Kominn heim eftir árangurslausa ferð til Dómíníska Lýðveldisins í leit að bróður sínum
Enn hefur ekkert spurst til Magnúsar Kristins sem týndist í Dóminíska Lýðveldinu fyrir rúmum mánuði. Bróðir hans kom heim í gær eftir árangurslausa ferð út í leit að svörum. Systir Magnúsar gagnrýnir sinnuleysi og hægagang yfirvalda hér á landi. Hún á ekki von á því að sjá bróðir sinn á ný.