Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skoða ekki persónuleg samskipti lögreglumanna „um daginn og veginn“ Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur ritað öllum lögreglumönnum í landinu bréf þar sem áréttað er að nefndin hlusti ekki eftir persónulegum samskiptum á milli lögreglumann „um daginn og veginn“ þegar nefndin skoðar efni úr búkmyndavélum lögreglumannna vegna kvartana yfir störfum þeirra. 17.8.2021 17:59
Heita vatnið kemur aftur í kvöld Víða er enn heitavatnslaust í Vesturbænum en vatnið átti að koma aftur á klukkan 16 í dag. Það var tekið af í morgun til að tengja lagnir fyrir nýja Landspítalann en ætti að vera komið aftur á hjá flestum fyrir klukkan 20 í kvöld. 17.8.2021 17:41
Skiluðu inn minnisblaði til ráðherra Tuttugu og sjö sjúklingar liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19, þar af sex á gjörgæslu og eru fimm þeirra bólusettir. Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans og Már Kristjánsson yfirlæknir hafa skilað inn minnisblaði til ráðherra um stöðu mála á Landspítalanum í fjórðu bylgju kórónuveirufaraldursins sem nú stendur yfir. 17.8.2021 17:28
Sósíalistar og Miðflokkurinn á svipuðu róli Engar marktækar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna á milli mánaða nema Sósíalistaflokksins í nýrri skoðanakönnun Gallup. Flokkurinn mælist nú með tæplega sjö prósenta fylgi, jafnmikið og Miðflokkurinn. 17.8.2021 15:34
Allt stopp á Heilsustofnun eftir að skjólstæðingur greindist Skjólstæðingur á Heilsustofnun í Hveragerði greindist með Covid-19 um hádegisbil í dag. Gert hefur verið hlé á öllu endurhæfingarstarfi vegna þessa á meðan unnið er að smitrakningu. 17.8.2021 15:34
Vilja skoða önnur úrræði vegna sóttkvíar barna Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er velt upp hvort ekki sé hægt að beita vægari úrræðum en sóttkví heilu bekkjanna og árganganna þegar smit koma upp í skólum. Hraðpróf hljóti að koma til álita ef ekki eigi að lama skólastarf ítrekað í vetur, og þar með samfélagið allt. 17.8.2021 15:14
Finnur fyrir aukinni aðsókn í sýnatöku: „Brjálað að gera á öllum vígstöðvum“ Gríðarlega löng röð myndaðist fyrir utan húsnæði heilsugæslunnar við Suðurlandsbraut í dag. Nú rétt eftir hádegi höfðu tvö þúsund manns skráð sig í sýnatöku í dag og finnur Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, formaður hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fyrir aukinni aðsókn. 17.8.2021 14:02
Karlmaðurinn kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir eftir Símoni Símonarsyni, 73 ára. 17.8.2021 13:51
Einn ísraelsku ferðamannanna talinn of veikur til að fljúga heim Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur nú að flutningum á fimm ísraelskum ferðamönnum sem greinst hafa með kórónuveiruna út á Keflavíkurflugvöll. Þaðan munu þeir fljúga með sjúkraflugi aftur til heimalandsins. Til stóð að flytja einn ferðamann til viðbótar, en ákveðið var að slá því á frest þar sem hann var metinn of veikur til að öruggt væri að flytja hann. 17.8.2021 13:29
Elsti kvenoddvitinn frestar ballettþátttöku fyrir stjórnmálin Helga Thorberg leikkona og garðyrkjufræðingur er elsta kona til að vera oddviti flokks í framboði til alþingiskosninga í haust. Hún fer fram fyrir Sósíalistaflokkinn í Norðvesturkjördæmi og segist hissa á að ekki skuli vera fleiri konur á hennar aldri að leiða lista að þessu sinni. 17.8.2021 12:17
Spítalinn í viðræðum við erlendar starfsmannaleigur vegna skorts á hjúkrunarfræðingum Viðræður standa nú yfir á milli Landspítala og starfsmannaleiga erlendis vegna vöntunar á sérhæfðum gjörgæsluhjúkrunarfræðingum. Þetta segir forstöðumaður á spítalanum sem fagnar samningi heilbrigðisráðherra og einkarekinna læknamiðstöðva en segir aðgerðina ekki duga til. 17.8.2021 12:00
Hefðu viljað sjá betri mætingu í örvunarbólusetningu Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að heilsugæslan myndi þiggja betri mætingu á meðal þeirra sem hafa verið boðaðir í örvunarskammt. 17.8.2021 11:47
Ætlaði að sækja 27 þúsund krónur en fékk 27 milljónir Báðir vinningshafarnir sem skiptu með sér 54,8 milljóna króna Lottópotti frá 7. ágúst hafa gefið sig fram. Að sögn Íslenskrar getspár komst annar þeirra í leitirnar þegar undrandi kona leit við í höfuðstöðvum fyrirtækisins í gær. 17.8.2021 11:36
Tvenn íslensk hjón með börn enn í Kabúl Annar þeirra tveggja íslensku ríkisborgara sem sinnt hafa verkefnum fyrir stofnanir Atlantshafsbandalagsins í Afganistan er kominn til Sameinuðu arabísku furstadæmanna heilu og höldnu. Utanríkisráðuneytinu er nú kunnugt um tíu íslenska ríkisborgara sem enn eru staddir í afgönsku höfuðborginni Kabúl. 17.8.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá því að um helmingi fleiri greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær en í fyrradag. 17.8.2021 11:26
Telja skjálftana tengjast niðurdælingu jarðhitavatns Vísindafólk Orku náttúrunnar telur líklegt að röð jarðskjálfta við Húsmúla, vestan undir Hengli, frá því um tíuleytið í gærkvöldi tengist niðurrennsli jarðhitavatns frá Hellisheiðarvirkjun. 17.8.2021 11:15
Tuttugu vistmenn á Vernd komnir í sóttvarnahús eftir að tveir greindust Tveir vistmenn á áfangaheimilinu Vernd greindust með Covid-19 um helgina. Þeir voru í kjölfarið fluttir á sóttvarnahús auk átján annarra vistmanna sem komnir eru í sóttkví. Starfsfólk Verndar er jafnframt komið í heimasóttkví. 17.8.2021 11:08
„Grímsey varð að draugaeyju í nokkra daga“ Kórónuveiran greindist í fyrsta sinn í Grímsey í síðustu viku. Allir íbúar fóru í sóttkví. 17.8.2021 10:56
103 greindust smitaðir innanlands í gær Í gær greindust minnst 103 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 48 í sóttkví og 55 utan sóttkvíar. Enn er ekki komið fram hve margir þeirra voru bólusettir. 17.8.2021 10:48
Ávarpaði fund World Pride Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði fund World Pride með norrænum jafnréttisráðherrum í Kaupmannahöfn í gær með fjarfundabúnaði. 17.8.2021 10:19
Fólki fæddu 1931 eða fyrr boðið að fá örvunarskammt Boðið verður upp á örvunarskammt með mRNA bóluefni fyrir fólk sem fætt er 1931 eða fyrr á fimmtudaginn næsta. Bólusett verður í Laugardalshöll, en ekki verða sérstaklega send út SMS-skilaboð. 17.8.2021 10:00
Mönnun stóra vandamál Landspítalans Stóra vandamál Landspítalans er mönnun, að mati Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Hún segir þörf á að bæta kjör og auka framboð á menntun heilbrigðisstarfsfólks. 17.8.2021 09:11
Um hundrað hafi greinst með veiruna í gær Um það bil hundrað manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, að sögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns. Opinberar tölur verða þó ekki birtar fyrr en um klukkan ellefu. 17.8.2021 08:47
Skora á stjórnvöld að taka á móti hinsegin flóttafólki frá Afganistan Samtökin 78 hafa skorað á stjórnvöld að taka á móti afgönsku flóttafólki nú þegar Talibanar hafi á síðustu dögum rænt völdum í Afganistan. 17.8.2021 07:33
Skýjað og strekkingur syðst á landinu Í dag verður vestlæg eða breytileg átt 3-8 á sekúndu í dag en strekkingur um tíma syðst á landinu. 17.8.2021 06:51
Heitavatnslaust í Vesturbæ Íbúar í Vesturbæ Reykjavíkur hafa eflaust margir orðið þess varir í morgunsárið að það er heitavatnslaust í bæjarhlutanum. 17.8.2021 06:45
Jakob Frímann verður oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi Jakob Frímann Magnússon tónlistar- og athafnamaður skipar fyrsta sætið á lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. 17.8.2021 06:15
Þrír menn handteknir á lokuðu hafnarsvæði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um þrjá menn á lokuðu hafnarsvæði í póstnúmeri 104. Voru þeir handteknir grunaðir um húsbrot og vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknarhagsmuna. 17.8.2021 06:11
Skjálfti við Hellisheiðarvirkjun Jarðskjálfti, 3,1 að stærð varð í kvöld rétt fyrir klukkan ellefu rétt tæpa þrjá kílómetra norður af Hellisheiðarvirkjun. 16.8.2021 23:27
Nýjasta gosopið í góðum gír Þótt það sé lítið er góður gangur í nýjasta gosopinu í eldgosinu við Fagradalsfjalli, líkt og sjá má í beinni vefútsendingu Vísis frá gosstöðvunum. 16.8.2021 22:40
Vinnuveitendur geti sagt upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu Vinnuveitendur á almennum vinnumarkaði geta ekki skyldað starfsfólk til þess að undirgangast bólusetningu. Þeir geta þó ákveðið að segja upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu. 16.8.2021 22:31
Krefst varanlegra úrbóta vegna ólyktar í Grafarvogi Íbúar Grafavogs eru orðnir langþreyttir á ólykt sem leggur yfir hverfið að sögn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hún krefst þess að fundin verði varanleg lausn á vandanum. 16.8.2021 21:00
Afhjúpuðu nýjan rafmagnsbíl á Háskólatorgi Team Spark, kappaksturs- og hönnunarlið Háskóla Íslands, afhjúpaði í dag nýjan rafknúinn kappakstursbíl sem liðið hefur unnið að undanfarin tvö ár í krefjandi aðstæðum kórónuveirufaraldursins. 16.8.2021 19:50
Kippir sér ekki upp við furðuleg augnaráð þegar hann ferðast um á hlaupahjóli hringinn í kringum landið Hugh Graham er 26 ára Breti sem ferðast nú á hlaupahjóli hringinn í kringum landið. Hann kippir sér ekki upp við furðuleg augnaráð á þjóðveginum og segir dvölina á Íslandi bestu vikur lífs síns. 16.8.2021 19:33
Sveitarfélögin setji leiðbeiningar um frekari takmarkanir innan skólastarfs Í dag voru tæplega 400 börn í sóttkví vegna smita sem komu upp á leikskólum og frístundaheimilum. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur vinnur nú að leiðbeiningum í samstarfi við önnur sveitarfélög og Almannavarnir til að fækka smitum innan skóla og frístundaheimila. 16.8.2021 18:59
Vitað um sjö íslenska ríkisborgara í Kabúl Íslenskum stjórnvöldum er kunnugt um sjö íslenska ríkisborgara sem staddir eru í Kabúl í Afganistan. 16.8.2021 18:35
Nokkuð ljóst að sjálfstætt gosop hafi myndast Nokkuð ljóst er að sjálfstætt gosop hafi myndast rétt við megingíg eldgossins við Fagradalsfjall. Gosopið sést glögglega á vefmyndavélum. 16.8.2021 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öryggis- og varnarmálafræðingur segir skert mannréttindi bíða íbúa Afganistans eftir að Talibanar tóku stjórnina í landinu í gær. Ringulreið hefur ríkt á alþjóðaflugvellinum í Kabúl þar sem reynt er að flytja starfsfólk sendiráða á brott.Fjallað verður ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 16.8.2021 18:10
„Hvað gerðist á Íslandi?“ „Hvað gerðist á Íslandi?“Þessari spurningu er velt upp í nýrri umfjöllun Washington Post um stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. 16.8.2021 17:33
Hörð aftanákeyrsla við Litlu kaffistofuna Umferðaróhapp varð við Litlu kaffistofuna fyrr í dag þegar fólksbíll keyrði aftan á kyrrstæðan sendiferðabíl og hringsnerist á veginum. 16.8.2021 16:24
Trúði ekki eigin augum þegar piltur ógnaði þeim með hníf Auði Jónsdóttur rithöfundi brá heldur betur í brún um helgina þegar hversdagslegar aðstæður við Drekann hjá Káratorgi í miðbæ Reykjavíkur tóku skyndilega á sig ógnvænlega mynd. 16.8.2021 16:12
Jakob Frímann í viðræðum um að leiða Flokk fólksins í NA-kjördæmi Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður kemur sterklega til greina sem oddviti fyrir Flokk fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. 16.8.2021 15:00
Börn í borginni mæta í bólusetningu eftir viku Bólusettir farþegar sem búa hér á landi eða hafa tengsl við Ísland þurfa frá og með deginum í dag að fara í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komu til landsins. Þá hófust bólusetningar að nýju í Laugardalshöll í morgun þar sem örvunarsprautur eru í boði. Börn á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 12-15 ára mæta í Laugardalshöll á mánudag og þriðjudag í næstu viku. 16.8.2021 13:10
Hafa flest tól og tæki til að sinna eftirliti með fiskeldi Matvælastofnun telur sig vel í stakk búna til að hafa eftirlit með fiskeldisfyrirtækjum á landinu. Farið verði í saumana á myndefni af illa förnum laxi úr sjókvíum á Vestfjörðum sem kajakræðari tók í vor. 16.8.2021 13:01
Ekki von á róttækum breytingum á reglum um sóttkví Sóttvarnalæknir segir smitaða ferðamenn frá Ísrael auka álagið á heilbrigðiskerfið en þrjátíu Ísraelar hafa greinst hér á landi og er að minnsta kosti einn þeirra alvarlega veikur af Covid-19. Hann ætlar að byggja nýtt minnisblað til heilbrigðisráðherra á formlegu erindi sem hann býst við frá Landspítalanum á næstu dögum. Hann á ekki von á róttækum breytingum hvað varðar reglur um sóttkví. 16.8.2021 12:57