Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aung San Suu Kiy dæmd í fjögurra ára fangelsi Fyrrverandi leiðtogi Mjanmar, Aung San Suu Kyi, var í morgun dæmd til fjögurra ára fangelsisvistar. Búist er við að dómurinn verði þyngdur verulega, því hún á fleiri ákærur yfir höfði sér. 6.12.2021 06:35
Segir of seint að bregðast við omíkron með takmörkunum Nýjustu breytingar breskrar stjórnvalda á ferðatakmörkunum til landsins, sem gripið hefur verið til í því skyni að stemma stigu við útbreiðslu omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar þar í landi, koma of seint að mati vísindamanns sem ráðleggur ríkisstjórninni við sóttvarnaaðgerðir. 5.12.2021 23:00
Bob Dole látinn Bob Dole, sem var öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum í 28 ár, er látinn. Hann var 98 ára. 5.12.2021 19:32
Tveir flóðhestar greindust smitaðir Tveir flóðhestar í dýragarði í Antwerpen í Belgíu hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Starfsfólk garðsins vinnur nú hörðum höndum að smitrakningu og telur að um sé að ræða fyrsta smitið meðal dýrategundarinnar. 5.12.2021 15:35
Fjórtán látnir í eldgosinu í Indónesíu Fjórtán eru látnir og sjö er saknað eftir að fjallið Semeru á eyjunni Java í Indónesíu byrjaði að gjósa. Öskustrókurinn frá eldgosinu náði fleiri kílómetra upp í loftið. 5.12.2021 15:09
Boðar viðskiptaþvinganaflóð ráðist Rússland inn í Úkraínu Ríkisstjórn Bandaríkjanna er tilbúin með áætlanir um viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi ráðist Rússar inn í nágrannaríkið Úkraínu. Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti munu funda á þriðjudag um stöðuna á svæðinu. 5.12.2021 14:33
Óbólusettur prestur smitaði fjölda barna í fermingarbúðum Óbólusettur prestur í Noregi dreifði ekki bara guðsorðum í fermingarbúðum sem hann vann við heldur smitaði hann fjölda fermingarbarna af kórónuveirunni. 5.12.2021 13:38
Mótmæli í Serbíu vegna Rio Tinto Þúsundir mótmælenda lokuðu götum víða um Serbíu í gær vegna stuðnings ráðamanna þjóðarinnar við liþíumvinnslu Rio Tinto í landinu. 5.12.2021 12:05
Gagnrýna Talíbana fyrir að drepa fyrrverandi hermenn í hrönnum Ríkisstjórnir fjölmargra landa hafa gefið út yfirlýsingu þar sem Talíbanar eru harðlega gagnrýndir fyrir að drepa fyrrverandi hermenn afgönsku öryggissveitanna. Þeir séu teknir af lífi án dóms og laga. 5.12.2021 11:06
Þriðja skotárásin á þremur dögum í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn leitar manns sem grunaður er um skotárás í Friðriksberg í gærkvöldi. Skotárásin var sú þriðja í borginni á síðustu þremur dögum. 5.12.2021 10:17
Foreldrar byssumannsins fundust í felum í kjallara Foreldrar hins 15 ára Ethans Crumbley, sem ákærður er fyrir hryðjuverk eftir að hafa skotið sjö táninga til bana og sært sjö aðra í skólanum sínum í Michigan í Bandaríkjunum, hafa verið handteknir. Foreldrarnir eru ákærðir fyrir manndráp af gáleysi fyrir að hafa hundsað viðvörunarmerki í aðdraganda árásarinnar. 4.12.2021 23:00
Bretar herða reglurnar vegna omíkron Ferðamenn sem vilja komast inn í Bretland munu þurfa að framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi fyrir brottför til landsins. Ástæðan er útbreiðsla nýja omíkron-afbrigðis veirunnar, sem lítið er vitað um á þessari stundu. 4.12.2021 22:14
Íbúar flýja undan öskufalli úr Semeru Íbúar á indónesísku eyjunni Java flýja nú heimili sín eftir að eldfjallið Semeru byrjaði að gjósa. Mikið öskufall hefur fylgt eldgosinu en þetta er annað eldgosið á eyjunni á aðeins nokkrum mánuðum. 4.12.2021 14:33
Segir kosningarnar aðeins skrípaleik kínverskra stjórnvalda Lýðræðisaðgerðasinninn Nathan Law hefur hvatt fólk til að taka ekki þátt í kosningunum í Hong Kong sem eiga að fara fram 19. desember næstkomandi. Fólk eigi að sleppa því að kjósa og þannig sýna stjórnvöldum að kosningarnar hafi ekkert lögmæti. 4.12.2021 08:19
Nokkur Evrópuríki stefni á að snúa aftur til Afganistan Nokkur Evrópuríki vinna nú að því saman að koma á pólitísku sambandi við stjórnvöld Talíbana í Afganistan. Stefnan er sett á að sendiherrar ríkjanna geti snúið saman aftur til Afganistan að sögn Emmanuels Macron Frakklandsforseta. 4.12.2021 07:55
Foreldrar byssumannsins í Michigan ákærðir Foreldrar hins fimmtán ára Ethans Crumbley, sem er ákærður fyrir að hafa skotið fjóra táninga til bana og sært sjö til viðbótar í skólanum sínum í Oxford í Michigan-ríki í Bandaríkjunum á þriðjudaginn, hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi. 3.12.2021 23:46
Æðsti vísindamaður WHO segir óðagot vegna omíkron ótímabært Æðsti vísindamaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hvetur fólk til að örvænta ekki né fara í óðagot vegna omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og of snemmt væri að segja til um hvert gera þyrfti breytingar á þeim bóluefnum sem hafa verið gerð gegn Covid-19. 3.12.2021 16:48
Mætti með gervihönd til að komast hjá bólusetningu Ítalskur maður stendur frammi fyrir ákæru fyrir svik eftir að hann reyndi á frumlegan hátt að verða sér út um bólusetningarpassa án þess þó að láta bólusetja sig. Maðurinn mætti í bólusetningu með gervihönd fasta við sig. 3.12.2021 14:47
Fyrrverandi hermaður næsti kanslari Austurríkis Austurríski stjórnarflokkurinn Þjóðarflokkurinn, ÖVP, valdi í morgun innanríkisráðherrann Karl Nehammer sem nýjan formann. Sem slíkur mun hann taka við embætti kanslara landsins. 3.12.2021 12:47
Eitt prósent Þjóðverja með Covid-19 og grunur um sautján Omíkron-smit í jólaboði í Osló Talið er að sautján einstaklingar sem greindust með Covid-19 í kjölfar jólaboðs í Osló séu með Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar. 64 boðsgesta hafa greinst með Covid og yfirvöld telja líklegt að fleiri muni reynast með Omíkron-afbrigðið. 3.12.2021 11:35
Nýsmituðum fjölgað um rúm þrjú hundruð prósent á viku Þeim sem smitast af Covid-19 í Suður-Afríku hefur fjölgað hratt á undanförnum dögum. Í gær var tilkynnt að 11.535 greindust smitaðir á undanförnum sólarhring og var hlutfall jákvæðra sýna 22,4 prósent. 3.12.2021 11:29
„Einhver ber ábyrgð en ég veit það er ekki ég“ „Einhver ber ábyrgð á því sem gerðist, ég veit ekki hver það er en ég veit það er ekki ég.“ Þetta sagði leikarinn Alec Baldwin í fyrsta viðtali sínu eftir að skaut hljóp úr byssu sem hann hélt á við tökur á kvikmyndinni Rust. 3.12.2021 10:24
Norwegian og SAS taka aftur upp grímuskyldu Norrænu flugfélögin Norwegian og SAS hafa bæði ákveðið að taka upp grímuskyldu um borð í flugvélum sínum á nýjan leik 3.12.2021 08:50
Heimila lánadrottnum að hafa samband við skuldara í gegnum samfélagsmiðla Bandarískir lánadrottnar mega nú senda skuldurum innheimtuskilaboð á samfélagsmiðlum og í gegnum smáskilaboð. Gagnrýnendur segja breytinguna geta leitt til þess að fjöldi skilaboða muni fara framhjá fólki og að um sé að ræða enn eina leiðina fyrir óprúttna aðila að svindla á grandalausum einstaklingum. 3.12.2021 08:38
Umfangsmikið rafmagnsleysi plagar Grænlendinga Íbúar í grænlensku höfuðborginni Nuuk hafa síðan á mánudag þurft að glíma við umfangsmikið og ítrekað rafmagnsleysi og er nú loks búið að komast að ástæðu truflananna. 3.12.2021 08:20
Bandaríkjaþing samþykkir bráðabirgðalög og tryggja fjármögnun alríkisins fram í febrúar Bandaríkjaþing samþykkti seint í gærkvöldi bráðabirgðafrumvarp sem felur í sér að hægt verður að fjármagna rekstur fjölda stofnana á vegum alríkisins til 18. febrúar næstkomandi. 3.12.2021 06:35
Kosningastarfsmenn kæra vegna falsfrétta í Georgíu og hótana Tveir kosningastarfsmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa höfðað mál gegn hægri-öfgasíðunni Gateway Pundit vegna falsfrétta á vefnum um að þær hafi framið kosningasvik í forsetakosningunum í fyrra. Fréttaflutningur miðilsins hafi leitt til þess að þær hafi verið ofsóttar og áreittar. 2.12.2021 23:49
Óttast að Rússar reyni að stelast í flak herþotunnar sem hrapaði örskömmu eftir flugtak Breski herinn hefur fundið flak herþotunnar sem hrapaði í Miðjarðarhafið örfáum sekúndum eftir flugtak við heræfingar í Miðjarðarhafinu. Þjóðaröryggisráðgjafi Breta telur líklegt að Rússar fylgist grannt með. 2.12.2021 23:30
Sagði ráðsmanni að horfa ekki í augu Epsteins Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, sagði ráðsmanni hans að hún væri „lafði hússins“ og sagði honum að horfa ekki í augun á Epstein. Þetta kom fram í vitnisburði Juan Alessi, ráðsmanni Epstein í Flórída, fyrir dómi í dag. 2.12.2021 21:23
Fimmtán vikna viðmiðið fær líklega að standa en spurning um Roe gegn Wade Allt útlit er fyrir að Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmi yfirvöldum í Mississippi í vil og láti löggjöf sem bannar þungunarrof eftir 15. viku meðgöngu standa óhreyfða. Því er þó ósvarað hvort dómstóllinn gengur svo langt að láta það í hendur einstakra ríkja að ákvarða alfarið hvernig lögum um þungunarrof er háttað. 2.12.2021 20:03
Meina óbólusettum aðgang að börum, kvikmyndahúsum og öðru Ríkisstjórn Þýskalands hefur sett fjölmargar og stórar þúfur í veg óbólusettra Þjóðverja. Angela Merkel, fráfarandi kanslari, og Olaf Scholz, verðandi kanslari, ræddu við ríkisstjóra Þýskalands í dag og samþykktu þau harðar aðgerðir gegn mikilli útbreiðslu Covid-19 í Þýskalandi um þessar mundir. 2.12.2021 18:07
Pfizer segir að fólk þurfi líklega árlega bólusetningu Dr. Albert Bourla, forstjóri lyfjafyrirtækisins Pfizer, segir líklegt að fólk komi til með að þurfa árlega bólusetningu gegn Covid-19 á næstu árum til að viðhalda góðri vörn gegn kórónuveirunni. 2.12.2021 10:39
Segir skilið við stjórnmálin Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, hefur ákveðið að segja skilið við stjórnmálin. Hinn 35 ára Kurz sagði af sér sem kanslari í október í kjölfar ásakana um spillingu. 2.12.2021 09:43
Fjórir slösuðust þegar gömul sprengja sprakk í München Fjórir slösuðust í gær þegar 250 kílógramma sprengja frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar sprakk á byggingarsvæði nærri járnbrautarlínu í München í Þýskalandi. Minnst einn er alvarlega slasaður að sögn yfirvalda en atvikið olli samgöngutruflunum. 2.12.2021 08:45
Meðalfjöldi greindra á dag 300 í þarsíðustu viku en í gær greindist 8.561 Covid-19 tilfellum í Suður-Afríku hefur fjölgað verulega síðustu tvær vikur og en fjöldinn fór úr 300 að meðaltali á dag í þarsíðustu viku, í 1.000 í síðustu viku og stendur nú í um 3.500. 2.12.2021 08:34
Abrams gerir aðra tilraun til að verða næsti ríkisstjóri Georgíu Demókratinn Stacey Abrams hyggst gera aðra tilraun til að verða næsti ríkisstjóri Georgíuríkis í Bandaríkjunum. Í kosningum 2018 beið hún lægri hlut gegn Repúblikananum Brian Kemp, sem vann með 55 þúsund atkvæða mun. 2.12.2021 08:12
„Ég tók ekki í gikkinn,“ segir niðurbrotinn Baldwin „Ég myndi aldrei beina byssu að einhverjum og taka í gikkinn. Aldrei,“ segir Alec Baldwin í samtali við George Stephanopoulus. Um er að ræða fyrsta viðtalið sem leikarinn veitir um atvik á tökustað myndarinnar Rust, þar sem tökustjórinn Halyna Hutchins lést eftir að hafa orðið fyrir skoti úr byssu sem Baldwin hélt á. 2.12.2021 08:01
Fimmtán ára byssumaður ákærður fyrir hryðjuverk Fimmtán ára drengur sem skaut fjóra samnemendur sína til bana og særði sjö í skóla nærri Detroit í Bandaríkjunum í gær hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk, morð, morðtilraunir, vopnalagabrot og fleira. Réttað verður yfir honum sem fullorðnum manni. 1.12.2021 23:42
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. 1.12.2021 21:46
Eþíópar á Íslandi hvetja stjórnvöld til stuðnings við stjórn lands síns Hópur fólks frá Eþíópíu sem býr á Íslandi kom saman á Austurvelli í dag til að mótmæla afskiptum vestrænna þjóða af innanríkismálum í Eþíópíu og stuðningi við TPLF hreyfinguna sem fer með völd í Tigray héraði í landinu. 1.12.2021 19:41
Verður fyrsta konan til að gegna embætti forseta í Hondúras Xiomara Castro mun taka við embætti forseta Mið-Ameríkuríkisins Hondúras. Stjórnarflokkurinn í landinu hefur þegar lýst yfir ósigri í forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudaginn. 1.12.2021 09:02
CNN lætur Chris Cuomo fjúka vegna aðstoðar hans við bróður sinn Stjórnendur CNN hafa sagt upp sjónvarpsmanninum Chris Cuomo eftir að í ljós kom að hann aðstoðaði bróður sinn, ríkisstjórann Andrew Cuomo, þegar síðarnefndi var sakaður um kynferðisbrot. 1.12.2021 09:01
Höfundur The Lovely Bones biður manninn sem var dæmdur fyrir að nauðga henni afsökunar Bandaríski rithöfundurinn Alice Sebold hefur beðist afsökunar fyrir að hafa átt þátt í því að maður var ranglega dæmdur fyrir að hafa nauðgað henni árið 1981. Anthony Broadwater var handtekinn og fundinn sekur og varði 16 árum í fangelsi. 1.12.2021 08:25
Elstu tilvik Omíkron í sýnum í Hollandi Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar dreifist nú hratt um heimsbyggðina en í morgun var tilkynnt um að fyrstu tilfellin hefðu verið staðfest í Brasilíu og Japan. 1.12.2021 07:44
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent