnt að taka hótanir alvarlega þó þeim sé í undantekningartilfellum fylgt eftir. 31.1.2021 11:44
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex greindust á landamærunum en mótefnastaða þeirra liggur ekki fyrir. 31.1.2021 10:27
Sérfræðingar farnir norður og geta metið stöðuna á morgun Vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum er enn yfir þröskuldi Veðurstofu Íslands. Vatnshæðin náði hámarki um klukkan tíu í gærmorgun og var þá 530 sentímetrar, eða tíu sentimetrum yfir þröskuldinum. Veðurstofan hefur sent sérfræðinga norður en áætlað er að þeir geti metið stöðuna í ánni á morgun. 31.1.2021 10:02
Skotárás á bíl borgarstjóra og umræðan á netinu í Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur á Bylgjunni er á dagskrá frá klukkan tíu til tólf, líkt og aðra sunnudaga. 31.1.2021 09:37
Hjálpuðu barni „sem lá svona á að komast í heiminn“ Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk síðasta sólarhringinn 72 boðanir í sjúkraflutning. 31.1.2021 08:34
Fischer komst ekki í aðra skákina vegna ágangs ljósmyndara Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari sá um Bobby Fischer og aðstoðarfólk þegar það dvaldi á Hótel Loftleiðum vegna einvígis aldarinnar. Hann segir hér sögu sem er mikilvægt púsl í söguna. 31.1.2021 08:00
Tveggja til tólf stiga frost Búast má við hægum vindi og björtu veðri í dag, en austan- og suðaustan strekkingi með suðurströndinni. Mögulega er von á éljum sunnan- og vestanlands. Áfram verður kalt í veðri, tveggja til tólf stiga frost. 31.1.2021 07:35
Grunaðir um líkamsárás og vopnalagabrot Tilkynnt var um líkamsárás í Árbæ upp úr klukkan ellefu í gærkvöldi, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír menn voru handteknir grunaðir um árásina og brot á vopnalögum. 31.1.2021 07:22
Samfylkingin í Reykjavík fordæmir árásirnar Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík fordæmir þær árásir sem starfsstöðvar stjórnmálaflokka á Íslandi hafa orðið fyrir síðustu misserin sem og skotárás sem gerð var á einkabíl borgarstjóra. 30.1.2021 20:53
Sá skotför í stofuglugganum: „Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta“ „Ég fékk mörg nafnlaus hótunarbréf, sum með hvítu dufti, að mér var veist á almannafæri, og skotför sáust eitt sinn í einum stofuglugganum heima hjá mér. Mér datt hins vegar ekki í hug að hlaupa grátklökkur í fjölmiðla um þetta.“ 30.1.2021 20:35
„Krabbameinslækningar hér á heimsmælikvarða en huga þarf að endurhæfingu“ Lífslíkur og lífsgæði krabbameinsgreindra hér á landi eru með því fremsta sem þekkist í heiminum, að sögn formanns félags krabbameinslækna. Krabbameinsgreindum muni hins vegar fjölga mikið á næstu áratugum og því mikilvægt að huga að öflugri endurhæfingu. 30.1.2021 20:02
Fóðrar fjörutíu til sextíu smáfugla í garðinum sínum Fuglavinurinn Andrea Sif Jónsdóttir fóðrar fjörutíu til sextíu smáfugla í garðinum sínum í Tunguvegi í Reykjavík daglega. 30.1.2021 19:22
Of snemmt að segja til um hvort hafa þurfi áhyggjur Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að frekari upplýsingar þurfi að liggja fyrir áður en ákvarðanir um hertar öryggisráðstafanir verða teknar, í kjölfar skotárásarinnar á bíl borgarstjóra og húsnæði stjórnmálaflokkanna. Hún segir of snemmt að segja til um hvort hafa þurfi áhyggjur. 30.1.2021 18:44
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö verður rætt við ríkislögreglustjóra um skotárásina á borgarstjóra og rannsókn málsins. 30.1.2021 18:05
VG fordæmir skotárásirnar Flokkráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs fordæmir árásir við heimili borgarstjóra og höfuðstöðvar stjórnmálasamtaka. 30.1.2021 17:49
204 brautskráðir frá HR 204 nemendur voru brautskráðir frá Háskólanum í Reykjavík við tíu hátíðlegar athafnir í Hörpu í dag. Vegna samkomutakmarkanna var hátíðinni skipt upp í minni athafnir þar sem að hámarki tuttugu voru brautskráðir í hverri athöfn. 30.1.2021 17:28
„Vekur miklar vonir um það að við náum hraðar hjarðónæmi“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans, segir niðurstöður rannsókna á bóluefnum AstraZeneca og Janssen lofa góðu. Hann sé bjartsýnn á virkni þeirra og telur þau hafa sambærilega virkni og bóluefni Pfizer og Moderna. 30.1.2021 16:31
Sextugur karlmaður í gæsluvarðhald vegna skotárásarinnar Karlmaður um sextugt var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í tveggja daga gæsluvarðhald, eða til 1. febrúar, vegna gruns um aðild að skotárásinni á bíl borgarstjóra um síðastliðna helgi. 30.1.2021 15:43
Tveir verið handteknir í kjölfar skotárásarinnar Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við skotárásina á bíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Sá fyrri var handtekinn um miðja viku en á heimili hans fannst töluvert magn skotvopna, líkt og fréttastofa greindi frá í dag. Sá síðari er á fimmtugsaldri og var handtekinn í gær. 30.1.2021 14:27
Lyfjastofnun hafa borist 210 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun Lyfjastofnun hafa nú borist 210 tilkynningar vegna gruns um aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. 141 þeirra er í kjölfar bólusetningar með bóluefni Pfizer og BioNTech og 69 í kjölfar bólusetningar með bóluefni Moderna. 30.1.2021 14:27
„Þetta heldur áfram að líta vel út“ Rögnvaldur Ólafsson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir stöðuna með tilliti til kórónuveirufaraldursins líta vel út hér á landi, en lítið megi út af bregða. 30.1.2021 13:05
Segja ásakanir um sóttvarnabrot ósanngjarnar, ósannar og „hreinlega ærumeiðandi“ Hópur bachatadansara, sem sakaður var um að hafa brotið sóttvarna- og áfengislög á þriðjudag, segir ekkert til í þeim ásökunum sem honum voru borin á hendur. 30.1.2021 12:31
Allir út í garð að telja fugla um helgina Fuglavinir eru hvattir til að fylgjast með öllum fuglum sem koma í garðinn þeirra um helgina og skrá niður tegundir og fjölda því Garðfuglahelgi Fuglaverndar stendur nú yfir. Stari og snjótittlingar eru algengastir í görðum landsmanna á þessum tíma árs. 30.1.2021 12:18
Einn handtekinn með tvo riffla í tengslum við skotárásina á bíl borgarstjóra Einn hefur verið handtekinn í tengslum við skotárásina á bíl borgarstjóra um síðastliðna helgi. Töluvert magn af skotvopnum var haldlagt á heimili hans, þar af tveir rifflar. 30.1.2021 12:00
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Einn hefur verið handtekinn í tengslum við skotárásina á bíl borgarstjóra um síðastliðna helgi. Töluvert magn af skotvopnum var haldlagt á heimili hans, þar af tveir rifflar. Við segjum frá málinu í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. 30.1.2021 11:50
800 manns í Hlíðarfjalli í dag Mikið er um að vera í Hlíðarfjalli á Akureyri en fjöldi fólks nýtur sín þar nú um helgina á skíðum. Veðurskilyrði eru einstaklega góð, hægur vindur er á svæðinu og níu stiga frost. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, segir að slík umferð hafi ekki verið á svæðinu frá því í mars í fyrra. 30.1.2021 11:33
Einn greindist með veiruna í gær Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var í sóttkví. 30.1.2021 10:32
Downs-félagið kallar eftir aðgerðum heilbrigðisráðherra í ljósi ógnvekjandi tölfræði Rannsókn bendir til að fullorðnir einstaklingar með Downs-heilkenni séu fimm sinnum líklegri en aðrir til að verða lagðir inn á sjúkrahús ef þeir sýkjast af Covid-19 og tíu sinnum líklegri til að deyja af völdum sjúkdómsins. Stjórn Downs-félagsins hefur ítrekað óskað eftir því að fólk með Downs-heilkenni færist ofar í forgangsröðun við bólusetningu en ekki haft erindi sem erfiði. 30.1.2021 10:01
Fékk hundrað þúsund króna sekt og hálfsjálfvirkur riffill gerður upptækur Karlmaður hefur verið sakfelldur Í Landsrétti fyrir vopnalagabrot með því að hafa í heimildarleysi átt og haft í vörslum sínum hálfsjálfvirkan riffil og rafstuðbyssu. Voru vopnin gerð upptæk og manninum gert að greiða hundrað þúsund króna sekt, eða sæta átta daga fangelsi. 30.1.2021 09:34