Listaháskóli Íslands flytur í Tollhúsið
Viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands var undirrituð í Tollhúsinu við Tryggvagötu í dag. Yfirlýsingin er sögð marka tímamót í sögu listaháskólans, en hún felur í sér að allar deildir skólans sameinast undir einu þaki í fyrsta sinn frá stofnun skólans.