Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Taívan efst á baugi fundar Biden og Xi Málefni eyríkisins Taívans eru talin verða efst á baugi fyrsta fjarfundar Joes Biden Bandaríkjaforseta og Xi Jinping, forseta Kína í dag. Ríkin tvö hafa eldað grátt silfur saman um fjölda mála að undanförnu en vaxandi spenna hefur ríkt að undanförnu vegna Taívans. 15.11.2021 09:04
TréNA leiðir til fangelsisdóms vegna ólöglegs skógarhöggs Forsprakki hóps sem stundaði ólöglegt skógarhögg í Olympic-þjóðarskóginum í Washington-ríki í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í 20 mánaða fangelsi eftir að eldur sem mennirnir kveiktu breiddist út í skóginum. 15.11.2021 08:28
Konur sem voru látnar sæta líkamsskoðun á flugvellinum í Doha höfða mál Hópur kvenna sem var neyddur til að gangast undir skoðun kvensjúkdómalæknis á flugvellinum í Doha hyggjast höfða mál á hendur yfirvöldum í Katar. Konurnar voru látnar sæta skoðununum eftir að nýfætt yfirgefið barn fannst á einu salerna vallarins. 15.11.2021 07:48
Tvö handtekin grunuð um að hafa stungið tvö börn og kastað úr mikilli hæð Tveir fullorðnir einstaklingar hafa verið handteknir eftir að tvö börn fundust alvarlega slösuð fyrir utan fjölbýlishús í úthverfi sænsku höfuðborgarinnar Stokkhólms í gærkvöldi. Annað barnið var síðar úrskurðað látið á sjúkrahúsi og er hitt alvarlega sært. 15.11.2021 07:36
Níu ára drengur látinn eftir troðninginn á Astroworld Níu ára drengur, sem hefur verið haldið sofandi frá því að hann varð undir á Astroworld-tónlistarhátíðinni í Texas í Bandaríkjunum, er látinn. Ezra Blount hlaut umtalsverðan heila- og líffæraskaða en hann er yngstur þeirra sem hafa látist. 15.11.2021 07:08
Grunur um hryðjuverk eftir að leigubíll sprakk í loft upp í Liverpool Þrír hafa verið handteknir á grundvelli bresku hryðjuverkalagana eftir að leigubíll sprakk í loft upp fyrir utan Kvennasjúkrahúsið í Liverpool. 15.11.2021 06:41
Grunaður um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn Karlmaður er í haldi lögreglunnar í Kaupmannahöfn vegna gruns um að hafa kveikt í húsi þar sem Íslendingur fannst látinn. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra vikna langt gæsluvarðhald á fimmtudag. 14.11.2021 19:42
Heiðra þá sem látist hafa í stríði Flaggað er í hálfa stöng hjá þýska sendiráðinu á Íslandi í tilefni Volktrauerstag eða minningardagsins, sem haldinn er árlega í Þýskalandi til heiðurs allra þeirra sem látið hafa lífið í styrjöldum. Þá halda Bretar einnig sinn Remembrance sunday. 14.11.2021 14:59
Óbólusettir í útgöngubann í Austurríki Stjórnvöld í Austurríki hafa tekið ákvörðun um setja útgöngubann á óbólusetta. Breytingarnar taka gildi á miðnætti í kvöld og gilda í tíu daga. Brot á útgöngubanninu varðar rúmlega tvö hundruð þúsund króna sekt. 14.11.2021 14:44
Bandaríkjamenn drápu tugi kvenna og barna í loftárásum Bandaríkjamenn drápu að minnsta kosti 64 konur og börn í mannskæðum árásum á Íslamska ríkið í mars árið 2019. Reynt var að afmá ummerki um árásirnar. 14.11.2021 10:25
Drottningin missir af minningarathöfn vegna tognunar Elísabet önnur Bretlandsdrottning verður ekki viðstödd minningarathöfn sem haldin verður til heiðurs þeirra sem látist hafa í herþjónustu við breska heimsveldið í dag. Ástæðan er tognun í baki. 14.11.2021 10:07
Fyrsta dauðsfall í tengslum við eldgosið á La Palma Eldri maður lét lífið í tengslum við eldgosið á eyjunni La Palma á Spáni í vikunni. Maðurinn var 72 ára gamall. 14.11.2021 09:00
Nærri sjötíu fangar drepnir í fangelsi í Ekvador Blóðug átök brutust út í fangelsi í Ekvador í gær en 68 létu lífið og yfir 25 særðust í átökunum, sem hófust um kvöldmatarleyti á föstudag. 14.11.2021 08:26
Snæhlébarðar deyja úr Covid Þrír snæhlébarðar létu lífið úr Covid-19 í dýragarðinum Lincoln Children’s Zoo í Nebraska í Bandaríkjunum á föstudaginn. 14.11.2021 07:52
„Við römbum enn á barmi loftslagshamfara“ António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, telur að pólitískan vilja hafi skort til að ryðja úr vegi djúpstæðum ágreiningi um viðbrögð þjóða við loftslagsvánni. 13.11.2021 22:44
Allar þjóðir samþykktu nýjan loftslagssamning á elleftu stundu Öll 197 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu í kvöld nýjan loftslagssamning á COP26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow. Síðkomin breyting á orðalagi um samdrátt í kolanotkun kom mörgum í opna skjöldu. 13.11.2021 19:55
Skíðafólk tekur gleði sína á ný Aðstandendur ítalskra skíðahótela halda bjartsýnir inn í veturinn en hafa varann á. Síðustu tvö árin hafa eðli málsins samkvæmt verið hóteleigendum erfið vegna kórónuveirunnar. Bókanir streyma nú inn. 13.11.2021 15:49
Pútín svarar hótunum Lúkasjenka Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hótuðu að skrúfa fyrir gasleiðslur sem liggja til ríkja Evrópusambandsins í vikunni. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, tekur hótununum Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, ekki af léttúð. 13.11.2021 14:15
Hákarlar og sæhestar í ánni Thames Vísindamenn hafa nú uppgötvað fjölda sjávardýra í ánni Thames í Bretlandi. Dýrafræðistofnun Lúndúna sögðu ána „líffræðilega dauða“ árið 1957. Ný rannsókn sýnir að áin hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum. 13.11.2021 13:35
Einn látinn eftir skotárás í Stokkhólmi Einn er látinn og annar særður eftir skotárás í Stokkhólmi í Svíþjóð. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. 13.11.2021 11:11
Sýrlendingur fannst látinn á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands Lík ungs sýrlensks karlmanns fannst í dag í skóglendi á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Ófremdarástand ríkir á landamærunum þar sem gríðarlegur fjöldi flóttamanna hefur verið sendur þangað af hvít-rússneskum stjórnvöldum. 13.11.2021 10:44
Sara Duterte fer í framboð Sara Duterte, dóttir Rodrigos Duterte, hefur tilkynnt framboð sitt til varaforseta Filippseyja. Stjórnmálaskýrendur höfðu margir búist við að hún byði sig fram til forseta landsins. 13.11.2021 09:45
Eftirlýstur eftir að hafa birt myndbönd af pyntingum í rússneskum fangelsum Stofnandi rússneskra mannréttindasamtaka sem vakta og opinbera ofbeldi í rússneskum fangelsum, er eftirlýstur í Rússlandi. Vladimir Osechkin og samtök hans Gulagu.net birtu nýverið myndbönd sem sýndu pyntingar á föngum í rússneskum fangelsum. 12.11.2021 23:54
COP26 fer í framlengingu: Enn er þrasað um loftslagsmál í Glasgow Samningaviðræður standa enn yfir á lokametrum loftslagsráðstefnunnar í Glasgow sem átti að ljúka klukkan sex í kvöld. Drög að nýju og bitlausara samkomulagi voru birt í dag. 12.11.2021 23:18
Britney loks orðin frjáls Söngkonan Britney Spears stjórnar lífi sínu loks sjálf aftur að fullu. Dómari í Los Angeles felldi í kvöld niður forræði annarra yfir fjármálum hennar og öðrum ákvörðunum í lífi Spears. Úrskurðurinn hefur þegar tekið gildi. 12.11.2021 22:22
Einn þeirra sem fór út í geim með Shatner lést í flugslysi Frumkvöðullinn Glen de Vries lést í flugslysi í New Jersey í Bandaríkjunum á fimmtudag. Þann 13. október síðastliðinn ferðaðist de Vries út í geim um borð í eldflaug Blue Origin ásamt leikaranum William Shatner. 12.11.2021 20:46
Trump skilur að stuðningsmenn sínir hafi viljað hengja Pence Það var heilbrigð skynsemi hjá stuðningsmönnum Donalds Trump að kyrja um að þeir ætluðu sér að hengja Mike Pence, varaforseta, þegar þeir réðust á bandaríska þinghúsið í janúar, að mati fyrrverandi Bandaríkjaforsetans. 12.11.2021 14:42
Verjandi vill ekki fleiri svarta presta í dómsal Verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery sagði dómara málsins í gær að hann vildi ekki fleiri „svarta presta“ í dómsal. Það sagði hann eftir að Al Sharpton sat með fjölskyldu Arbery í salnum í fyrradag. 12.11.2021 14:01
Hollendingar grípa í taumana vegna mikillar fjölgunar smitaðra Eigendum öldurhúsa og veitingastaða verður gert að loka þeim snemma og íþróttaviðburðir verða haldnir fyrir luktum dyrum með nýjum og hertum sóttvarnaaðgerðum sem stendur til að kynna í Hollandi í dag. 12.11.2021 10:40
Assange fær að giftast barnsmóður sinni í fangelsinu Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur fengið heimild til að ganga að eiga barnsmóður sína, lögmanninn Stellu Moris. Athöfnin mun fara fram í fangelsinu þar sem Assange er haldið en dagsetning athafnarinnar er óákveðin. 12.11.2021 10:12
Ólíklegt að samstaði náist um að hætta kolanotkun Útlit er fyrir að ákvæði um að kallað verði eftir að ríki heims hætti að brenna kol og niðurgreiða jarðefnaeldsneyti rati ekki inn í samkomulag við lok COP26-loftslagsráðstefnunnar sem á að ljúka í Glasgow í dag. Náist samkomulag ekki í dag gætu viðræðurnar dregist inn í helgina. 12.11.2021 09:04
Ellefu ára fangelsi yfir bandarískum blaðamanni í Búrma Herdómstóll í Búrma dæmdi Danny Fenster, bandarískan blaðamann, í ellefu ára fangelsi fyrir undirróður gegn hernum, brot á innflytjendalögum og samkomutakmörkunum í dag. Hann gæti hlotið enn þyngri dóm verði hann sakfelldur fyrir uppreisnaráróður og hryðjuverk. 12.11.2021 08:28
Austurríkismenn horfa fram á útgöngubann fyrir óbólusetta Yfirvöld í Austurríki eru sögð örfáum dögum frá því að koma á útgöngubanni fyrir óbólusetta. Metfjöldi greindist með Covid-19 í landinu á síðustu 24 klukkustundum, eða 11.975. 12.11.2021 07:59
Guterres segir markmið COP26 „í öndunarvél“ COP26 ráðstefnan í Glasgow á að klárast í dag en sífellt meiri líkur virðast vera á því að ekki takist að uppfylla markmið hennar. 12.11.2021 06:49
Xi festir sig í sessi og setur sig á stall með Mao og Deng Leiðtogar Kommúnistaflokks Kína hafa samþykkt sögulega ályktun um flokkinn sem festir Xi í sessi sem einn af áhrifamestu leiðtogum Kína. Með þessu er Xi líklegur til að tryggja sér þriðja kjörtímabilið sem forseti Kína á næsta ári en það hefur enginn gert áður. 11.11.2021 23:30
Hvít-Rússar hóta að skrúfa fyrir gasið Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hafa hótað að skrúfa fyrir gasleiðslur sem liggja til ríkja Evrópusambandsins muni það beita ríkinu þvingunum vegna deilu um farendur á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands. 11.11.2021 22:55
Fleiri látnir í tengslum við tónlistarhátíð Travis Scott Tuttugu og tveggja ára gamall háskólanemi lést af sárum sínum í gærkvöldi eftir að hafa slasast lífshættulega á tónlistarhátíðinni Astroworld í Bandaríkjunum. Níu hafa nú látist í tengslum við hátíðina. 11.11.2021 21:34
Andersson fær fyrstu tilraun til að mynda ríkisstjórn Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar og nýr leiðtogi sænska Jafnaðarmannaflokksins, hefur fyrst leiðtoga flokka á sænska þinginu fengið stjórnarmyndunarumboð. Mynda þarf nýja ríkisstjórn eftir að Stefan Löfven sagði af sér. 11.11.2021 16:15
Tvö norðurlönd bætast í bandalag Danmerkur gegn olíu- og gasvinnslu en ekki Ísland Fimm þjóðir og eitt kanadískt fylki gekk í bandalag Danmerkur og Kosta Ríka um að stöðva frekari olíu- og gasvinnslu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í dag. Ekkert af stóru olíuframleiðsluríkjunum tekur þátt í bandalaginu. 11.11.2021 15:52
Segir markmið Parísarsamkomulagsins í „öndunarvél“ Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að markmið Parísarsamkomulagsins um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5°C sé ennþá innan seilingar en að það sé í „öndunarvél“. Fulltrúar ríkja heims reyna nú að ná samkomulagi á lokametrum COP26-loftslagsráðstefnunnar í Glasgow. 11.11.2021 12:28
Fundu fyrirferðarlítið svarthol utan Vetrarbrautarinnar Stjörnufræðingum tókst að finna lítið svarthol inni í miðri stjörnuþyrpingu utan Vetrarbrautarinnar okkar. Aðferðin sem var notuð gæti gert þeim kleift að finna hulin svarthol í Vetrarbrautinni okkar og nálægum stjörnuþokum. 11.11.2021 12:00
Sex hundraðasti geimfarinn á leið til geimstöðvarinnar Fjórir geimfarar eru á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir vel heppnað geimskot frá Flórída í nótt. Áætlað er að þau komi til geimstöðvarinnar seinna í dag en um borð í Crew Dragon geimfarinu er sex hundraðasti geimfari jarðarinnar. 11.11.2021 10:54
FW De Klerk er allur Frederik Willem de Klerk, fyrrverandi forseti Suður-Afríku og síðasti hvíti maðurinn til að leiða landið, er látinn, 85 ára að aldri. 11.11.2021 10:53
Forseti Síle ákærður fyrir embættisbrot eftir uppljóstranir Pandóruskjalanna Neðri deild síleska þingsins kærði Sebastián Piñera forseta fyrir embættisbrot á þriðjudag. Forsetinn er sakaður um frændhygli sem kom fram í Pandóruskjölunum svonefndu. Ólíklegt er að efri deild þingsins samþykki að svipta Piñera embætti. 11.11.2021 10:48
Lúkasjenka óskar eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur óskað eftir því að fá lánaðar sprengjuflugvélar, sem geti borið kjarnorkuvopn, frá Rússum. Samkvæmt talsmanni Kreml er Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stöðugu sambandi við Lúkasjenka vegna ástandsins á landamærunum. 11.11.2021 10:33
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent