Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rauðglóandi hraunið í rökkrinu Færri komust að en vildu til að berja eldgosið í Geldingadölum á Reykjanesi augum í gærkvöldi. Þeir sem þangað komu fengu að njóta náttúruaflanna og fylgjast með rauðglóandi hrauninu vella upp úr eldkeilunni sem hefur verið að myndast. 31.3.2021 23:37
Mygla fannst einnig í Korpuskóla Rakaskemmdir og mygla fannst við úttekt verkfræðistofu á Korpuskóla þangað sem börn úr Fossvogsskóla voru flutt vegna mygluvanda. Unnið verður að viðgerðum á húsnæði Korpuskóla yfir páskana. 31.3.2021 21:57
Leita að þeim sem kveiktu eld nærri Reykholti Töluverður viðbúnaður var hjá viðbragðsaðilum á Suðurlandi í kvöld þegar tilkynning um mögulegan eld í sumarhúsi skammt frá Reykholti í Árnessýslu í kvöld. Svo virðist sem að um brennu hafi verið að ræða og er þeirra sem kveiktu hana nú leitað. Þeir gætu þurft að greiða fyrir útkall slökkviliðs og lögreglu. 31.3.2021 20:37
Krummi sem heldur að hann sé hundur Hrafninn Dimma heldur að hann sé hundur því henni þykir ekkert meira skemmtilegt en að leika við Rjúpu, sem er sextíu kíló hundur á heimili við Elliðavatn. 31.3.2021 20:03
Vill fullan þunga í viðræður um tengingu krónunnar við evru Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögur um endurupptöku aðildarviðræðna við Evrópusambandið og samstarf í gjaldeyrismálum. Formaður Viðreisnar segir þjóðina eiga að fá að ákveða næstu skref í þjóðaratkvæðagreiðslu. 31.3.2021 20:01
Tveir bólusettir greinst með breska afbrigðið á Íslandi Tvö tilvik hafa komið upp þar sem bólusettir einstaklingar hafa greinst með breska afbrigði kórónuveirunnar á Íslandi. 31.3.2021 19:32
Sjö hundruð hótelherbergi fyrir fólk í sóttkví Gert er ráð fyrir að sjö hundruð herbergi verði nýtt fyrir þá sem verða skikkaðir í sóttkví á hóteli eftir komuna til landsins. Forstjóri Sjúkratrygginga segir greiðslur farþega vega þungt í heildarkostnaði. 31.3.2021 19:01
Telur sjómenn hlunnfarna um allt að milljarð á síðustu loðnuvertíð Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki greiddu tvöfalt meira fyrir loðnu til vinnslu af norskum skipum en íslenskum í síðustu loðnuvertíð. Formaður Sjómannasambandsins telur íslenska sjómenn hafa verið hlunnfarna um allt að milljarð. Forstjóri Síldarvinnslunnar segir að sínum sjómönnum hafi verið greitt það sem vantaði upp á þeirra hlut í dag. 31.3.2021 19:01
Ræða grímuskyldu við gosstöðvarnar Almannavarnir skoða nú hvort tekin verði upp grímuskylda við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Tugir þúsunda manna hafa lagt leið sína að gosinu undanfarna viku en engin grunur hefur komið upp um að kórónuveira hafi smitast á milli fólks þar enn sem komið er. 31.3.2021 18:43
Líkir árásum Samherja á Helga Seljan við ofbeldi Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins (RÚV), líkir persónulegum árásum útgerðarrisans Samherja á Helga Seljan, fréttamann RÚV, við ofbeldi sem ekki verði við unað. Ekki sé hægt að slíta ummæli Helga á samfélagsmiðlum sem siðanefnd taldi óviðeigandi úr samhengi við aðför fyrirtækisins að honum. 31.3.2021 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fimm af átta sem greindust með kórónuveiruna í gær voru utan sóttkvíar og segir sóttvarnalæknir landsmenn þurfa að búa sig undir fjölgun tilfella. Þá hafa tvö tilvik komið upp þar sem bólusettir einstaklingar hafa borið með sér breska afbrigði kórónuveirunnar til landsins. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 31.3.2021 18:01
Framhaldsskólakennarar semja Félag framhaldsskólakennara (FF) og Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS) skrifuðu í dag undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við ríkið. 31.3.2021 17:02
Bóluefni fyrir 193 þúsund fyrir júnílok Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gerir bólusetningar, nýjar reglur á landamærum og stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum að umræðuefni í því sem mætti kalla páskapistli sínum á Facebook. Henni telst til að í lok júní verði komið hingað til lands bóluefni fyrir 240 þúsund manns. 31.3.2021 16:06
RAX yfir eldgosinu í 360° myndbandi Þegar náttúran lætur til sín taka er ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, best þekktur sem RAX, ekki langt undan. Hann hefur flogið fjórum sinnum yfir eldgosinu í Geldingadal til að mynda en gosið tekur stöðugum breytingum. 31.3.2021 15:46
Ekkert páskalamb á borðum Stjörnu-Sævars Sævar Helgi Bragason sjónvarpsmaður með meiru hefur fengið gríðarleg viðbrögð við þætti sínum um ofbeit á ýmsum landsvæðum. Hann segir að menn megi ekki taka gagnrýni á kerfi svona persónulega. 31.3.2021 14:59
Leggja til endurupptöku aðildarviðræðna við ESB Þingflokkur Viðreisnar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. 31.3.2021 14:40
Styrkur svifryks langt yfir heilsuverndarmörkum Styrkur svifryks var rúmlega tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistð við Grensásveg í morgun. Hægur vindur er í borginni, götur þurrar og búist við svipuðum aðstæðum næstu daga. 31.3.2021 14:33
Þorsteinn nýr forstjóri Hafró Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. 31.3.2021 13:53
Fjarlægja Spán af lista yfir lönd skilgreind sem áhættusvæði Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis þar sem tilgreint er hvaða lönd eru skilgreind áhættusvæði vegna mikils nýgengis COVID-19 smita. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu því sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli. 31.3.2021 13:52
Kraftaverki líkast að fleiri hafi ekki veikst um borð Pétur Heimisson, umdæmislæknir sóttvarna á Austurlandi segir að það hafi verið kraftaverki líkast hversu vel hafi tekist að halda uppi smitvörnum um borð í súrálsskipinu sem liggur við Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði. 31.3.2021 13:37
Svona verður skólastarfi háttað eftir páska Staðnám verður aftur leyft á öllum skólastigum eftir páskafrí með vissum takmörkunum. Grunn-, framhalds- og háskólum var lokað síðasta fimmtudag þegar hertar sóttvarnatakmarkanir tóku gildi eftir fjölgun kórónuveirusmita. 31.3.2021 12:46
Vísar ummælum Jóhannesar Þórs til föðurhúsanna Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hafnar því alfarið að sóttvarnayfirvöld séu að grafa undan stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi svokallað litakóðakerfi sem stefnt er á að taka upp á landamærunum þann 1. maí. 31.3.2021 12:28
Hvetja ekki til páskaferðalaga og biðja fólk að sinna erindum í heimabyggð Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, beinir þeim tilmælum til fólk að hugsa vel um hvaða fólk það ætli að hitta yfir páskana. 31.3.2021 12:17
Ætlar í mál við Seltjarnarnesbæ og hugsanlega einstaka starfsmenn Seltjarnarnesbær hefur hafnað bótaskyldu í máli Margrétar Lillýar Einarsdóttur, stúlku sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi. Margrét Lillý ætlar að höfða bótamál gegn bænum og hugsanlega einstaka starfsmönnum sem komu að máli hennar. 31.3.2021 12:09
Stjórn RÚV ætlar ekki að bregðast við erindi Samherja Stjórn Ríkisútvarpsins ohf. ætlar ekki að bregðast við erindi Samherja sem hefur krafist þess að Helgi Seljan fréttamaður fjalli ekki um Samherja. 31.3.2021 12:00
BB Hótel á Ásbrú skoðað í dag fyrir sóttkvíarhótel Gert er ráð fyrir að sóttkvíarhótel verði opnað í Reykjanesbæ þegar Fosshótel við Þórunnartún fyllist. Unnið er að því að búa hótelið undir komu farþega úr þremur flugvélum á morgun. 31.3.2021 11:58
Breyttur opnunartími að eldgosinu í Geldingadölum: „Við getum ekki vaktað þetta svona lengi“ Ákveðið hefur verið að breyta opnunartíma að gosstöðvunum í Geldingadölum til þess að koma í veg fyrir umferðaröngþveiti og til þess að auka öryggi þeirra sem gosstöðvarnar sækja. Dæmi eru um að fólk sem beðið hafi í bílum sínum í allt að þrjár klukkustundir eftir að komast inn á svæðið í gær hafi verið snúið frá þegar svæðinu var lokað. 31.3.2021 11:51
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fimm voru utan sóttkvíar. 31.3.2021 11:31
Sjá ekki tengsl á milli þeirra fimm sem greindust utan sóttkvíar Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir enn sem komið er ekki hægt að sjá tengsl á milli þeirra fimm einstaklinga sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær. 31.3.2021 11:27
Gamla siðanefndin taldi ekki búandi við siðareglur RÚV Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður var formaður siðanefndar Ríkisútvarpsins en nefndin hætti störfum vegna vankanta á siðareglunum. 31.3.2021 10:56
Átta greindust innanlands og fimm utan sóttkvíar Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fimm voru utan sóttkvíar. 31.3.2021 10:47
Efnamengun á gossvæðinu getur haft skaðleg áhrif á hunda Mikil mengun er á gossvæðinu í Geldingadölum sem getur haft skaðleg áhrif á hunda og jafnframt hætta á ýmis konar slysum. Matvælastofnun mælir eindregið gegn því að hundar séu teknir með að gossvæðinu. 31.3.2021 10:37
Svona var 172. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til páskaupplýsingafundar klukkan 11 í dag. 31.3.2021 10:02
„Fjarstæðukennt er fyrir flesta að hefja gosgöngu í Grindavík“ Opnað verður fyrir umferð að gosstöðvum klukkan sex að morgni fram yfir páska, að því gefnu að það viðri vel til útivistar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum sem minnir einnig á að sóttvarnalæknir hefur hvatt fólk til að fara ekki að gosinu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. 31.3.2021 09:39
Réðst á öryggisvörð sem benti á grímuskyldu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning skömmu fyrir klukkan sex í gærkvöldi um líkamsárás í Vínbúðinni í miðbæ Reykjavíkur. 31.3.2021 06:56
Fólk á gosstöðvunum fram á nótt og óljóst hvenær verður opnað í dag Fólk var á gosstöðvunum fram á nótt og voru síðustu gestirnir ekki farnir af svæðinu fyrr en um tvöleytið að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er óljóst hvenær gossvæðið verður opnað í dag en líkt og í fyrrakvöld var því lokað á miðnætti og hófst þá rýming. 31.3.2021 06:46
Áttu að vera í sóttkví en fóru að skoða Reynisfjöru Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í dag erlendan ferðamann fyrir hraðakstur á Suðurlandsvegi vestan við Vík í Mýrdal. Við nánari skoðun kom í ljós að viðkomandi átti að vera í sóttkví. 30.3.2021 22:03
Tíndu upp leifar af hundruðum mannbrodda við eldstöðina Átta sjálfboðaliðar frá sjö löndum tíndu upp rusl við eldstöðina í Geldingadölum í dag. Fyrir utan sígarettustubba, munntóbakspoka, dósir og annað smálegt hirtu þeir upp leifar hundraða mannbrodda frá göngufólki. 30.3.2021 22:03
Hættu snarlega við öll páskaplön Landsmenn aflýstu margir páskafrísplönum strax og samkomutakmarkanir voru hertar í síðustu viku. Allt stefnir nú í rólega páska heima við, líkt og í fyrra. 30.3.2021 21:15
Dálítið eins og stjórnvöld „séu í öðrum heimi“ Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor telur að búa þurfi til heildaráætlun með heildarhagsmuni að leiðarljósi, ekki aðeins einnar atvinnugreinar, þegar litið er til komu ferðamanna hingað til lands. Hann telur viðleitni stjórnvalda til að greiða leið ferðamanna hingað til lands frá og með 1. maí koma of snemma. Hann segir að stjórnvöld virðist með áformum sínum „í öðrum heimi.“ 30.3.2021 20:52
Opna skóla eftir páskafrí með svipuðum takmörkunum og í haust Menntamálaráðherra segir stefnt á að opna skóla eftir páskafrí en með svipuðum takmörkunum og síðasta haust. 30.3.2021 20:00
Hleypa ekki fleiri bílum að gossvæðinu Lokað hefur verið fyrir bílaumferð að gossvæðinu í Geldingadölum. Mikil bílaröð myndaðist síðdegis og náði hún alla leiðina að afleggjaranum að Bláa lóninu á Grindavíkurvegi. 30.3.2021 19:30
Gosið gæti varað í mánuði eða ár Eldgos í Geldingadölum gæti varað í marga mánuði ef ekki nokkur ár, að mati Þorvalds Þórðarsonar, prófessors í eldfjallafræði. Hann segir að enn sé nóg í tankinum. 30.3.2021 19:12
Ferðamannastraumurinn hefst líklega ekki fyrr en í haust Sex sinnum fleiri komur og brottfarir verða um Keflavíkurflugvöll um páskana en í fyrra. Þær eru þó tífalt færri en árið 2019. Ferðamálastjóri telur eldgosið í Geldingadölum verða fjölfarnasta ferðamannastað landsins næstu misseri en er ekki bjartsýnn á sumarið. 30.3.2021 19:00
„Það er allt hægt, en hið ómögulega tekur aðeins lengri tíma“ Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa, segir að hafa þurfi hraðar hendur til að breyta Fosshóteli í Reykjavík í farsóttarhús. Gott hefði verið að fá meiri fyrirvara, en tilkynnt var í dag að fólk sem ferðast hingað til lands frá svokölluðum rauðum svæðum þurfi í farsóttarhús frá og með 1. apríl. 30.3.2021 18:57