Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Ekkert til sem heitir endurtalning þegar búið er að skila niðurstöðum“ Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir furðulegt að yfirkjörstjórnin í Suðurkjördæmi sé að velta því fyrir sér hvort hún eigi að boða til endurtalningar, á sama tíma og ekki liggur fyrir hvort hún hefur raunverulega heimild til þess. 27.9.2021 13:04
Telur eðlilegt að telja aftur í öllum kjördæmum Oddviti Vinstri grænna í Suðurkjördæmi segir slæmt að upplifa að traust á talningu atkvæða hafi rofnað. Hún ásamt fulltrúum þriggja annarra flokka hafa farið fram á endurtalningu atkvæða í kjördæminu. 27.9.2021 13:00
Formenn flokka bíða átekta Nýir þingflokkar ríkisstjórnarinnar komu saman, hver í sínu lagi, í morgun og stefna á að hefja stjórnarmyndunarviðræður í dag eða á allra næstu dögum. Gert er ráð fyrir að þeir muni bítast um stól forsætisráðherra. 27.9.2021 12:48
Hástökkvari kosninganna í skýjunum Ingibjörg Isaksen, nýkjörinn fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis og oddviti Framsóknarflokksins segir umboð flokksins í kosningunum sterkt í kjördæminu eftir kosningarnar. Skilaboð þess efnis að ráðherraembætti eigi að fylgja árangrinum í kjördæminu séu farin að berast, þó allt slíkt verði bara að koma í ljós. 27.9.2021 12:25
Vill skýrslu frá öllum yfirkjörstjórnum um kosningarnar Kristín Edwald, formaður Landskjörstjórnar, segir að óskað hafi verið eftir skýrslum frá yfirkjörstjórnum í öllum kjördæmum um framkvæmd kosninga. Beiðni liggi fyrir um endurtalningu í Suðurkjördæmi en annars sé mat á endurtalningu í höndum yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi. 27.9.2021 12:14
Stöðva þurfti sýningu Níu lífa í 25 mínútur vegna bilunar Gera þurfti 25 mínútna hlé á sýningu Níu lífa vegna bilunar hringsviðsins í Borgarleikhúsinu. Tæknimenn hússins brugðust skjótt og fagmannlega við bilun og björguðu málunum. Tjón var ekki tilfinnanlegt. 27.9.2021 12:00
Bíll endaði í sjónum á Ísafirði Bíll endaði út í sjó á Ísafirði í morgun vegna slæmrar færðar á vegum. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vestfjörðum var einn í bílnum og sakaði hann ekki. Lögreglan segir leiðindafærð á svæðinu en allt hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir það. 27.9.2021 11:57
Ófullnægjandi meðferð kjörgagna skuli tekin „mjög alvarlega“ Logi Már Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir að öll framboð til Alþingis hljóti að vera sammála um að enginn afsláttur sé í boði á tilhlýðilegri framkvæmd kosninga. 27.9.2021 11:52
Magnús Davíð kærir til kjörbréfanefndar og krefst uppkosningar Magnús Davíð Norðdahl oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. 27.9.2021 11:33
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um óvissu sem uppi er um úrslit kosninganna í Norðvesturkjördæmi en Karl Gauti Hjaltason frambjóðandi Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi ætlar að kæra framkvæmdina til lögreglu. 27.9.2021 11:30
Karl Gauti ætlar að kæra framkvæmd kosninga til lögreglu Karl Gauti Hjaltason, fráfarandi þingmaður Miðflokksins, er í þessum skrifuðu orðum að vinna að kæru til lögreglu. Krafa hans er skýr, að upplýst verði um atvik í Norðvesturkjördæmi þar sem ráðist var í endurtalningu. 27.9.2021 11:09
Spá norðvestan stórhríð á Vestfjörðum og við Breiðafjörð Veðurstofa Íslands spáir nú norðvestan stórhríð á Vestfjörðum á morgun. Gera má ráð fyrir 18 til 25 m/s og talsverðri snjókomu, með skafrenningi og lélegu skyggni. Þá segir Veðurstofa hættu á foktjóni og um að ræða „alls ekkert ferðaveður“. 27.9.2021 10:56
Fullyrðir að traust á niðurstöðum kosninga sé horfið Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og formaður stjórnarskrárfélagsins, segir að traust á kosningum til löggjafarþingsins sé horfið. Hún hefur Jón Þór Ólafsson fyrrverandi þingmann fyrir því að innsigli á kjörkössum séu ítrekað rofin. 27.9.2021 10:26
Fjórir flokkar hafa nú farið fram á endurtalningu í Suðurkjördæmi Fjórir stjórnmálaflokkar hafa nú farið fram á endurtalningu atkvæða í Suðurkjördæmi. Umboðsmenn Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokksins hafa nú tekið undir kröfu Vinstri grænna um endurtalningu – kröfu sem Píratar tóku undir í gær. 27.9.2021 08:47
„Það er ekki mín pólitík og það er ekki pólitík Framsóknar“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir það hvorki sína pólitík né pólitík Framsóknarflokksins, að setja fram kröfur og hóta því að ganga frá borði ef þær eru ekki uppfylltar. 27.9.2021 08:23
Ljóst að margir hafi ekki verið með hugann við sóttvarnir um helgina Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist vona að mannamót helgarinnar – bæði kosningavökur stjórnmálaflokka og fögnuðir tengdum fótbolta – komi ekki til með að skila sér í fjölgun kórónuveirusmita í samfélaginu. Hann segir ljóst að margir hafi ekki sérstaklega haft hugann við sóttvarnir um liðna helgi og að hann voni að það komi ekki í bakið á okkur. 27.9.2021 08:18
Fleiri vilja endurtalningu í Suðurkjördæmi Píratar í Suðurkjördæmi hafa nú tekið undir kröfu Vinstri grænna um að atkvæði í kjördæminu verði endurtalin en þar munar sjö atkvæðum á lista Vinstri grænna, sem náðu ekki inn manni, og Miðflokksins sem fékk síðasta kjördæmakjörna þingmanninn. 26.9.2021 23:28
Stálu senunni á kjörstað Fjölskylda á Selfossi stal senunni í gær þegar hún fór að kjósa uppáklædd faldbúningi frá 17. öld og herrabúningi frá 18. öld. Þá var barnabarnið í 19. aldar upphlut. 26.9.2021 22:59
Hvergi talið aftur nema mögulega í Suðurkjördæmi Ekki stendur til að telja aftur atkvæði í Alþingiskosningunum sem fram fóru í gær í neinu þeirra kjördæma þar sem endurtalning hefur ekki þegar farið fram. Beiðni um endurtalningu hefur þó komið fram í einu kjördæmi. Endurtalning í Norðvesturkjördæmi í dag skilaði breyttri niðurstöðu sem olli því að fimm jöfnunarþingmenn duttu út af þingi og aðrir komu í þeirra stað. 26.9.2021 22:32
„Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum“ Helga Vala Helgadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík norður, setti fram færslu á Twitter í kvöld með fullyrðingunni: „Það er ekki kosningin sem skiptir máli heldur hvernig talið er upp úr kössunum". Hún kveðst hafa komist að þessum sannleik í kosningaeftirliti sínu í Hvíta-Rússlandi fyrir nokkrum árum. 26.9.2021 22:02
Deildar meiningar um niðurstöður kosninganna Skiptar skoðanir eru um niðurstöður kosninganna meðal fólks sem fréttastofa ræddi við í dag. Sumir eru himinlifandi með að ríkisstjórnin hafi haldið velli á meðan aðrir hefðu viljað sterkari vinstri slagsíðu. 26.9.2021 21:31
Viðurkennir að hafa ekki innsiglað kjörseðla og ber fyrir sig hefð Formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi segir að kjörgögn hafi ekki verið innsigluð að talningu lokinni. Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í kjördæminu, segir trúverðugleika kosninganna engan og segir einu færu leiðina vera að kosið verði aftur í kjördæminu. 26.9.2021 21:23
„Hryllileg rússíbanareið“ „Þetta er hryllileg rússíbanareið sem þetta jöfnunarsætakerfi býr til,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, sem nú er orðinn jöfnunarþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, eftir að endurtalning atkvæða í Norðvesturkjördæmi breytti stöðunni varðandi jöfnunarþingmenn víða um land. 26.9.2021 19:59
„Þetta voru góðir níu tímar“ Hljóðið var misgott í þeim sem fengu nú fyrir skemmstu þær fréttir að þeir væru dottnir út sem jöfnunarþingmenn flokka sinna eftir endurtalninguna í Norðvesturkjördæmi. Endurtalningin leiddi í ljós mistök í fyrri tölum sem urðu til þess að jöfnunarsæti í fimm kjördæmum breyttust. 26.9.2021 19:47
Skýrist á næstu dögum hvort stjórnarsamstarfið verði endurnýjað Það kemur í ljós á næstu dögum hvort stjórnarflokkarnir endurnýja samstarf sitt eftir gott gengi í kosningunum í gær sem mikil fylgisaukning Framsóknarflokksins skilaði stjórninni.Flokkur fólksins vann góðan sigur en aðrir stjórnarandstöðuflokkar ýmist töpuðu fylgi eða bættu litlu við sig. 26.9.2021 19:19
Vinstri græn biðja um endurtalningu í Suðurkjördæmi Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis hefur borist beiðni um endurtalningu atkvæða í kjördæminu. Mjótt var á mununum í kjördæminu og nokkur atkvæði til eða frá geta breytt stöðunni, líkt og endurtalning dagsins í Norðvesturkjördæmi hefur sýnt. 26.9.2021 19:18
Með eitt skot í byssunni og ætlar að nýta það vel Fjöldi nýrra þingmanna tekur sæti á Alþingi í haust. Meðal þeirra er Tómas A. Tómasson, sem hefur verið kenndur við Búlluna, og kemur nýr inn á þing fyrir Flokk fólksins. Tómas verður elsti þingmaður Alþingis og segist stoltur af því. 26.9.2021 19:07
Konur ekki lengur í meirihluta á Alþingi eftir endurtalningu Þegar lokatölur úr öllum kjördæmum í Alþingiskosningunum lágu fyrir í morgun var útlit fyrir að konur yrðu í meirihluta á Alþingi, í fyrsta sinn í sögunni. Eftir að endurtalning í Norðvesturkjördæmi breytti röðun jöfnunarþingmanna er sá meirihluti hins vegar að engu orðinn. 26.9.2021 18:47
Svolítið feginn að mega vera áfram í gallajakkanum að rífa kjaft Sósíalistar ætla að verða öflugasta stjórnarandstöðuaflið á kjörtímabilinu þrátt fyrir að hafa ekki náð inn á þing. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins segist örlítið feginn að geta áfram rifið kjaft utan Alþingis. 26.9.2021 18:47
Kvöldfréttir Stöðvar 2: Endurtalning atkvæða breytir stöðunni Farið verður ítarlega yfir tíðindi og niðurstöður Alþingiskosninga, sem fóru fram í gær, í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar kl. 18:30. Í ljós mun koma á næstu dögum hvort stjórnarflokkarnir endurnýja samstarf sitt eftir gott gengi í kosningunum og mun Heimir Már Pétursson fara yfir málið. 26.9.2021 18:11
Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi Eftir endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi sem lauk nú síðdegis kom í ljós að atkvæði Viðreisnar höfðu verið oftalin um 9 og atkvæði Miðflokksins um 5. Þetta hrindir af stað mikilli hringekju við útdeilingu jöfnunarþingsæta. 26.9.2021 18:09
„Kannski full truntulegur á köflum“ Gráglettinn kveðjupistill Brynjars Níelssonar fyrrverandi þingmanns er nú á miklu flugi á Facebook. 26.9.2021 16:56
„Við munum alltaf standa upp aftur“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir niðurstöðu kosninganna óvæntustu kosningaúrslit sem hann hefur upplifað. 26.9.2021 16:25
Ekki talin þörf á endurtalningu í Suðurkjördæmi þó mjótt sé á munum Formaður kjörstjórnar í Suðurkjördæmi segir ekki ástæðu til að ráðast í endurtalningu á atkvæðum í umdæminu þrátt fyrir að afar mjótt sé á munum. Gerð var úttekt á vinnubrögðum og verkferlum í dag og kom engin villa upp þegar tíu prósent kjörseðla höfðu verið skoðaðir. 26.9.2021 16:14
Þrír fluttir með þyrlu eftir árekstur og bílveltu á Holtavörðuheiði Þrír slösuðust í umferðarslysi á Holtavörðuheiðinni á þriðja tímanum í dag. Voru þeir fluttir á Landspítalann með þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti við spítalann á fimmta tímanum. 26.9.2021 15:04
Telja öll atkvæði aftur í Norðvesturkjördæmi Öll atkvæði í Norðvesturkjördæmi verða talin aftur vegna þess hversu lítill munur var á jöfnunarþingmönnum á milli kjördæma. Yfirmaður kjörstjórnar þar segir að við endurtalninguna gætu orðið hreyfingar á jöfnunarsætum flokka. 26.9.2021 14:57
Kynningin frekar en Klaustur sem kostaði Miðflokkinn Miðflokkurinn þarf að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í kynningarmálum sínum fyrir Alþingiskosningarnar, að mati Karls Gauta Hjaltasonar, eins þriggja fulltrúa hans sem náðu sæti á þingi. Hann telur ekki að Klaustursmálið hafi skemmt fyrir flokknum. 26.9.2021 14:40
„Stjórnarandstaðan skíttapaði einfaldlega“ Samfylkingarfólk veltir fyrir sér hvað hafi eiginlega gerst í kosningunum? Óhætt er að segja að vinstri menn vita vart hvaðan á þá stendur veðrið en þeir gengu vonglaðir til kosninga eftir að skoðanakannanir höfðu gefið fyrirheit um betri tíð með blóm í haga. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir stjórnarandstöðuna einfaldlega hafa skíttapað kosningabaráttunni. 26.9.2021 14:40
Heimspressan fjallar um sögulegan sigur kvenna í kosningunum Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um Alþingiskosningarnar þar sem sérstaklega hefur verið einblínt á þá staðreynd að konur verði í fyrsta sinn í meirihluta á þingi. Með þessu verður Ísland fyrsta landið í sögu Evrópu til að verða með lýðræðislega kjörið þing þar sem konur eru í meirihluta. 26.9.2021 13:37
Guðmundur Franklín kominn með nóg Kjósendur mega ekki búast við því að Guðmundur Franklín Jónsson verði á lista Frjálslynda lýðræðisflokksins í sveitarstjórnarkosningum næsta árs. Hann segist ætla að taka sér hlé eftir að flokkurinn náði ekki hálfu prósentustigi atkvæða í Alþingiskosningunum í gær. 26.9.2021 13:27
Fundu fyrir að þau væru litli kallinn innan um þau stóru dagana fyrir kjördag Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir að flokknum hafi reynst erfitt að keppa við „vellauðuga flokka“ í kosningabaráttunni. Sérstaklega hafi flokksmenn fundið fyrir því að þeir væru „litli kallinn“ innan um þau stóru síðustu dagana fyrir kjördag. 26.9.2021 12:59
Sú yngsta inn og Brynjar út: „Ég hef bara aldrei séð hana áður“ Þau Lenya Rún Taha Karim og Sigmar Guðmundsson voru öllu ánægðari með niðurstöðu kosninganna í nótt en Brynjar Níelsson. Brynjar hafði skipti við Lenyu sem þingmaður í Reykjavík en kennir henni ekki um. Enda hafi hann aldrei séð hana áður. 26.9.2021 12:22
Enginn hasar á Bessastöðum í dag Engir leiðtogar verða boðaðir á fund forseta Íslands í dag þar sem ríkisstjórnin missti ekki meirihluta sinn. Forsetinn metur það svo að með tilliti til niðurstaðna sé hægt að stimpla Framsókn og Flokk fólksins sem sigurvegara kosninganna. 26.9.2021 11:50
Gunnar Smári sagður hafa rekið glæsilega kosningabaráttu fyrir Ingu Sæland Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar telur ekki ólíklegt að Flokkur fólksins hafi notið góðs af kosningabaráttu Sósíalistaflokksins. 26.9.2021 11:43
Æsispennandi kosninganótt og 23 nýir þingmenn 23 nýliðar taka sæti á Alþingi samkvæmt lokatölum úr öllum kjördæmum. Brynjar Níelsson og Guðmundur Andri Thorsson eru dottnir út af þingi en Lenya Rún og Arndís Anna fara inn fyrir Pírata. 26.9.2021 11:30