Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamenn setja heimsmet í greindum á sólarhring Yfir milljón manns greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum í gær en um er að ræða nýtt heimsmet í fjölda greininga sjúkdómsins á einum degi. Þá er þetta næstum tvöföldun á fyrra meti, sem féll í Bandaríkjunum fyrir fjórum dögum, þegar 590 þúsund manns greindust með kórónuveiruna. 4.1.2022 07:13
Nýfætt barn fannst í ruslatunnu flugvélarsalernis Starfsfólk flugvallar á Máritíus fann nýfætt barn í ruslatunnu inni á salerni flugvélar sem var nýlent á vellinum á nýársdag. 3.1.2022 23:39
Láta ekki líflátshótanir stoppa sig Franskir stjórnarþingmenn segja að líflátshótanir sem þeir hafi fengið muni ekki stöðva áform um að framvísa þurfi bólusetningavottorði til að komast um borð í lestir eða inn á veitingastaði. 3.1.2022 23:30
Heimila örvunarskammt fyrir tólf til fimmtán ára Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur heimilað notkun á bóluefni Pfizer sem örvunarskammt fyrir börn á aldrinum tólf til fimmtán ára, og lækkað tímann sem þarf að líða frá annari bólusetningu til þeirra þeirra þriðju úr sex mánuðum í fimm. 3.1.2022 22:27
Telja samning Giuffre við Epstein fría Andrés prins af ábyrgð Virgina Giuffre, sem kært hefur Andrés prins fyrir nauðgun, tók á móti greiðslu úr hendi Jeffrey Epstein árið 2009 gegn því að höfða ekki mál gegn „mögulegum sakborningum“ vegna kynferðisofbeldis. 3.1.2022 20:04
Náttúruverndarsinninn Richard Leakey látinn Keníski náttúruverndarsinninn Richard Leakey er látinn, 77 ára að aldri. Hann var heimsþekktur fyrir rannsóknir sínar og baráttu gegn veiðiþjófnaði og ólöglegum viðskiptum með fílabeini. 3.1.2022 09:12
Flúði aftur yfir víggirt landamæri til Norður-Kóreu Maður sem sást fara norður yfir landamæri Norður- og Suður-Kóreu um helgina hafði áður flúði úr norðri og til suðurs. Varnarmálaráðuneyti Suður-Kóreu segir manninn hafa flúið frá einræðisríkinu í norðri í fyrra um sömu leið um austurhluta landamæranna víggirtu. 3.1.2022 08:47
Úkraínskur ráðherra kvartar til Netflix vegna persónu í Emily in Paris Menningarmálaráðherra Úkraínu hefur sent formlegt erindi til Netflix og kvartað undan persónu í þáttunum Emily in Paris. Þeir segja hana „óásættanlega skrípamynd“ af úkraínskri konu. 3.1.2022 08:41
Forsætisráðherrann hættir eftir mótmæli síðustu daga Forsætisráðherra Súdans hefur sagt af sér embætti en síðustu daga hafa þúsundir mótmælt ríkisstjórn hans í höfuðborginni Khartoum. 3.1.2022 08:29
Íhugar að skikka borgarstarfsmenn til að þiggja örvunarskammt Eric Adams, borgarstjóri New York, sagðist í gær vera að íhuga að skylda starfsmenn borgarinnar til að þiggja örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19. Opinberir starfsmenn í New York hafa þegar verið skikkaðir til að þiggja bólusetningu. 3.1.2022 07:45
Elsta manneskja heims fagnar 119 ára afmælinu Kane Tanaka fagnaði afmæli sínu á elliheimili í Japan í gær en hún er elsta manneskja heims, 119 ára að aldri. Tanaka segis staðráðin í að bæta metið á næsta ári. 3.1.2022 07:05
Umfangsmiklar refsiaðgerðir það eina sem geti komið í veg fyrir innrás Það verður að teljast afar líklegt að Rússland ráðist inn í Úkraínu og það eina sem gæti mögulega komið í veg fyrir það eru gríðarlega umfangsmiklar refsiaðgerðir. Þetta segir Adam Schiff, formaður leyniþjónustunefndar fulltrúadeildar bandaríska þingsins. 3.1.2022 06:48
Íhuga að breyta reglum um einangrun nokkrum dögum eftir styttingu Sóttvarnayfirvöld í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta reglum um einangrun Covid-smitaðra, með því að setja neikvætt kórónuveirupróf sem skilyrði fyrir því að hægt sé að ljúka einangrun á fimm dögum. Einangrun í Bandaríkjunum var stytt úr tíu dögum í fimm í síðustu viku. 2.1.2022 23:50
Þingkona bönnuð á Twitter vegna rangra upplýsinga um Covid Bandaríska þingkonan Marjorie Taylor Greene hefur verið bönnuð á samfélagsmiðlinum Twitter, eftir að hafa ítrekað brotið reglur miðilsins um falsfréttir í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Greene hefur sagt bannið gegn sér til marks um að Twitter sé „óvinur Bandaríkjanna.“ 2.1.2022 23:30
Mæðgin sameinuð eftir 30 ára aðskilnað Þegar Li Jingwei var fjögurra ára var honum rænt og hann seldur í mansal. Kort sem hann teiknaði og deildi á samfélagsmiðli leiddi til þess að móðir hans fannst. 2.1.2022 17:05
Fjölmenn mótmæli í Amsterdam vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda Þúsundir komu saman á götum Amsterdam í dag þrátt fyrir gildandi samkomubann í Hollandi. Mótmælendur eru ósáttir við aðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirunnar. 2.1.2022 16:00
Grímuskylda nemenda sett á í skólum á Englandi Nemendur í eldri bekkjum grunnskóla og í menntaskólum á Englandi þurfa að bera grímur í kennslustofum þegar skólarnir hefja störf aftur í næstu viku. 2.1.2022 14:06
Miklar skemmdir á þinghúsinu í Höfðaborg Eldur kviknaði í suðurafríska þinghúsinu í morgun og breiddist hratt út. Þak hússins er fallið saman og miklar skemmdir urðu á elstu hlutum byggingarinnar. 2.1.2022 13:57
Suður-Kóreumaður hefur flúið norður yfir landamærin Suðurkóreskur ríkisborgari hefur flúið yfir landamærin til Norður-Kóreu. Þetta staðfestir suðurkóreski herinn en það er mjög sjaldséð að fólk flýi úr suðrinu og norður. 2.1.2022 08:26
Þinghús Suður-Afríku brennur Mikill eldur brennur nú í þinghúsi Suður-Afríku í Höfðaborg. Tugir slökkviliðsmanna eru við störf við að slökkva eldinn og mikill, svartur reykur stígur upp frá húsinu. 2.1.2022 08:00
Hátt í 900 bílar brenndir á gamlársdag Kveikt hefur verið í á níunda hundrað bíla í Frakklandi í tilefni áramótanna. Um er að ræða eins konar hefð í úthverfum Frakklands, sem nær sextán ár aftur í tímann. 1.1.2022 23:01
Tveggja saknað eftir elda í Colorado Tveggja er saknað eftir gróðurelda sem skekið hafa úthverfi bandarísku borgarinnar Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum. Hundruð heimila hafa orðið eldinum að bráð og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra. 1.1.2022 20:31
Kveðja brosandi baráttumann fyrir mannréttindum Desmond Tutu fyrrverandi erkibiskup í Suður Afríku var jarðsunginn í dag. Hanns er minnst um allan heim sem mikils mannréttindafrömuðar en hann lék lykilhlutverk í baráttunni fyrir afnámi aðskilnaðarstefnunnar í Suður Afríku. 1.1.2022 19:41
Útför Desmonds Tutu hafin í Höfðaborg Útför Desmonds Tutu fyrrverandi erkibiskups Suður Afríku hófst í dómkirkjunni í Höfðaborg klukkan átta í morgun. Útförin fer fram með viðhöfn á vegum ríkisins. 1.1.2022 08:56
Bjartsýnn en segir ójafna dreifingu bóluefna helstu ógnina Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segist bjartsýnn á að ríkjum heims takist að ná tökum á kórónuveirufaraldrinum árið 2022. Það muni þó krefjast þess að menn taki höndum saman. 31.12.2021 23:34
Betty White er látin „Jafnvel þótt Betty væri að verða 100 ára hélt ég að hún myndi lifa að eilífu,“ segir Jeff Witjas, umboðsmaður og náin vinur leikkonunnar Betty White, sem lést fyrr í dag. 31.12.2021 20:48
Ekki augljós árangur af fundi Pútín og Biden Joe Biden forseti Bandaríkjanna og Vladimir Putin forseti Rússlands áttu fjarfund í gærkvöldi þar sem þeir ræddu þá spennu sem ríkir vegna málefna Úkraínu. 31.12.2021 08:53
Þúsundir flýja heimili sín vegna gróðurelda Rúmlega þrjátíu þúsund manns hafa flúið heimili sín í Colorado í Bandaríkjunum vegna gróðurelda. Þurrt hefur verið í ríkinu í haust og í vetur og mikill vindur er á svæðinu. Eldurinn breiðist því hratt út en talið er að eldsupptök megi rekja til rafmagnsmastra, sem féllu um koll í ofsaveðrinu. 31.12.2021 08:24
Spítalainnlögnum barna fjölgar ört í Bandaríkjunum Spítalainnlögnum barna með Covid fjölgar nú ört í Bandaríkjunum. Innlagnir barna í Bandaríkjunum hafa nær aldrei verið fleiri í kórónuveirufaraldrinum en faraldurinn er í miklum vexti þar í landi. 30.12.2021 20:18
Repúblikanar vilja stjórna hverjir kjósa og hvernig atkvæði eru talin Repúblikanar víðsvegar um Bandaríkin hafa gripið til aðgerða sem taka mið af því að gera flokksmeðlimum auðveldara að snúa niðurstöðum kosninga í Bandaríkjunum. Viðleitnin byggir á grunni ósanninda Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að umfangsmikið svindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020 gegn Joe Biden. 30.12.2021 15:01
Vörður drottningarinnar steig á barn Einn af vörðum drottningarinnar í London gekk nýverið yfir og steig á barn við Tower of London-virkið. Tveir hermenn voru í varðferð þegar barnið varð á vegi þeirra og annar hermaðurinn gekk á það og yfir. 30.12.2021 14:50
Kveiktu í gamla þinghúsinu í Canberra Hópur mótmælenda í áströlsku höfuðborginni Canberra kveiktu í gamla þinghúsi landsins í morgun. Miklar skemmdir voru unnar á inngangi byggingarinnar sem nú hýsir safn tileinkuðu þróun lýðræðis í landinu. 30.12.2021 14:01
Birti bækur þar sem hann nefndi verðandi fórnarlömb sín Maður sem sakaður er um að hafa skotið fimm til bana í Denver í Bandaríkjunum er talinn hafa birt bækur á netinu þar sem hann lýsti sambærilegri árás og nefndi nokkur af fórnarlömbum sínum. Lyndon James McLeod fór víðsvegar um borgina og skaut fólk á mismunandi stöðum á innan við klukkustund en tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir enn. 30.12.2021 10:25
Færeyska stjórnin heldur velli eftir lygilega atburðarás Samkomulag hefur náðst um áframhaldandi stjórnarsamstarf Sambandsflokksins, Fólkaflokksins og Miðflokksins í Færeyjum. Mikil óvissa ríkti um framtíð færeysku landsstjórnarinnar eftir að Lögþingið samþykkti óvænt lög sem auka réttindi samkynhneigðra í Færeyjum. 30.12.2021 08:52
Tígur í bráðri útrýmingarhættu skotinn í dýragarði í Flórída Átta ára malasískur tígur var skotinn í Naples dýragarðinum í Flórída í gær eftir að hafa bitið í handlegg eins starfsmanna garðsins. Lögregla reyndi að fá tígurinn til að sleppa manninum en neyddist til að skjóta hann þegar það gekk ekki. 30.12.2021 08:39
Ómíkronsmitaður plötusnúður gagnrýndur fyrir sóttvarnabrot á Nýja-Sjálandi Breski plötusnúðurinn DJ Dimension, sem sagður er hafa verið fyrsti smitaði einstaklingurinn af ómíkronafbrigði kórónuveirunnar í Nýja-Sjálandi, hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa brotið gegn ströngum sóttvarnareglum landsins. 30.12.2021 07:37
Að vera eða ekki vera... fullbólusettur Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum velta því nú fyrir sér að breyta skilgreiningunni á „fullbólusettur“ en það þykir hafa bæði kosti og galla. Eins og stendur er talað um að menn séu fullbólusettir eftir tvo skammta en spurningin er hvort menn þurfa ekki að hafa fengið þrjá skammta til að geta raunverulega talist bólusettir að fullu. 30.12.2021 07:37
Vara ríki við að draga úr ráðstöfunum og segja einum hagsmunum skipt út fyrir aðra Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir ekki skynsamlegt að slaka á sóttvarnakröfum á þessum tímapunkti og að með ákvörðunum um að stytta einangrunartímabilið vegna Covid-19 sé verið að skipta út einum hagsmunum fyrir aðra. 30.12.2021 06:53
Þrír létust í eldsvoða á gjörgæslu Þrír létu lífið á gjörgæslu í Úkraínu eftir að eldsvoði braust út þegar kveikt var á minningarkerti, til minningar þeirra sem látist höfðu úr kórónuveirunni. Fjórir hlutu lífshættuleg brunasár. 30.12.2021 00:06
Maxwell sakfelld fyrir mansal og gæti átt yfir höfði sér 65 ára fangelsi Ghislaine Maxwell var í dag sakfelld í New York fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. 29.12.2021 23:03
Kínverjar smána sóttvarnabrjóta opinberlega Lögreglan í Suður-Kína smánaði opinberlega fjóra menn í vikunni sem sakaðir voru um að hafa brotið gegn sóttvarnalögum. Mennirnir áttu að hafa smyglað fólki yfir landamæri Kína en strangar takmarkanir eru á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. 29.12.2021 21:21
„Kúgun almennings í Rússlandi eykst stöðugt” Hæstiréttur í Rússlandi úrskurðaði í dag að elstu og einni virtustu mannréttindaskrifstofu landsins skyldi lokað. Ástæðan er sögð hryðjuverkaógn og brot á hinum ýmsu lögum um erlend samskipti. Þýska ríkisstjórnin gagnrýnir dóminn. Þekktur blaðamaður féll til bana úr glugga íbúðar sinnar í miðborg Moskvu á sunnudag. 29.12.2021 20:30
James Webb tekur á sig mynd en ekkert má bregða útaf Byrjað er að opna geimsjónaukann James Webb sem skotið var út í geim á jóladag. Sjónaukinn er svo stór að brjóta þurfti hann saman til að koma honum af yfirborði jarðar og má ekkert fara úrskeiðis á meðan verið er að opna hann. 29.12.2021 17:00
Áhyggjur af flóðbylgju Covid: Smituðum fjölgaði um ellefu prósent á einni viku Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hefur áhyggjur af mikilli fjölgun þeirra sem smitast hafa af Covid-19 á heimsvísu. Sagði hann að dreifing bæði ómíkron- og delta-afbrigðum kórónuveirunnar hefði leitt til flóðbylgju smita á heimsvísu. 29.12.2021 16:49
„Dóttir mín dó í fanginu á mér“ Móðir fjórtán ára stúlku sem varð fyrir skoti úr byssu lögregluþjóns og dó í Los Angeles segist ekkert hafa getað gert til að bjarga lífi dóttur sinnar. Þær höfðu leitað skjóls í mátunarklefa verslunar eftir að maður réðst á konur með hjólalás í versluninni. 29.12.2021 16:31