Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vann súrefni úr marsnesku lofti í fyrsta sinn Tæki um borð í könnunarjeppanum Perseverance á reikistjörnunni Mars vann súrefni úr lofti þar í fyrsta skipti í vikunni. Tilrauninni er ætlað að kanna fýsileika þess að vinna súrefni á staðnum sem er forsenda fyrir því að hægt verði að senda menn til Mars í framtíðinni. 23.4.2021 21:01
Lögreglukona látin eftir stunguárás nærri París Frönsk lögreglukona er látin eftir að árásarmaður vopnaður eggvopni réðst inn á lögreglustöð í bænum Rambouillet, suðvestur af París í dag. Árásarmaðurinn var skotinn og lést á sjúkrahúsi. 23.4.2021 15:03
Navalní hættur í hungurverkfalli að læknaráði Tuttugu og fjögurra daga löngu hungurverkfalli Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, er lokið. Navalní tilkynnti þetta í dag skömmu eftir að læknar vöruðu við því að hann gæti látið lífið héldi hann verkfallinu til streitu. 23.4.2021 14:36
Að minnsta kosti tveir heimiliskettir á Bretlandseyjum hafa smitast af eigendum sínum Rannsakendur á Bretlandseyjum hafa fundið tvö tilvik þar sem eigendur smituðu kettina sína af SARS-CoV-2. Í báðum tilvikum voru eigendurnir með einkenni Covid-19 þegar kettirnir smituðust. Þeir sýndu sömuleiðis einkenni sjúkdómsins. 23.4.2021 13:34
Malaríubóluefnið sem hraðaði þróun efnis AstraZeneca markar tímamót í baráttunni Talið er að nýtt bóluefni gegn malaríu geti markað tímamót í baráttunni við sjúkdóminn eftir að bóluefnið sýndi 77% virkni í fyrstu athugunum. Yfir 400.000 manns deyja af völdum malaríu á ári hverju, stærstur hluti þeirra börn í Afríku sunnan Sahara. 23.4.2021 13:09
Flestir vilja dóttur Duterte sem næsta forseta Dóttir Rodrigo Duterte, forseta Filippseyja, er sú sem flestir landsmenn vilja að taki við af honum samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar í aðdraganda forsetakosninga á næsta ári. Hún heldur því þó fram að hún hafi engan áhuga á að bjóða sig fram. 23.4.2021 12:19
Geimfarar á leið til geimstöðvarinnar með ferju SpaceX Fjórir geimfarar eru um borð í geimferju fyrirtækisins SpaceX sem verður skotið á loft frá Flórída í Bandaríkjunum nú í morgun. Ferðinni er heitið í Alþjóðlegu geimstöðina á braut um jörðu. 23.4.2021 08:24
Börn getin eftir Tsjernóbyl-slysið erfa ekki skaðann sem foreldrarnir urðu fyrir Einstaklingar sem urðu fyrir geislamengun í Tsjernóbyl arfleiða börnin sín ekki að þeim skaða sem þeir kunna sjálfir að hafa orðið fyrir. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar á börnum foreldra sem unnu við hreinsun eftir kjarnorkuslysið. 23.4.2021 08:17
Bandaríkjaher leggur leitinni að kafbátnum lið Flugvélar Bandaríkjahers er nú á leiðinni til að aðstoða við leit að indónesískum kafbáti sem hvarf með 53 manna áhöfn við æfingar norður af Balí á miðvikudag. Aðeins nokkrar klukkustundir eru taldar til stefnu áður en súrefnið í kafbátnum er á þrotum. 23.4.2021 08:00
Hvetja Navalní til að hætta hungurverkfallinu Læknar Alexeis Navalní, rússneska stjórnarandstæðingsins, hvetja hann til að hætta strax hungurverkfalli sínu í fangelsinu þar sem rússnesk yfirvöld halda honum. Þeir óttast að halda hann því áfram dragi það hann til dauða. 23.4.2021 07:43
Þrettán látast í eldsvoða á bráðadeild og metfjöldi greinist með Covid-19 Þrettán létust þegar eldur braust út á bráðadeild Vijay Vallabh-sjúkrahússins í Maharashtra á Indlandi í morgun. Búið er að slökkva eldinn og hafa fjórir verið fluttir á annað sjúkrahús. 23.4.2021 07:17
Krabbameinstilfellum hefur fækkað um 86 prósent vegna bóluefnis Niðurstöður danskrar rannsóknar benda til þess að bóluefni gegn HPV veirunni hafi leitt til fækkunar leghálskrabbameinstilfella um 86 prósent. Þá minnkar bóluefnið líkurnar á frumubreytingum töluvert. Rannsóknaraðilar segja að niðurstöðurnar lofi góðu og séu fyrsta skrefið í að koma í veg fyrir leghálskrabbamein alfarið. 22.4.2021 23:31
Strandaglópur snýr loks heim eftir fjögurra ára einveru Sjómaðurinn Mohammed Aisha hefur undanfarin fjögur ár þurft að dvelja einn í skipinu MV Amman við strendur Egyptalands en hefur nú loks verið frelsaður og er floginn heim til Sýrlands. Hann segist finna fyrir miklum létti enda ekki auðvelt að vera einn í fjögur ár. 22.4.2021 20:39
Bandaríkin vilja leiða baráttuna gegn loftslagsvánni Bandaríkin kynntu í dag nýja lofslagsáætlun en ríkið stefnir á að draga úr mengun gróðurhúsalofttegunda um 50-52 prósent, miðað við losun árið 2005, fyrir 2030. Joe Biden Bandaríkjaforseti kynnti áætlunina á loftslagsráðstefnu í dag. 22.4.2021 18:41
Washington DC skrefi nær því að verða ríki Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag tillögu þess efnis að Washington DC verði 51. ríki Bandaríkjanna. Það er annað skiptið á innan við ári sem málið er tekið fyrir í fulltrúadeildinni en verður því nú vísað til öldungadeildar þingsins. 22.4.2021 18:00
Rússar draga hersveitir sínar til baka Fjöldi rússneskra hersveita var í dag skipað að yfirgefa landamærin að Úkraínu og snúa aftur í herstöðvar sínar. Mikil spenna hefur verið milli ríkjanna undanfarnar vikur og hafa miklar áhyggjur ríkt um yfirvofandi borgarastríð í austurhluta Úkraínu með aðild Rússa. 22.4.2021 17:28
Varð ófrísk að öðru barni á meðan hún var þegar ólétt af því fyrsta Kona nokkur í Bretlandi, hin 39 ára Rebecca Roberts, varð ófrísk að öðru barni á meðan hún gekk með annað. Hún og eiginmaður hennar, Rhys Weaver sem er fjórum árum eldri, höfðu reynt árangurslaust í rúmt ár að eignast barn þegar það loksins tókst og rúmlega það. Getnaður varð ekki einu sinni heldur tvisvar með þriggja vikna millibili. 22.4.2021 14:39
Metfjöldi tilfella á heimsvísu og skortur á súrefni á Indlandi Hátt í 315 þúsund greindust með covid-19 á Indlandi síðasta sólarhringinn, sem er metfjöldi á einum degi, ekki aðeins á Indlandi heldur í heiminum öllum. Þá létust 2.104 úr covid-19 á Indlandi í gær sem er einnig met í fjölda dauðsfalla á einum degi í landinu. 22.4.2021 08:55
Mannskæð sprengjuárás á lúxushóteli Að minnsta kosti fjórir fórust og ellefu slösuðust í sprengjuárás á lúxushóteli í pakistönsku borginni Quetta í kvöld. 21.4.2021 23:30
Þurfa að brjóta upp rótgróið kerfi mismununar Derek Chauvin, fyrrverandi lögregluþjónn, var sakfelldur fyrir morðið á Bandaríkjamanninum George Floyd í gærkvöldi. Kviðdómurinn ákvað að sakfella Chauvin fyrir alla ákæruliði en hámarksrefsing fyrir brotin er fjörutíu ára fangelsi. 21.4.2021 23:30
Fjöldi mótmælenda handtekinn í Rússlandi Rússneska lögreglan hefur handtekið hátt í tvö hundruð manns sem tóku þátt í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, í dag. Mótmælendur kröfðust þess að Navalní fengi viðunandi læknisþjónustu í fangelsi en læknar hans segjast óttast um líf hans. 21.4.2021 16:40
Stórtækustu böðlarnir utan Kína í Miðausturlöndum Fjögur af þeim fimm ríkjum sem tóku flesta af lífi í fyrra eru Miðausturlönd. Saman stóðu Íran, Egyptaland, Írak og Sádi-Arabía fyrir nærri því níu af hverjum tíu aftökum sem vitað er um með vissu í heiminum samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. 21.4.2021 13:43
Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. 21.4.2021 12:55
Elísabet þakkar árnaðaróskir vegna afmælis síns og samhug vegna fráfalls Filippusar Starfsmenn Buckingham-hallar hafa birt skilaboð frá Elísabetu drottningu á Twitter, þar sem hún þakkar stuðning og góðvild í kjölfar andláts eiginmans síns, Filippusar prins. Elísabet er 95 ára í dag. 21.4.2021 12:44
Leita horfins kafbáts við Balí Indónesíski sjóherinn leitar nú að kafbáti með á sjötta tug manna um borð sem hvarf við æfingar norður af eyjunni Balí. Óskað hefur verið eftir aðstoð yfirvalda í Ástralíu og Singapúr við leitina. 21.4.2021 11:04
ESB stefnir á kolefnishlutleysi með nýju loftslagsmarkmiði Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu. 21.4.2021 10:46
Viðbrögð við sakfellingu Chauvin: „Í dag grátum við gleðitárum“ „Í dag grátum við gleðitárum,“ sagði Christ Stewart, lögmaður Floyd-fjölskyldunnar, þegar lögreglumaðurinn Derek Chauvin var fundinn sekur um að hafa orðið George Floyd að bana. 21.4.2021 10:30
Bandamenn Navalní handteknir í aðdraganda mótmæla Rússneska lögreglan handtók Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, og fleiri bandamenn hans í dag. Handtökurnar eru taldar tengjast mótmælum sem boðað hefur verið til um allt landið til stuðnings Navalní sem dúsir í fangelsi við slæma heilsu. 21.4.2021 09:21
Um sautján börn á flótta hverfa daglega í Evrópu Að minnsta kosti 180 þúsund börn á flótta hafa horfið eftir að hafa komið til Evrópulanda á borð við Grikkland, Ítalíu og Þýskaland. Alls var 18.292 flóttabarna, sem voru ekki í fylgd með fullorðnum, saknað árin 2018 til 2020. 21.4.2021 09:00
„Hún er bara krakki!“: Sextán ára svört stúlka skotin til bana af lögreglumanni Lögreglumaður skaut sextán ára gamla svarta stúlku til bana í Ohio í Bandaríkjunum í gær. Að sögn fjölskyldu stúlkunnar hafði hún hringt eftir aðstoð þegar hópur „eldri krakka“ veittist að henni. 21.4.2021 07:26
Derek Chauvin fundinn sekur um morðið á George Floyd Kviðdómarar í Minneapolis í Bandaríkjunum hafa fundið fyrrverandi lögregluþjóninn Derek Chauvin sekan um morðið á George Floyd. Myndbönd af dauða Floyd í haldi lögreglu fóru eins og eldur í sinu um Bandaríkin og leiddu til umfangsmikilla mótmæla og jafnvel óeirða. 20.4.2021 21:08
Segir sönnunargögnin í máli Chauvin yfirþyrmandi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir sönnunargögnin í máli fyrrverandi lögregluþjónsins Derek Chauvin fyrir meint morð hans á George Floyd, vera „yfirþyrmandi“. Forsetinn ræddi við fjölskyldu Floyd í síma í dag. 20.4.2021 16:33
Blóðtappar skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun Janssen bóluefnisins Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur gefið út að blóðtappar skuli vera skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun bóluefnis Janssen gegn kórónuveirunni. Telur EMA að hugsanleg tengsl séu milli bólusetningar með efninu og mjög sjaldgæfra tilfella blóðtappa, líkt og í tilfelli bóluefnis AstraZeneca. 20.4.2021 14:39
Telja losun færast í fyrra horf strax á þessu ári Tímabundinn samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra gengur nær algerlega til baka á þessu ári ef marka má spá Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Útlit er fyrir mestu aukningu í losun á milli ára í meira en áratug. 20.4.2021 14:05
Margir áfangar í geimskoti SpaceX og NASA Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX munu á fimmtudaginn skjóta fjórum geimförum af stað til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Verður það í fyrsta sinn sem eldflaug og geimfar eru endurnýtt til að koma geimförum út í geim. 20.4.2021 13:32
Þverpólitískur stuðningur við bann gegn eign einkaaðila á stórum kattardýrum Fjórir öldungadeildarþingmenn hafa lýst yfir stuðningi við frumvarp sem leggur bann við því að stórum kattardýrum sé haldið í einkaeigu. Frumvarpið leggur einnig bann við aðgengi almennings að afkvæmum stórra kattardýra. 20.4.2021 11:42
Forseti Tjad féll í átökum við uppreisnarmenn Idriss Deby, forseti Tjad, er dáinn. Hann er sagður hafa dáið vegna sára sem hann hlaut þegar hann heimsótti víglínu hers Tjad og uppreisnarmanna í norðurhluta landsins. Upplýsingar um dauða forsetans eru enn á reiki. 20.4.2021 11:21
Xi vill sanngjarnari heimsstjórn Xi Jinping, forseti Kína, kallaði í morgun eftir því málefnum heimsins yrðu stýrt á sanngjarnari máta og að ríki heimsins legðu ekki tálma á önnur. Hann kallaði eftir aukinni ráðfærslu milli ríkja á alþjóðasviðinu og sagði að aðskilnaður og útskúfun á heimsmarkaði væri ekki jákvæð. 20.4.2021 10:48
Grænlendingar afnema fjöldatakmarkanir Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á Grænlandi í gær þar sem gripið er til töluverðra afléttinga. 20.4.2021 08:01
Smit á Nýja-Sjálandi en áfram opið fyrir ferðalög til Ástralíu Starfsmaður á flugvellinum í Auckland á Nýja Sjálandi hefur verið greindur með kórónuveiruna, aðeins einum sólahring eftir að opnað var fyrir ferðalög á milli Nýja Sjálands og Ástralíu. 20.4.2021 08:00
Walter Mondale fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna látinn Walter Mondale, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, er látinn. Hann var 93 ára. Mondale var varaforseti Jimmy Carter, sem sagði Mondale „besta varaforsetann í sögu landsins“. 20.4.2021 07:28
Heimsfaraldurinn hefur valdið mikilli aukningu í útblæstri Ein af afleiðingum alheimsfaraldurs kórónuveirunnar er mikil aukning í útblæstri koltvísýrings. Þetta segir talsmaður Alþjóða orkumálastofnunarinnar í samtali við breska blaðið The Guardian. 20.4.2021 07:04
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna staðfestir fyrirhugaða Íslandsheimsókn Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur staðfest komu sína til Íslands í maí hvar hann mun sækja fund aðildarríkja Norðurskautsráðsins. Þetta staðfesti Blinken í ræðu sem hann flutti í kvöld þar sem meginviðfangsefnið var um forystuhlutverk Bandaríkjanna í loftslagsmálum. 19.4.2021 22:46
Enginn undir stýri í Teslu sem hafnaði á tré með þeim afleiðingum að tveir létust Tvær bandarískar stofnanir fara með rannsókn vegna banaslyss sem varð í Texas um helgina þar sem grunur leikur á að enginn hafi verið undir stýri í sjálfkeyrandi Teslu sem hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að tveir létust. 19.4.2021 22:13
„Notið skynsemina“ Saksóknarinn Steve Schleicher biðlaði til kviðdómenda að treysta innsæinu og hlusta á sönnunargögnin áður en þeir tækju ákvörðun í máli gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin, sem ákærður er fyrir að hafa banað George Floyd í Minneapolis í fyrra. Flutningur lokaræðna fer nú fram og munu kviðdómendur í kjölfarið gera upp hug sinn. 19.4.2021 21:08
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent