Fleiri
Fólk verði að tilkynna grun um mansal 21.6.2021 22:07 Notuðu nafn Rauða krossins án samþykkis fyrir áróður gegn grasi Rauði krossinn á Íslandi segir að Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna hafi notað nafn samtakanna án samþykkis í auglýsingu sem félagið birti í Morgunblaðinu síðasta fimmtudag. Í auglýsingunni er varað við neyslu kannabis og efnið sagt geta valdið „ótímabærum dauða“. 21.6.2021 20:24 Faxaflóahafnir búast við 92 skemmtiferðaskipum Samkvæmt nýjustu áætlunum Faxaflóahafna er von á 92 skemmtiferðaskipum með 60 þúsund farþega um borð, það sem eftir lifir ári. Í byrjun árs voru 198 skemmtiferðaskipakomur til Faxaflóahafna með um 217 þúsund farþega. 21.6.2021 20:05 „Ekki vera fimmtugur, fullur og prófa þetta“ Nokkrir leita á bráðamóttöku landspítalans á hverjum degi vegna rafskútuslysa, flestir með andlitsáverka eða áverka á handleggjum. Um fjörutíu prósent slasaðra hafa verið undir áhrifum áfengis. 21.6.2021 20:01 Hundruð fá bætur fyrir umferðarslys þrátt fyrir lítið sem ekkert fjártjón Á hverju ári eru ríflega fimm milljarðar króna greiddir út í bætur vegna minniháttar líkamstjóna af völdum ökutækja - þrátt fyrir að fólk hafi orðið fyrir litlu sem engu fjártjóni, samkvæmt nýrri rannsókn. 21.6.2021 19:15 Brim hf. er sýkn af öllum kröfum slasaðs sjómanns Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í dag upp sýknudóm í máli sjómanns gegn Brimi hf. Sjómaðurinn höfðaði mál til greiðslu óskertra staðgengilslauna vegna vinnuslysa árið 2015 og 2016. 21.6.2021 18:53 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir segir að þrátt fyrir að mikið hafi reynt á ónæmið í samfélaginu að undanförnu hafi það staðiðst áraunina. Smit hafi greinst sem ekki náðu að dreifa úr sér. Hann hvetur fólk sem hefur smitast af Covid til að mæta í bólusetningu og vill horfa til gagna, en ekki tilfinningar, við ákvarðanatöku um að hætta að skima bólusetta á landamærunum. 21.6.2021 18:17 Fengu að vita hvaða skóla þau komust inn í vegna tæknilegrar villu Hópur nýútskrifaðra grunnskólanema fékk fyrir slysni forskot á sæluna á dögunum þegar tæknileg villa olli því að hægt var að sjá inni á island.is í hvaða framhaldsskóla maður hafði komist inn í. 21.6.2021 17:30 Hvar er seinni sprauta af Astra Zeneca? Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri, einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Covid-19 og sóttvörnum vegna kórónuveirunnar, veltir fyrir sér hvað dvelji Orminn langa: Seinni sprautuna af Astra Zeneca. 21.6.2021 17:29 Áhyggjuefni að fjöldi særðra eftir hnífstunguárásir tvöfaldist á milli ára Árið 2020 urðu 23 fyrir líkamstjóni vegna eggvopnsárása, sem er 109 prósentum meira en árin á undan. Á árunum 2017-2019 urðu á bilinu sjö til ellefu fyrir líkamstjóni vegna slíkra árása. 21.6.2021 16:15 Hönnunarsamkeppni: Ætla að gera Lækjartorg að rými fyrir fólk Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) hafa efnt til hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Nú er óskað eftir þátttakendum og öllum er frjáls þátttaka. 21.6.2021 14:18 Bjóða þeim sem hafa fengið Covid í bólusetningu 21.6.2021 11:57 Hóps leitað í hálfan sólarhring í mjög ósumarlegum aðstæðum á hálendinu Landsbjörg minnir göngumenn á hálendinu á að undirbúa sig nægilega vel og afla upplýsinga um aðstæður áður en haldið er af stað í ferðir, enda endurspegla aðstæður á hálendinu alls ekki árstímann. 21.6.2021 11:54 Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21.6.2021 11:54 Enginn greindist með Covid-19 um helgina Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands föstudag, laugardag eða sunnudag. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is. 21.6.2021 10:52 Búið að fresta bólusetningu með AstraZeneca Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur frestað seinni bólusetningunni með bóluefninu frá AstraZeneca, sem var fyrirhuguð á fimmtudag. 21.6.2021 09:39 Bólusett með Janssen og Pfizer í vikunni Framundan er stór vika í bólusetningum en bólusett verður með bóluefnunum frá Janssen, Pfizer og AstraZeneca, það er að segja ef síðastnefnda berst í tæka tíð. 21.6.2021 07:35 Varasamir vindstrengir á Vesturlandi Varað er við snörpum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á vesturhelmingi landsins í dag. Ekki er ferðaveður fyrir hjólhýsi eða húsbíla sem fjúka auðveldlega í hliðarvindi á þeim slóðum. 21.6.2021 07:26 Sjá næstu 50 fréttir
Einkafjármögnun og veggjald fylgja nýrri Hornafjarðarbrú Vegagerðin hefur boðið út smíði nýrrar brúar yfir Hornafjarðarfljót ásamt fjármögnun verksins. Þetta er fyrsta útboðið frá því sérstök lög voru samþykkt í fyrra sem heimila ríkinu að heimta vegtolla og semja við einkaaðila um fjármögnun samgönguframkvæmda. 22.6.2021 22:22
FÍFL er endurvakið félag lögregludeildar sem er ekki lengur til Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna (FÍFL) eru félagasamtök starfsstéttar sem er í raun ekki lengur til. Fíkniefnadeild lögreglunnar var lögð niður árið 2016 og heyrir fyrri starfsemi hennar nú undir svið miðlægrar rannsóknadeildar. Fjármagn sem FÍFL safnar hefur að mestu runnið til einkafyrirtækis með óljósu eignarhaldi. 22.6.2021 20:43
Færri eftirlegukindur skiluðu sér en vonir stóðu til Aðeins 8.500 af 14.000 skömmtum af bóluefni Janssen gegn Covid-19 gengu út í Reykjavík í dag. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslunni segir að búist hefði verið við fleiri eftirlegukindum í dag. Ungt fólk á aldrinum 24 til 33 ára mætir síst af öllum í bólusetningu hér á landi. 22.6.2021 19:10
Ábending um hryðjuverkaógn vakti sérstakan ótta lögreglu Um fimm marktækar ábendingar um hryðjuverkaógn berast ríkislögreglustjóra á hverju ári. Í byrjun árs vakti ein þeirra sérstakan ótta en reyndist svo tilhæfulaus. Aðstoðaryfirlögregluþjónn telur þó almennt litlar líkur á hryðjuverki á Íslandi. 22.6.2021 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um fimm marktækar ábendingar um hryðjuverkaógn berast ríkislögreglustjóra á hverju ári. Í byrjun árs vakti ein þeirra sérstakan ótta sem svo reyndist tilhæfulaus. Aðstoðaryfirlögregluþjónn telur þó almennt litlar líkur á hryðjuverki á Íslandi. 22.6.2021 18:00
Svona gæti hraunið litið út í lok sumars Veðurstofan og Háskóli Íslands hafa gefið út nýtt hraunflæðilíkan, sem sýnir tvær mögulegar sviðsmyndir fyrir hraunflæði úr Nátthaga. Óvissa er uppi um hvenær hraun byrjar að flæða suður úr Nátthaga eftir að svæðið fyllist af hrauni. 22.6.2021 17:23
Alveg galin hugmynd að fara að banna Hopp um helgar vegna fyllerís Framkvæmdastjóri Hopp, stærsta rafskútufyrirtækis á landinu, telur „alveg galið“ að fara að banna rafskútur um helgar til þess að forðast slys vegna ölvunar. Sú hugmynd var sett fram í nýrri skýrslu um umferðaröryggi sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg. 22.6.2021 16:46
Fjögurra ára fangelsi fyrir að brjóta gegn dóttur sinni Íslenskur karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni og vörslu barnakláms. 22.6.2021 16:30
Vara fólk við „lífshættulegum fíflaskap“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Lífshættulegur fíflaskapur – ekki hetjuskapur,“ þar sem því er beint til fólks sem leggur leið sína upp að gosstöðvunum í Geldingadölum að ganga ekki á nýstorknuðu hrauninu sem þar er að finna. 22.6.2021 15:03
Hundur seldur á uppboði hjá sýslumanni Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu verður í næstu viku með uppboð á Rjúpnabrekku Blakki, enskum setter-hundi, sem er settur á uppboð vegna slita á sameign tveggja aðila. 22.6.2021 14:59
Stúlkurnar voru í uppblásinni sundlaug á Þingvallavatni Stúlkurnar þrjár sem bjargað var úr Þingvallavatni að morgni föstudagsins 18. júní voru í uppblásinni sundlaug á vatninu. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi en áður hafði komið fram að um uppblásin bát væri að ræða. 22.6.2021 14:57
Hætt að bólusetja í dag Mæting í bólusetningu með bóluefni Janssen var heldur dræm í dag. Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að dyrunum hafi verið lokað klukkan fjögur 22.6.2021 14:40
Segir kulnun og atgervisflótta í læknastéttinni „Læknar eru bara orðnir mjög þreyttir. Þeir geta ekki hlaupið hraðar og það er ákveðin kulnun og atgervisflótti í læknastéttinni.“ Þetta segir Theódór Skúli Sigurðarson svæfinga- og gjörgæslulæknir og forsvarsmaður undirskrifasöfnunar meðal lækna. 22.6.2021 14:30
Dóra Björt segir umdeilda fíkniefnaauglýsingu óboðlega Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata fordæmir auglýsingu sem Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna birtu í síðustu viku og telur afar vafaasamt að nafn Reykjavíkurborgar sé lagt við slíkan áróður. 22.6.2021 14:02
Bongóblíða í kortunum um helgina Það er sól í kortunum á svo til öllu landinu á laugardag, en veðurfræðingur sem fréttastofa ræddi við segir að ferðalangar sem hyggjast elta góða veðrið um næstkomandi helgi eigi mestan séns á því að detta í sólríkan lukkupottinn ef haldið er austur á land, þar sem hiti gæti farið yfir 20 gráður. 22.6.2021 13:55
Haraldur segist reka öðruvísi pólitík en Þórdís Kolbrún Haraldur Benediktsson er þungt hugsi þessa dagana yfir því hvort hann þiggi annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, en í því hafnaði hann í prófkjöri flokksins um helgina. 22.6.2021 13:00
Krefjast 12 milljóna króna af Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar Hin nítján ára gamla Margrét Þ. E. Einarsdóttir og faðir hennar Einar Björn Tómasson hafa stefnt Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar bæjarfélagsins í máli Margrétar. Margrét krefst þess að Seltjarnarnesbær greiði henni níu milljónir króna í miskabætur og Einar krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. 22.6.2021 12:57
Útför Johns Snorra frá Vídalínskirkju Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 13 í dag. 22.6.2021 12:54
Fengu ómerktan vökva gegn Covid Lögregla rannsakar nú ábendingar sem Lyfjastofnun barst um að einstaklingum hafi verið afhentur vökvi í ómerktu glasi með fyrirmælum um að hann skyldi nota til meðferðar og forvarnar gegn Covid. 22.6.2021 12:15
Bein útsending: Framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu klukkan 13 í dag um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. 22.6.2021 12:15
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um skráningu Íslandsbanka í Kauphöllina en bankinn var hringdur inn í Kauphöllina í dag. Þar með er komin kona í forstjórahópinn. 22.6.2021 11:54
Öllum frjálst að mæta og fá Janssen meðan birgðir endast Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur ákveðið að allir sem vilja geti mætt í bólusetningu með bóluefni Janssen fyrir kórónuveirunni nú eftir hádegi í dag. Fólk sem hefur fengið staðfesta kórónuveirusýkingu er sérstaklega hvatt til þess að mæta. 22.6.2021 11:34
BÍ telur FÍFL hafa haft sig að fífli Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands telur Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna (FÍFL) hafa blekkt blaðamenn til þátttöku í umdeildri fíkniefnaauglýsingu. 22.6.2021 11:23
Síðasti Janssen-dagur fyrir sumarfrí Í dag verður bólusett með níu þúsund til tíu þúsund skömmtum af bóluefni Janssen við kórónuveirunni á höfuðborgarsvæðinu. Búið er að boða hópa í bólusetningu samkvæmt þeirri handahófskenndu röð sem dregið var í fyrr í mánuðinum. 22.6.2021 10:08
Segir Eyjamenn hafa hótað að opna ekki kosningamiðstöð ef Páll yrði í heiðurssæti Gunnar Egilsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa hótað að opna ekki kosningaskrifstofu í Eyjum fyrir komandi þingkosningar og draga sig úr kosningabaráttu fyrir flokkinn ef Páll Magnússon, núverandi oddviti flokksins í Suðurkjördæmi, yrði í heiðurssæti. 22.6.2021 07:01
Tveir í bifreið en neituðu báðir að vera ökumaðurinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt við að stöðva ökumenn með óhreint mjöl í pokahorninu. 22.6.2021 06:48
Kvikmyndagerð á Íslandi er mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna Um 40 prósent allra erlendra ferðamanna sem hingað koma til lands gera það eftir að hafa séð afþreyingarefni sem framleitt er á Íslandi. 21.6.2021 23:05
Notuðu nafn Rauða krossins án samþykkis fyrir áróður gegn grasi Rauði krossinn á Íslandi segir að Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna hafi notað nafn samtakanna án samþykkis í auglýsingu sem félagið birti í Morgunblaðinu síðasta fimmtudag. Í auglýsingunni er varað við neyslu kannabis og efnið sagt geta valdið „ótímabærum dauða“. 21.6.2021 20:24
Faxaflóahafnir búast við 92 skemmtiferðaskipum Samkvæmt nýjustu áætlunum Faxaflóahafna er von á 92 skemmtiferðaskipum með 60 þúsund farþega um borð, það sem eftir lifir ári. Í byrjun árs voru 198 skemmtiferðaskipakomur til Faxaflóahafna með um 217 þúsund farþega. 21.6.2021 20:05
„Ekki vera fimmtugur, fullur og prófa þetta“ Nokkrir leita á bráðamóttöku landspítalans á hverjum degi vegna rafskútuslysa, flestir með andlitsáverka eða áverka á handleggjum. Um fjörutíu prósent slasaðra hafa verið undir áhrifum áfengis. 21.6.2021 20:01
Hundruð fá bætur fyrir umferðarslys þrátt fyrir lítið sem ekkert fjártjón Á hverju ári eru ríflega fimm milljarðar króna greiddir út í bætur vegna minniháttar líkamstjóna af völdum ökutækja - þrátt fyrir að fólk hafi orðið fyrir litlu sem engu fjártjóni, samkvæmt nýrri rannsókn. 21.6.2021 19:15
Brim hf. er sýkn af öllum kröfum slasaðs sjómanns Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í dag upp sýknudóm í máli sjómanns gegn Brimi hf. Sjómaðurinn höfðaði mál til greiðslu óskertra staðgengilslauna vegna vinnuslysa árið 2015 og 2016. 21.6.2021 18:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir segir að þrátt fyrir að mikið hafi reynt á ónæmið í samfélaginu að undanförnu hafi það staðiðst áraunina. Smit hafi greinst sem ekki náðu að dreifa úr sér. Hann hvetur fólk sem hefur smitast af Covid til að mæta í bólusetningu og vill horfa til gagna, en ekki tilfinningar, við ákvarðanatöku um að hætta að skima bólusetta á landamærunum. 21.6.2021 18:17
Fengu að vita hvaða skóla þau komust inn í vegna tæknilegrar villu Hópur nýútskrifaðra grunnskólanema fékk fyrir slysni forskot á sæluna á dögunum þegar tæknileg villa olli því að hægt var að sjá inni á island.is í hvaða framhaldsskóla maður hafði komist inn í. 21.6.2021 17:30
Hvar er seinni sprauta af Astra Zeneca? Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri, einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Covid-19 og sóttvörnum vegna kórónuveirunnar, veltir fyrir sér hvað dvelji Orminn langa: Seinni sprautuna af Astra Zeneca. 21.6.2021 17:29
Áhyggjuefni að fjöldi særðra eftir hnífstunguárásir tvöfaldist á milli ára Árið 2020 urðu 23 fyrir líkamstjóni vegna eggvopnsárása, sem er 109 prósentum meira en árin á undan. Á árunum 2017-2019 urðu á bilinu sjö til ellefu fyrir líkamstjóni vegna slíkra árása. 21.6.2021 16:15
Hönnunarsamkeppni: Ætla að gera Lækjartorg að rými fyrir fólk Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) hafa efnt til hönnunarsamkeppni um Lækjartorg og aðliggjandi gatnarými. Nú er óskað eftir þátttakendum og öllum er frjáls þátttaka. 21.6.2021 14:18
Hóps leitað í hálfan sólarhring í mjög ósumarlegum aðstæðum á hálendinu Landsbjörg minnir göngumenn á hálendinu á að undirbúa sig nægilega vel og afla upplýsinga um aðstæður áður en haldið er af stað í ferðir, enda endurspegla aðstæður á hálendinu alls ekki árstímann. 21.6.2021 11:54
Útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn sem gefin hefur verið í lögfræðinni Guðrún Sólveig Pöpperl gerði sér lítið fyrir og útskrifaðist með hæstu meðaleinkunn á BA-prófi í lögfræði sögu Háskóla Íslands. 21.6.2021 11:54
Enginn greindist með Covid-19 um helgina Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands föstudag, laugardag eða sunnudag. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is. 21.6.2021 10:52
Búið að fresta bólusetningu með AstraZeneca Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur frestað seinni bólusetningunni með bóluefninu frá AstraZeneca, sem var fyrirhuguð á fimmtudag. 21.6.2021 09:39
Bólusett með Janssen og Pfizer í vikunni Framundan er stór vika í bólusetningum en bólusett verður með bóluefnunum frá Janssen, Pfizer og AstraZeneca, það er að segja ef síðastnefnda berst í tæka tíð. 21.6.2021 07:35
Varasamir vindstrengir á Vesturlandi Varað er við snörpum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á vesturhelmingi landsins í dag. Ekki er ferðaveður fyrir hjólhýsi eða húsbíla sem fjúka auðveldlega í hliðarvindi á þeim slóðum. 21.6.2021 07:26