Suðurengi er fallegasta gatan í Árborg
Íbúar í Suðurengi á Selfossi þurfa ekki að skammast sín fyrir götuna sína því hún var um helgina valin fallegasta gatan í Sveitarfélaginu Árborg. Elsti og yngsti íbúi götunnar afhjúpuðu sérstakt skilti þess efnis.