Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Boehly vildi að Tuchel spilaði leikkerfið 4-4-3 Í ítarlegri grein The Athletic um brottrekstur Thomas Tuchel og hvað leiddi til hans er farið djúpt ofan í það sem hefur gengið á hjá enska knattspyrnufélaginu Chelsea undanfarna mánuði. Þar kemur fram að Todd Boehly, bandarískur eigandi félagsins, hafi stungið upp á að Tuchel myndi spila leikkerfið 4-4-3. 10.9.2022 07:00
Dagskráin: Meistarakeppni HSÍ, ítalski, sænski og golf Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld. Alls verða átta meinar útsendingar á dagskrá. 10.9.2022 06:00
Koma Aurier þýðir að Forest hefur sótt tvö byrjunarlið af nýjum leikmönnum í sumar Það hefur verið mikið rætt og ritað um Nottingham Forest undanfarnar vikur en félagið komst loks upp í ensku úrvalsdeildina eftir meira en tveggja áratuga fjarveru. Til að auka möguleika sína á að halda sæti sínu hefur félagið sótt hvern leikmanninn á fætur öðrum, 22 alls. Það eru tvö heil byrjunarlið. 9.9.2022 23:30
Dansinn hans Antonio Brown mun verða áberandi í NFL-deildinni Einn litríkasti leikmaður í sögu NFL-deildarinnar, Antonio Brown, hefur kvatt deildina en áhrifa hans mun engu að síður gæta í deildinni í vetur. 9.9.2022 23:00
Stækkuð Ljósleiðaradeild handan við hornið: „Þýðir bara stærri flóra af toppleikmönnum“ Ljósleiðaradeildin í CS:GO er handan við hornið, en framundan er sjöunda tímabil deildarinnar. Deildin hefst næstkomandi þriðjudag og verður stærri en nokkru sinni fyrr. 9.9.2022 22:31
„Geggjað að vinna KA“ Rúnar Sigtryggsson stýrði Haukum til sigurs í fyrsta leik sínum sem þjálfari liðsins. Staðan í hálfleik gegn KA var jöfn, 11-11, en Haukar stigu á bensíngjöfina í upphafi seinni hálfleiks og náðu þá forskoti sem þeir létu ekki af hendi. 9.9.2022 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - KA 27-21 | Þreytt, þungt og þunnt á Ásvöllum Haukar unnu KA, 27-21, í eina leik kvöldsins í Olís-deild karla. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11, en Haukar voru mun sterkari í seinni hálfleik. 9.9.2022 21:55
Tindastóll upp í Bestu deildina Tindastóll vann öruggan 5-0 útisigur á Augnabliki í Kópavogi í Lengjudeild kvenna í kvöld. Sigurinn þýðir að Tindastóll er komið aftur upp í Bestu deild kvenna eftir aðeins ár í Lengjudeildinni. 9.9.2022 21:35
Rúnar Alex og Willum Þór með sína fyrstu deildarsigra Rúnar Alex Rúnarsson stóð milli stanganna er Alanyaspor lagði Ankaragücü í tyrknesku úrvalsdeildinni. Var þetta fyrsti sigur liðsins síðan Rúnar Alex komst í byrjunarliðið. Willum Þór Willumsson kom inn af bekknum hjá Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta er liðið vann 3-2 útisigur á Volendam. 9.9.2022 20:30
UEFA ekki tekið ákvörðun en Rússland þegar skipulagt æfingaleiki Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur ekki tekið ákvörðun hvort Rússland eigi að fá taka þátt í undankeppni Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer sumarið 2024. Á sama tíma er Rússland þegar byrjað að skipuleggja æfingaleiki og hefur fulla trú á að þjóðin fái að taka þátt. 9.9.2022 20:01
Bjarki Már skoraði þrjú í fyrsta deildarleiknum í Ungverjalandi Veszprém vann stórsigur á Dabas í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-21 gestunum í vil. Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson var að leika sinn fyrsta deildarleik fyrir liðið en hann missti af leiknum í fyrstu umferðar vegna meiðsla. 9.9.2022 19:30
Markalaust í Eyjum og Valur komið níu fingur á titilinn ÍBV og Breiðablik gerðu markalaust jafntefli í Vestmannaeyjum í kvöld þar sem liðin mættust í Bestu deild kvenna í fótbolta. Jafnteflið þýðir að Valskonur, sem unnu stórsigur á KR, eru nú komnar með sex stiga forystu á toppi deildarinnar þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir. 9.9.2022 19:00
Umfjöllun og viðtöl: KR-Valur 0-6 | Stórsigur Íslandsmeistaranna og titillinn í augsýn Valskonur unnu nágranna sína í KR með sex mörkum gegn engu í Bestu deild kvenna í kvöld. Valur er ríkjandi Íslandsmeistari og það virðist fátt geta stöðvað liðið í að vinna sinn annan titil í röð en Breiðablik gerði markalaust jafntefli í Eyjum í kvöld. Viðtöl og umfjöllun koma von bráðar. 9.9.2022 18:55
Gabriel Jesus eða Martinelli ekki í síðasta leikmannahóp Brasilíu fyrir HM Tite, landsliðsþjálfari Brasilíu, hefur tilkynnt 26 manna hóp fyrir síðustu æfingaleiki liðsins í aðdraganda HM sem fram fer í Katar á síðasta ári. Athygli vekur að Arsenal tvíeykið Gabriel Jesus og Martinelli eru ekki í hópnum. 9.9.2022 18:31
Man Utd vildi ekki Potter þar sem hann hafði ekki þjálfað í Meistaradeildinni Graham Potter er nýr þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Hann hefði getað fengið tækifæri til að stýra öðru toppfélagi á Englandi en tvívegis kom nafn hans upp er Manchester United var að leita að nýjum þjálfara. Skortur á reynslu í Meistaradeild Evrópu stöðvaði hins vegar Man United í að fara lengra með áhuga sinn. 9.9.2022 17:45
„Þurfum að búa okkur vel undir báða möguleikana“ Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, segir að liðið muni koma saman til æfinga á meginlandi Evrópu ekki á Íslandi, fyrir umspilsleikinn 11. október um sæti á HM. 9.9.2022 17:02
Settur til hliðar vegna ummæla um drottninguna Fyrrum knattspyrnumaðurinn Trevor Sinclair hefur verið sendur í leyfi vegna ummæla sinna á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar sagði hann að fólk dökkt að hörund ætti ekki að syrgja drottninguna. 9.9.2022 16:30
Bestu mörkin: Stórleikurinn, umspilið og Meistaradeild Evrópu Í nýjasta upphitunarþætti Bestu markanna fór Helena Ólafsdóttir yfir víðan völl með Mist Edvardsdóttur og Örnu Sif Ásgrímsdóttur sem farið hafa á kostum með Val í Bestu deildinni í fótbolta í sumar. 9.9.2022 15:54
„Held að það sé mjög mikill séns þarna“ Valsvarnarmúrinn, sem þær Mist Edvardsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir hafa mótað svo myndarlega í sumar, telur líklegast að Ísland muni mæta Belgíu frekar en Portúgal í umspilsleiknum um sæti á HM kvenna í fótbolta. 9.9.2022 15:33
„Svo halda allir of fljótt að það verði bara hægt að vinna Ísland“ Þjálfari Belgíu segir að liðsins bíði erfitt verkefni við að komast á HM kvenna í fótbolta. Liðið þarf að slá út Portúgal og Ísland til að ná því. 9.9.2022 15:02
Hundrað ára afmæli handbolta á Íslandi: „Alltaf stórasta land í heimi“ Handknattleikssamband Íslands fagnar því að í ár séu hundrað ár liðin frá því að handboltinn kom til Íslands og hefur nú birt nýja auglýsingu af því tilefni þar sem stiklað er á stóru í sögu handboltans hér á landi. 9.9.2022 14:31
Sárafáir dæmi til að fá ellefu þúsund krónur Útborguð laun dómara fyrir leik í Subway-deildunum í körfubolta eru rétt rúmar ellefu þúsund krónur. Dómarar þurfa meðal annars að mæta á leikstað klukkutíma fyrir leik og starfinu fylgja ýmsar aðrar kvaðir sem ekki er greitt aukalega fyrir. 9.9.2022 14:00
Segir að Liverpool hefði frekar átt að kaupa Toney Liverpool hefði frekar átt að kaupa Ivan Toney en Darwin Nunez. Þetta segir stjórnarformaður Peterborough United, Darragh MacAnthony. 9.9.2022 13:31
„Hornið hentar minni líkamsbyggingu betur“ Leikur Fram og Selfoss í gærkvöldi var ekki bara fyrsti leikur tímabilsins 2022-23 í Olís-deild karla, fyrsti leikur Fram á nýjum heimavelli í Úlfarsárdal heldur einnig fyrsti alvöru leikur Ívars Loga Styrmissonar í nýrri stöðu. 9.9.2022 13:01
Er Mourinho loks að renna á afturendann? Chelsea, Barcelona og Udinese. Þessi áhugaverða þrenning inniheldur þau félög sem José Mourinho hefur þurft að þola stærstu töpin gegn á þjálfaraferli sínum. Er komið að því sem allir knattspyrnuáhugamenn hafa beðið eftir í eitt og hálft ár? Er José Mourinho að renna á afturendann með enn eitt liðið? Chelsea árið 2015. Manchester United árið 2018. Tottenham Hotspur árið 2021 og nú Roma árið 2022? 9.9.2022 12:30
70-90 laxa dagar í Eystri Rangá Eystri Rangá er næst aflahæsta á landsins og fer yfir 3.000 laxa múrinn í dag en hún stóð í 2.985 löxum í gær þegar tölur voru teknar saman. 9.9.2022 12:07
Rangárnar með yfirburði í veiðitölum Nýjar tölur úr laxveiðiánum fyrir liðna viku eru komnar á vefinn og systurnar Ytri og Eystri Rangá eru búnar að stinga hinar árnar af. 9.9.2022 12:01
Stelpurnar okkar þurfa að fara til Portúgals eða Belgíu Nú er orðið ljóst hver andstæðingur Íslands verður í seinni hluta umspilsins í Evrópu um sæti á HM kvenna í fótbolta, sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi næsta sumar. 9.9.2022 11:40
Heimir í viðræður við HB Knattspyrnuþjálfarinn Heimir Guðjónsson gæti mögulega verið á leið aftur til starfa í Færeyjum þar sem hann starfaði við afar góðan orðstír. 9.9.2022 11:31
Meistararnir flengdir í fyrsta leik Tímabilið í NFL-deildinni hófst í nótt þegar meistarar LA Rams tók á móti Buffalo Bills. Margir spá því að þessi lið munu einnig mætast í Super Bowl í febrúar. 9.9.2022 11:21
Hætt við mínútu þögn í Skotlandi vegna óláta áhorfenda Áhorfendur sem gerðu sér ferð á Tynecastle-völlinn í Edinborg að sjá leik Hearts og Istanbul Basaksehir í gærkvöld höfðu lítinn áhuga á að virða minningu Elísabetar II Bretadrottningar. Fyrirhuguð mínútu þögn varð kaótísk. 9.9.2022 11:00
Ekkert spilað á Englandi um helgina Öllum fyrirhuguðum íþróttaviðburðum á Englandi um helgina hefur verið frestað. Því verða engir leikir í enska boltanum. 9.9.2022 10:43
Olís-spá kvenna 2022-23: Áskriftinni sagt upp Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 8. sæti Olís-deildar kvenna í vetur. 9.9.2022 10:00
Utan vallar: Ógeðslega ósanngjarnt Ég botna ekki í því hvert alþjóðafótboltinn er að stefna með því að láta heppni ráða svona miklu um það hvaða þjóðir komast á stórmót, eins og raunin er farin að vera varðandi umspil í Evrópu. Ætli Ísland verði aftur eins óheppið í dag og árið 2020? 9.9.2022 09:32
Bróðir Pogbas segist vera saklaus og ætlar ekki að afhjúpa neitt Lögmaður Mathias Pogba hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skjólstæðingur hans hafi ekki verið viðriðinn fjárkúgun á hendur Paul Pogba og hann vilji lægja öldurnar milli þeirra bræðra. 9.9.2022 09:00
Úkraínski Neymar mígur utan í Arsenal Úkraínski kantmaðurinn Mykhaylo Mudryk, sem sló í gegn í sigri Shakhtar Donetsk á RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn, hefur gefið Arsenal hressilega undir fótinn. 9.9.2022 08:30
Veit ekki hvaða stöðu eigin leikmaður spilar Lucien Favre, knattspyrnustjóri Nice, virtist ekki vita hvaða stöðu Ross Barkley, nýjasti leikmaður franska liðsins, spilar er hann var spurður út í það á blaðamannafundi. 9.9.2022 08:01
Gerði allt vitlaust með að segja að svart fólk ætti ekki að syrgja drottninguna Trevor Sinclair, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín um að fólk sem er dökkt á hörund ætti ekki að syrgja Elísabetu II Bretadrottningu sem féll frá í gær, 96 ára að aldri. 9.9.2022 07:30
Umboðsmenn þénuðu tæpa 70 milljarða í sumarglugganum Umboðsmenn knattspyrnumanna þurfa margir hverjir ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir salti í grautinn á næstunni. Samkvæmt alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA þénuðu þeir tæplega 431 milljón punda í félagsskiptaglugga sumarsins sem lokaði í seinustu viku. 9.9.2022 07:00
Dagskráin í dag: Besta-deild kvenna, Olís-deild karla og golf Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag, en alls verður boðið upp á sjö beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum frá morgni til kvölds. 9.9.2022 06:00
Ánægður að fá soninn í liðið: „Vonum bara að hann hjálpi okkur mikið í vetur“ Andri Már Rúnarsson skrifaði undir hjá Haukum í Olís-deildinni í handbolta í vikunni en þar þekkir hann vel til þjálfarans. Karl faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, tók við liðinu fyrir þessa leiktíð og lýst þeim vel á komandi samstarf. 8.9.2022 23:30
Björn Viðar leggur skóna á hilluna Handboltamarkvörðurinn Björn Viðar Björnsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu og mun því ekki leika með ÍBV í Olís-deild karla á tímabilinu. 8.9.2022 23:01
Umfjöllun og viðtöl: Valur-Afturelding 25-24 | Meistararnir byrja tímabilið á sigri Valur hóf titilvörn sína í Olís-deild karla í handbolta er Afturelding kom í heimsókn á Hlíðarenda í kvöld. Verkefnið var ærið fyrir Mosfellinga gegn þreföldum meisturum síðasta árs. 8.9.2022 22:27
Róbert Gunnarsson: „Ég var mjög, mjög stressaður fyrir þennan leik“ Róbert Gunnarsson tók sín fyrstu skref sem aðalliðsþjálfari í kvöld þegar hann stýrði Gróttu til stórsigurs á ÍR-ingum. Lokatölur á Seltjarnarnesi 31-20. 8.9.2022 22:14
Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 28-33| Garðbæingar sannfærandi í fyrsta leik 1. umferð í Olís deild karla fór af stað í kvöld með fjórum leikjum. Í Kaplakrika vann Stjarnan sannfærandi sigur á FH.Leikurinn var jafn til að byrja með en góður endasprettur Stjörnunnar í fyrri hálfleik sló FH-inga út af laginu og var síðari hálfleikur aldrei spennandi og endaði leikurinn með fimm marka sigri Stjörnunnar 28-33. 8.9.2022 22:10