Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íranar leyfa aftur eftirlit með kjarnorkuframleiðslu Stjórnvöld í Íran samþykktu í dag að heimila eftirlitsfólki Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) að hefja eftirlitsupptökur að nýju í kjarnorkurannsóknarstöðvum landsins. 12.9.2021 16:00
Leiðtogi Al Qaeda: Birti ávarp 11. september Hryðjuverkasamtökin Al Qaeda birtu í gær myndbandsávarp frá leiðtoga sínum Ayman al-Zawahri. Ávarpið er birt á sama degi og 20 ár voru liðin frá árásum samtakanna á Tvíburaturnana í New York og Pentagon, þar sem um 3.000 manns létust. 12.9.2021 15:19
Borgarstjóri Parísar blandar sér í forsetaslaginn Borgarstjórinn í París, Anne Hidalgo, lýsti yfir framboði til frönsku forsetakosninganna í dag. Hidalgo, sem er fyrsta konan til að gegna embætti borgarstjóra í París, bíður ærið verkefni þar sem flokkur hennar, sósíalistaflokkurinn, hefur staðið höllum fæti á landsvísu síðustu ár. 12.9.2021 14:31
Þinghúsið í Washington: Herða öryggi fyrir samkomu til stuðnings rósturseggja Áformað er að herða á öryggisráðstöfunum í kringum þinghúsið í Washingtonborg fyrir næstu helgi þegar hinir ýmsu öfgahópar hliðhollir Donald Trumps fyrrverandi forseta hyggjast koma saman. 12.9.2021 10:35
FBI opinberar fyrsta skjalið um árásirnar 2001 Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) svipti í gær leyndarhulunni af fyrsta skjalinu í tengslum við árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í september 2001. Skjalið snýr að aðstoð sem tveir hryðjuverkamenn frá Sádi-Arabíu fengu í aðdraganda árásanna. 12.9.2021 10:05
Líkti bandarískum öfgamönnum við hryðjuverkamennina frá 2001 George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti ofbeldisfullum bandarískum öfgaöflum við hryðjuverkamennina sem gerðu árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 11. september 2001. Hann sagði að heimaræktaðir hryðjuverkamenn gætu ógnað Bandaríkjunum eins og erlendir hryðjuverkamenn. 12.9.2021 07:58
Haldlögðu kókaín að andvirði tæplega þrjátíu milljarða króna Sex menn voru handteknir um borð í snekkju við strendur Englands á fimmtudag. Um borð í snekkjunni voru ríflega tvö tonn af kókaíni. 11.9.2021 19:33
Upplifun íbúa New York 11. september 2001: „Ógnarástand og fólk var lengi að jafna sig“ „Þetta var eins fallegur haustdagur og gerist í New York. Blár himinn og haust í lofti,“ segir Ólafur Jóhann Ólafsson aðspurður um morguninn örlagaríka, 11. september 2001. Hann var þá, sem nú, búsettur í New York með fjölskyldu sinni. 11.9.2021 15:27
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. 11.9.2021 11:11
Síðasta drónaárásin í Kabúl: Sjö börn úr sömu fjölskyldunni dóu Síðasta eldflaugin sem vitað er að Bandaríkjamenn skutu í Afganistan grandaði ekki ISIS-liða eins og ráðamenn hafa haldið fram. Þess í stað lenti hún á bíl manns sem hefur starfað fyrir bandarísk hjálparsamtök sem var að skutla vinnufélögum sínum til og frá vinnu. 11.9.2021 10:52
Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll. 11.9.2021 08:12
20 ár frá 11. september 2001: Dagurinn sem allt breyttist Sum andartök eru þess eðlis að tilvera þess sem upplifir þau verður aldrei söm á eftir. Fá hafa þó skekið heimsbyggðina jafn skyndilega og jafn afgerandi og þegar tvær farþegaþotur skullu á Tvíburaturnunum við World Trade Center á Manhattan á heiðskírum þriðjudagsmorgni fyrir réttum 20 árum, hinn 11. september árið 2001. 11.9.2021 06:01
MH17: Ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syninum í hans hinstu för Faðir fórnarlambs sem lést þegar MH17, farþegaflugvél Malaysian Airlines, var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 ferðast alltaf með bakpokann sem fylgdi syni hans í sinni hinstu för. Bakpokinn fannst nánast óskemmdur í braki vélarinnar. 10.9.2021 23:31
Rannsaka hvort viðbrögð fyrrverandi ráðherra í upphafi faraldursins hafi verið saknæm Sérstakur rannsóknarréttur franska lýðveldisins rannsakar nú hvort sækja eigi Agnès Buzyn, fyrrverandi heilbrigðisráðherra Frakklands, til saka vegna viðbragða hennar í upphafi kórónuveirufaraldursins. 10.9.2021 22:50
Skipuleggjendur minningarathafnar ákærðir fyrir að ógna þjóðaröryggi Skipuleggjendur minningarathafnar um ódæðisverkin sem framin voru á Torgi hins himneska friðar hafa verið ákærðir fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi Hong Kong. 10.9.2021 16:03
Svíþjóðardemókrati handtekinn grunaður um morð Karlmaður hefur verið handtekinn í Svíþjóð grunaður um að hafa myrt konu í suðurhluta Vestur-Gautlands í síðustu viku. Maðurinn er sagður stjórnmálamaður í flokki Svíþjóðardemókrata og sinnir mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. 10.9.2021 15:27
Trudeau í kröppum dansi í sjónvarpskappræðum Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, lenti í harðri sennu í sjónvarpskappræðum flokksformanna í gær, en þingkosningar fara fram þar í landi eftir tíu daga. Trudeau, sem hefur setið í stóli forsætisráðherra í sex ár, rauf óvænt þing í síðasta mánuði og boðaði til kosninga tveimur árum fyrr en ráðgert var. Þetta gerði hann í ljósi góðrar stöðu hans og Frjálslynda flokksins í skoðanakönnunum. 10.9.2021 14:25
Ný ríkisstjórn loks tekin við í Líbanon Ný ríkisstjórn hefur loks tekið við í Líbanon, um þrettán mánuðum eftir að sú síðasta hrökklaðist frá völdum í kjölfar spreningarinnar miklu í höfuðborginni Beirút í ágúst 2020. 10.9.2021 13:46
Hangandi nashyrningar og bakteríuflóra götutyggjós Hvernig er best að flytja nashyrning? Getur fullnæging dregið úr nefstíflum? Breytist líkamslykt áhorfenda í kvikmyndahúsum eftir því hvað verið er að horfa á? Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem handhafar Ig Nóbelsverðlaunanna freistuðu þess að svara. 10.9.2021 08:47
Búið að aflétta öllum takmörkunum í Danmörku Öllum takmörkunum vegna faraldurs kórónuveirunnar var aflétt í Danmörku á miðnætti. Markar það endalok átján mánaða tímabils samkomutakmarkana í landinu. Ekki er útilokað að skólum í landinu verði lokað fari svo að faraldurinn fari á flug á ný. 10.9.2021 08:00
Yfir 100 manns flogið frá Kabúl til Katar Fyrsta vélin til að yfirgefa Kabúl í Afganistan með útlendinga innanborðs eftir að talíbanar tóku þar öll völd hóf sig til flugs í gærkvöldi. 10.9.2021 06:42
Ótrúlegt og rándýrt listaverkasafn á uppboð vegna hatrammrar skilnaðardeilu Uppboðshaldarinn Sotheby's mun í vetur og á næsta ári halda uppboð á einstöku listaverkasafni sem sett var á sölu að skipan dómara í hatrammri skilnaðardeilu aldraðra milljarðamæringa. Selja á bestu bitana úr safninu svo hægt sé að ljúka deilunni. 9.9.2021 23:31
Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu. 9.9.2021 21:25
Dómsmálaráðuneytið fer í hart við Texas vegna „hjartsláttarlaganna“ Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt yfirvöldum í Texas-ríki Bandaríkjanna vegna umdeildra laga um þungunarrof sem nýlega tóku gildi í ríkinu. Ráðuneytið segir lögin vera andstæð stjórnarskrá Bandaríkjanna. 9.9.2021 20:31
Eyjafrýnan nú talin í útrýmingarhættu Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin (IUCN) telja nú að eyjafrýnan, sem einnig er nefnd kómódódrekinn, sé í útrýmingarhættu. Spáð er að búsvæði þessarar stærstu eðlutegundar á jörðinni minnki um að minnsta kosti 30% á næstu 45 árum. 9.9.2021 15:48
Húsleit í þýskum ráðuneytum vegna rannsóknar á spillingardeild Saksóknarar gerður húsleit í fjármála- og dómsmálaráðuneytum Þýskalands í dag. Leitin er sögð hluti af rannsókn á opinberri stofnun sem rannsakar peningaþvætti en hún kemur á versta tíma fyrir fjármálaráðherrann sem stendur í harðri kosningabaráttu. 9.9.2021 15:17
Lýsa eftir utanbæjarmanni í tengslum við sprengjutilræði í Washington Alríkislögreglan í Bandaríkjunum (FBI) birti á vef sínum í gær myndband sem talið er sýna mann koma fyrir rörasprengjum við höfuðstöðvar Demókrata og Repúblikana í Washingtonborg að kvöldi 5. janúar síðastliðins. 9.9.2021 14:05
Hóta stjórnarslitum verði útgöngusamningnum ekki breytt Flokkur sambandssinna á Norður-Írlandi hótar því að sprengja heimastjórnina þar verðir breytingar ekki gerðar á útgöngusamningi Bretland og Evrópusambandsins á næstu vikum. Bresk stjórnvöld tilkynntu í vikunni að aðlögunartímabil yrði framlengt á Norður-Írlandi. 9.9.2021 12:08
Getnaðarvarnir verða gjaldfrjálsar fyrir franskar konur 25 ára og yngri Franskar konur upp að 25 ára aldri munu ekki þurfa að greiða fyrir getnaðarvarnir þar í landi frá og með áramótum. Olivier Veran heilbrigðisráðherra tilkynnti þetta fyrr í dag, en fram kemur í frétt Reuters að áður hafi mörkin fyrir gjaldfrjálsar getnaðarvarnir verið dregin við átján ára aldur. 9.9.2021 12:07
Norðurkóreskt varnarlið marseraði í hlífðarbúningum Norður-Kórea fagnaði því að 73 ár eru liðin frá stofnun ríkisins í nótt með skrúðgöngu. Athygli hefur vakið að allir þeirra sem tóku þátt í skrúðgöngunni voru klæddir í appelsínugula hlífðarbúninga en engin flugskeyti voru til sýnis, sem gjarnan eru sýnd á slíkum viðburðum í Norður-Kóreu. 9.9.2021 11:33
Reykur í Alþjóðlegu geimstöðinni Viðvörunarkerfi í rússneska hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu fór í gang þegar reykur greindist um borð. Geimfarar eru sagðir hafa ýmist séð reyk eða fundið lykt af brenndu plasti. 9.9.2021 08:36
Að minnsta kosti tíu látnir í eldsvoða á Covid-19 spítala Að minnsta kosti tíu hafa látið lífið í eldsvoða á bráðabirgðaspítala í Norður-Makedóníu fyrir einstaklinga sem hafa veikst alvarlega af Covid-19. Heilbrigðisráðherra landsins segir líkur á að fjöldi látinna muni hækka. 9.9.2021 08:33
Kína skýtur á Bandaríkin og heitir neyðaraðstoð til handa Afganistan Stjórnvöld í Kína hafa heitið 4 milljörðum króna í neyðaraðstoð til Afganistan, meðal annars í formi matarbirgða og bóluefna gegn Covid-19. Þá segjast þau reiðubúin til að eiga opið samtal við nýja stjórn talíbana. 9.9.2021 07:46
Breska strandgæslan fær heimild til að snúa flóttamönnum við Innanríkisráðherra Breta, Priti Patel, hefur gefið bresku landamæragæslunni leyfi til að skipa bátum sem flytja flóttafólk yfir Ermarsund að snúa til baka til Frakklands. 9.9.2021 07:04
Gætu annað 40% af raforkuþörf Bandaríkjanna með sólarorku Mögulegt er að framleiða allt að 40% alls rafmagns í Bandaríkjunum með sólarorku innan fimmtán ára samkvæmt nýrri skýrslu Bandaríkjastjórnar. Til þess þyrfti þó meiriháttar fjárfestingu í raforkukerfinu. 8.9.2021 23:44
Stefna á að skjóta upp stærsta geimsjónauka heims fyrir jól Geimstofnanir Evrópu, Bandaríkjanna og Kanada hafa sammælst um að stefna að því að skjóta James Webb-geimsjónaukanum út í geim 18. desember. Hann verður stærsti geimsjónaukinn í sögunni. 8.9.2021 22:50
Fjarlægðu einn stærsta minnisvarðann um Suðurríkjaleiðtoga sem eftir var Verkamenn fjarlægðu styttu af Robert E. Lee, hershöfðingja gömlu Suðurríkjanna, í höfuðborg Virginíuríkis í Bandaríkjunum í dag. Fögnuður braust út þegar styttunni var lyft af stalli sínum. 8.9.2021 21:17
Meðstofnandi Nxivm á leið í fangelsi Nancy Salzman, annar stofnandi kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi. 8.9.2021 21:12
Ekkja Bobbys vill ekki að morðinginn sleppi Ethel Kennedy, ekkja Roberts F. Kennedy, sem var ráðinn af dögum í miðri kosningabaráttu árið 1968, segist andvíg því að banamanni eiginmanns hennar, Sirhan Sirhan, verði veitt reynslulausn. Yfirlýsing þess efnis birtist á Twittersíðu dóttur hennar, Kerry Kennedy, í gær. 8.9.2021 16:57
Skæð Covid-bylgja leikur óbólusetta Búlgara grátt Neyðarástand vofir yfir heilbrigðiskerfi Búlgaríu þar sem skæð COVID-19 bylgja gengur nú yfir. Bólusetningar hafa gengið afar hægt í landinu þar sem einungis um fimmtungur landsmanna, sem telja 7 milljónir, hafa fengið sprautu og almennra efasemda virðist gæta. 8.9.2021 12:11
Rússneskur ráðherra dó við að stökkva eftir manni sem féll í vatn Yevgeny Zinichev, neyðarmálaráðherra Rússlands, dó á æfingu á heimskautasvæði Rússlands í dag. Ráðherrann er sagður hafa dáið við að reyna að bjarga tökumanni sem féll ofan í vatn. 8.9.2021 10:55
Réttarhöld vegna hryðjuverkanna í París hafin Réttarhöld hefjast í dag yfir tuttugu mönnum sem sakaðir eru um aðild að hryðjuverkaárásunum í París haustið 2015. Alls létust 130 manns og hundruð særðust þegar níu menn vopnaðir byssum og sprengjuvestum létu til skarar skríða við þjóðarleikvanginn Stade de France, tónleikahúsinu Bataclan og veitingastöðum og kaffihúsum víða um borgina. 8.9.2021 10:51
Vopnað rán og eltingaleikur um hábjartan dag Tveir menn eru í haldi lögreglu og fimm annarra er leitað eftir að vopnaðir þjófar réðust inn í verslun Bulgari í miðborg Parísar og höfðu á brott með sér skartgripi sem metnir eru á 1,5 milljarð króna. 8.9.2021 08:30
Sautján sjúklingar létust þegar flæddi inn á sjúkrahús Að minnsta kosti sautján sjúklingar létust þegar á flæddi inn í spítala í Hidalgo-héraði í Mexíkó í nótt. Áin sem rann í nágrenni sjúkrahússins flæddi yfir bakka sína og það leiddi til rafmagnsleysis á spítalanum. 8.9.2021 07:59
Bandaríkjamenn hafa áhyggjur af bráðabirgðastjórninni Bandarísk stjórnvöld segjast hafa áhyggjur af nýskipaðri bráðabirgðastjórn í Afganistan sem talíbanar kynntu til sögunnar í gær. 8.9.2021 07:03