Fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi ekki veitt upplýsingar
Dómsmálaráðherra segir að fyrrverandi félagsmálaráðherra hafi enn ekki svarað hvaða upplýsingar hann hafði sem kröfðust þess að stöðva ætti brottför fjölfatlaðs palestínsks drengs og fjölskyldu úr landi í haust. Hún er ósátt við niðurstöðu málsins.Hefði verið komin greiningarmiðstöð á landamærum hefði fjölskyldunni verið vísað strax úr landi.